Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 12

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 12
Frumvarp til breytinga á lögum um Háskólann: Hefur í för með sér miklar breytingar fyrir Háskólann Menntamálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, lagði fram stjómarfrumvarp um breytingar á lögum nr. 77/1979, um Háskóla íslands í desember mánuði síðastliðnum. Frumvarpið fékk skjóta afgreiðslu í efri deild Alþingis, en ráðherra lét þá ósk í ljós að það mætti afgreiða sem lög frá Alþingi fyrir jólaleyfi þingmanna. Þessi von Ragnhildar varð að engu, þar sem nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar töldu sig ekki undir það búna að greiða frumvarpinu at- kvæði, því of skammur tími hefði gefist til að kynna sér hvað í því fælist. Efnislegur ágrein- ingur var lítill eða enginn. I umræðum í neðri deild við þetta tækifæri (18. desember) sagði menntamálaráðherra meðal annars: „Herra forseti. Eg gerði mér ekki ljós fyrr en í gærkvöldi að e.t.v. væri ágrein- ingur um þetta mál sem hér liggur fyrir. Reyndar mun ekki vera efniságreiningur heldur vilja þingmenn fá tækifæri til að skoða málið betur. Það hafði einungis vakað fyrir mér að þar eð hér væri um gjörsamlega ágreiningslaust mál að ræða væri ástæðulaust að tefja það þar til á útmánuðum. Það mætti þá fá afgreiðslu um leið og önnur mál nú. Háskólinn sæi þá fram á þessa möguleika þegar hann stendur andspænis því að framkvæmdafé er mjög skert í þeim fjárlögum sem væntanlega verða afgreidd hér á næstu dögum. Fannst mér eins og þarna væri þó nokkur ljósglæta ef Háskólinn fengi lög um þetta efni um svipað leyti og fjárlög væru afgreidd." Frumvarpið Verði frumvarpið að lögum, mun það þýða (nái það tilgangi sínum) gífurlegar breyting- ar fyrir Háskólann, kennara og nemendur. í því er lagt til að verkfræði- og raunvísinda- deild verði skipt upp og myndi tvær deildir. Samkvæmt upplýsingum er almenn ánægja innan deildarinnar um tiliöguna. Hins vegar hljóta fulltrúar stúdenta í Stúdentaráði og Háskólaráði að huga að því að deildarforset- um fjölgar ogþar með skerðast áhrif stúdenta í síðarnefndaráðinu. Það hefur löngum verið á stefnuskrá hinna pólitísku fylkinga að stúdentar fái aukna aðild að stjómstofnunum skólans og því virðist ekki úr vegi fyrir Stúdentaráð að nota þetta tækifæri til að vekja athygli þing- manna á þessu. (Ef fjölga á fulltrúum stúd- enta í Háskólaráði verður að koma til breyt- ing á lögum um Háskóla íslands). Þróunarmiðstöð Veigamesta breytingin sem lögð er til er að Háskólanum skal veitt heimild, með sam- þykki Háskólaráðs og menntamálaráðherra, að eiga aðild að sameignarfélögum, hlutafé- lögum og sjálfseignarstofnunum sem stunda rannsókna- og þróunarstarfsemi eða fram- leiðslu og sölu tengda slíkri starfsemi. Þá er gert ráð fyrir að Háskólinn geti stofnað svo- kallaða þróunarmiðstöð. í greinargerð sem fylgir frumvarpinu frá Háskólanum segir: „Samstarf Háskóla íslands við fyrirtæki og ýmsar stofnanir utan hans fer vaxandi. Einnig er unnið að fjölmörgum rannsókn- arverkefnum innan háskólans og hátækni- iðnaður verður ekki efldur á íslandi nema með því að virkja þá þekkingu sem háskóla- kennararbúa yfir. Þeir kostir sem eru tengdir því að stofna þróunarmiðstöð við Háskóla íslands eru þessir: 1. Miðstöðin yrði andlit skólans út á við. 2. Hún annaðist gerð samninga um þjón- ustu- og þróunarverkefni við aðila innan og utan skólans. Tekið skal fram að eftir sem áður yrði stofnunum háskólans frjáls að semja beint við aðila utan skól- ans. 3. Þróunarmiðstöðin starfaði á viðskiptaleg- um grundvelli og leitað verður eftir þátt- töku fyrirtækja í starfsemi hennar. Með því móti fengist áhættufé til starfsem- innar. 4. Þróunarmiðstöðin gæti selt framleiðslu- leyfi eða gerst aðili að fyrirtækjum sem annast framleiðslu eða sölu tengda starfsemi hennar. 5. Fáist lagaheimildin eru tekin af tvímæli með skattfrelsi háskólans af starfsemi miðstöðvarinnar og fyrirtækja þeirra annarra er háskólinn ætti aðild að. Tekið skal fram að gert er ráð fyrir að þróunarmiðstöðin heyri undir háskólaráð, all- ar meiri háttar ákvarðanir verði háðar sam- þykki þess.“ Aðrar breytingar Frumvarp menntamálaráðherra gerir ráð fyrir fleiri breytingum: í fyrsta lagi að Há- skólaráð geti lagt til að forðstöðumaður há- skólastofunar sé fluttur í prófessorsembætti. í annanstaðað rektor eigi rétt á að verða leystur undan stöðu sinni sem prófessor og geri að fenginni umsögn deildar tillögu til mennta- málaráðherra um eftirmann. þá eru í þriðj a lagi ákvæði í frumvarpinu um leyfi kennara frá störfum í lengri eða skemmri tíma. Umræður á alþingi Eins og áður segir var frumvarpið afgreitt frá efri deild með skjótum hætti, til neðri deildar, en þar urðu nokkrar umræður áður en það var afgreitt til menntamálanefndar deildarinnar. Guðmundur Einarsson, þingmaður Bandalangs jafnaðarmanna sagði meðal annars: „Hér er verið að stíga nýtt merkilegt spor, þetta er spor sem við höfum minnst á hér á Alþingi að þurfi að stíga, þ.e. að tengja Há- skólann atvinnulífinu á virkan hátt. Það þarf hins vegar að skoðast mjög vel hvernig þetta spor verði best stigið... í sambandi við ýmiss konar tæknigreinar og þróaðar vísindagreinar hafa háskólamir í löndunum í kringum okkur orðið uppspretta nýjunga og nýsköpunar í atvinnulífi. Það er brýnt verkefni að búa þannig um hnútana að Háskóli íslands verði það sömuleiðis. En það er mjög nauðsynlegt að þetta sé gert í nánu og fullkomnu samráði við þær stofnanir Háskólans sem em uppspretta þessara hug- mynda. Þá á ég við stofnanir eins og Verk- fræðistofnun, Líffræðistofnun, Raunvísinda- stofnun, Tilraunastöð í meinafræði á Keld- um og hugsanlega einhverjar fleiri sem ég man ekki eftir í augnablikinu. Þama em líka stofnanir utan Háskólans sem hafa hingað til tengst rannsóknarstarfseminni þar á ýmsan máta, svo sem Hafrannsóknastofnun og ekki síst Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og hugsanlega fleiri. Eitt dæmið enn er Reikni- stofnun sem yrði væntanlega aðsetur ein- hverrar starfsemi í tölvufræðum sem em svo mjögádöfinni." Nokkm síðar sagði Guðmundur: „Það er býsan margt sem tengist svona máli sem ég tel að þurfi að skoða. Eitt lítið dæmi er t.d. eignarhald á þeim hugmyndum sem fæðast í svona vinnu og síðan greiðslur fyrir notkun slíkra hugmynda. Við getum kannske sett þetta mál fram á sem einfaldast- an hátt þannig að opinber starfsmaður, sem er í vinnu hjá Raunvísindastofnun, hefur starfað hjá þeirri opinbem stofnun alla sína vísindatíð, hefur aflað allra sinna tækja fyrir opinbert fé og svo dettur hann skyndilega niður á að uppgötva eitthvað sem er mikilla peninga virði. Þá spyrja menn: Hver á þessa hugmynd? Hver á að njóta arðs af notkun 12 Stúdentablaðið

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.