Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Page 13

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Page 13
hennar? Að hve miklu leyti á arðurinn að vera hans persónulega og að hve miklu leyti á arðurinn að falla í skaut þeirra stofnunar sem hefur gert honum kleift að skapa þetta? Mér er kunnugt um — en hef því miður ekki haft tíma til að fletta upp í gögnum mínum — að bara þetta tiltekna atriði hefur orðið til- efni mikilla umræðna í sambandi við líftækni erlendis sem er eitt af þeim nýju sviðum þar sem þetta verður skyndilega áþreifanlegt vandamál. Stofnanir, sem alveg fram á síð- ustu misseri hafa verið kennslu- og rann- sóknastofnanir — í þeim skilningi að þar hafa menn kannski sinnt þekkingarleit þekk- ingarleitarinnar vegna og aldrei dottið í hug að auðgast af því sjálfir á einhvern hátt — komast í þá aðstöðu með auknum samskipt- um við atvinnulífið að hugmyndir í greinum eins og líffræði, sem hingað til hefur ekki ver- ið beinlínis tengd því að auðgast sérstaklega, geta skyndilega orðið mjög arðbærar. Hugs- anlega þyrfti að setja sérstaka löggjöf eða reglugerð um þátttöku eða stöðu opinberra stofnana og opinberra starfsmanna í sam- bandi við þetta.“ Aflar Háskólanum f jár Hjörleifur Guttormsson, Alþýðubandalagi gerði að umtalsefni, að engar kostnaðaráætl- anir fylgdu með frumvarpinu og taldi þing- maðurinn það vísbendingu um að hugmynd- irnar um þróunarmiðstöðina væru lítt mót- aðar. Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráð- herra, svaraði Hjörleifi Guttormssyni og benti á að frumvarpið væri flutt til að afla Háskólanum fjár, en ekki til að valda honum útgjöldum. Hve mikil fjáröflunin gæti orðið sagði ráðherra fara eftir lögmáli framboðs og eftirspurnar. Þá sagði Ragnhildur Helga- dóttir: „Ég held að menn séu á einu máli um að sú heimild, sem þetta frumvarp mun veita ef að lögum verður, felur í sér miklu rýmri mögu- leika en nú eru til að selja verkefni út í atvinnu- lífið. Hún getur líka þess vegna rennt stoðum undir meiri grunnrannsóknir í Háskólanum, en þær eru dýrar. Þær skila oft ekki árangri fyrr en eftir alllangan tíma en eru allt að einu undirstaða allrar framþróunar í þekkingu á þeim sviðum sem stunduð eru í Háskólanum Þetta getur orðið, að því er ég tel, mjög mikilvægt spor til að virkja betur þann auð sem íslensku þjóðfélagi stendur til boða að nýta og geymdur er í Háskóla Islands og stofnunum hans. Eins og ég hef áður nefnt nú nýlega á þingi, þegar til umfjöllunar var tillaga um tengingu atvinnulífs og fræðslu- kerfis, er Háskóli íslands vel staddur að því leyti til að þar eru menn með mjög fjölbreytta þekkingu frá ýmsum albestu menntastofnun- um heimsins. Ég held að þarna séu möguleik- ar sem við eigum og verðum að nýta betur til að byggja upp enn árangursríkara atvinnulíf og stuðla að enn verðmætari framleiðslu og vinnslu í landinu. Hv. 4. landsk. þm. nefndi í þessu sambandi sérstaklega vandasamt og flókið svið sem er hugverkaréttur, eins konar höfundarréttur. Þetta er svið sem er í mikilli þróun víða um heim og það atriði má náttúrlega ekki verða til þess að þetta mál vefjist fyrir mönnum. Þær þjóðir, sem við eigum í samkeppni við, hafa rekið slíka starfsemi með miklum og verðmætum árangri án þess að reglumar um hugverkaréttinn væri orðnar ýkja rækilegar og skýrar. Það breytir ekki því að alveg rétt var að vekja athygli á þessu máli. Það er eitt af því sem vafalaust kemur til skoðunar og á e.t.v. eftir að auka áhuga manna á þessu sviði og hafa áhrif líka á þau umsvif sem verða í atvinnulífinu. Ég vil enn fremur taka fram að þegar nefnt er í frumvarpinu þróunarmiðstöð er átt við eins konar þjónustuskrifstofu til að greiða fyrir tengslum Háskólans við atvinnu- lífið.Þarereinungisumheimildaðræða.Fyrir- komulag allt verður auðvitað nánar ákveðið af Háskólanum sjálfum innan reglna hinna al- mennulaga." „Ráðgjafar við hirðir“ Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðubanda- lagi, sagði að óneitanlega hlytu að vakna upp spurningar í hugum manna og þá einkanlega hvernig þeim kostnaði verði mætt sem tíma- bundið hlytust af þátttöku Háskólans í hinni nýju stofnun. Benti hann í þessu sambandi á slæman fjárhag skólans og vitnaði í ummæli menntamálaráðherra því til staðfestingar. Sagðist Steingrímur vera annarrar skoðunar en ráðherra og væri það sitt mat að Háskól- inn þyrfi eitthvert fjármagn til að leggja í starfsemi af þessu tagi, a.m.k. til að byrja með. Til að enda þessa frásögn frá umræðum í neðri deild Alþingis er ekki úr vegi að víkja að upphafsorðum Jóns Baldvins Hannibals- sonar, en hann talaði síðastur áður en frum- varpið var afgreitt til 2. umræðu og til menntamálanefndar: „Herra forseti. Fyrir nokkrum vikum síð- an lét þekktur þýskur vísindamaður í ljós þá skoðun að ef fram færi sem horfði væri það mjög trúlegt að árið 2000 væru þegnar Vest- ur-Evrópu einkun hafðir með í ráðum við hirðir framtíðarstórvelda, svo sem Banda- ríkjanna, Japan, margra Austur-Asíuþjóða, til þess að segja ráðamönnum til um hvað væri hæfilegt hitastig á rauðvíni við veislur. Ríki Vestur-Evrópu eru augljóslega að drag- ast svo aftur úr, ekki fyrst og fremst í fræði- legum vísindarannsóknum heldur í hagnýt- ingu á niðurstöðum vísindalegra rannsókna í iðnaðarstarfsemi, og reyndar ekki aðeins í iðnaðarstarfsemi heldur í allri praktískri hag- nýtingu í atvinnu- og viðskiptastarfi, að menn hafa af því stórar áhyggjur að fyrir- sjáanlegt sé að lífskjör Vestur-Evrópubúa muni engan veginn halda í við kjaraþróun annarra og gróskumeiri ríkja í heiminum." Skilningur að glæðast Ljóst er af þeim umræðum sem urðu í báðum þingdeildum um frumvarp til breyt- inga á lögum um Háskóla íslands, að skiln- ingur stjómmálamanna á hlutverki og mikil- vægi Háskóla íslands er mjög að glæðast og er það vel. Hins vegar hefur skilningurinn ekki náð það langt að nægilegt fjármagn renni til skólans. Vegna þessa hlýtur það að verða eitt aðalverkefni háskólayfirvalda og forustumanna stúdenta að leiða stjórnmála- mönnum fyrir sjónir hvaða afleiðingar léleg- ur fjárhagur hefur á starfsemi Háskólans. En það dugar skammt að auka skilning og velvilja þingmanna það verður að vinna markvisst að því að sama hjá almenningi — launþegum og atvinnurekendum. I þessu sambandi er fulltrúum stúdenta í Stúdenta- ráði hollt að minnast þess að þeir eru andlit skólans út á við. Þegar þetta er ritað hefur Stúdentaráð ekki enn fjallað um frumvarp menntamálaráð- herra, en að flestra dómi er frumvarpið til þess fallið, verði það að lögum, að bæta hag Háskól- ans, sé rétt á spilunum haldið. Fylgiskjal Um samstarf háskóla við fyrirtæki og sveitarfélög. (Meginefni greinar eftir dr. Guðmund Magn- ússon, háskólarektor, er birtist í ritinu Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins 1984.) í kjölfar olíukreppunnar uppúr 1970 og minnkandi framleiðni í iðnaði varð fyrirtækj- um enn ljósara en áður hve nauðsynlegt er að hafa gott samstarf við háskóla og aðrar rannsóknarstofnanir ef takast á að keppa á alþjóðamarkaði á sviði hátækniiðnaðar. Einnig hafa sveitarfélög lagt sitt af mörkum til að efla samvinnu af þessu tagi í því skyni að auka tekjur og atvinnu. Segja má að við allflesta stærri skóla í Bandaríkjunum séu komnar tækniþróunarmiðstöðvar. Sömu sögu er að segja um Evrópu. Sérstaklega í Bretlandi og á Norðurlöndum hafa risið „vís- indagarðar". Það er því ekki furða að þessi mál séu til umræðu hér á Islandi um þessar mundir og að háskólinn, fyrirtæki og Reykja- víkurborg velti fyrir sér hvemig megi efla rannsóknir og þróunarstarfsemi í tengslum við Háskóla íslands. Menntun háskólakennara í Árbók Háskóla íslands fyrir háskólaárið 1980—1981 er að finna skrá er sýnir mennt- un kennara við háskólann eftir stúdentspróf. Þar kemur berlega í ljós hve fjölþætt það undirbúningsstarf er sem menn hafa lagt af mörkum til þess að gera sig hæfa til háskóla- kennslu og rannsókna. Þar kemur t.d. fram að 91 af 230 kennurum skólans hefur dokt- orspróf frá 42 mismunandi háskólum, og það yfirleitt þeim bestu í heiminum á þeirra sviði. Það er því augljóst að við háskólann er sam- ankominn mmikill þekkingarforði sem klaufaskapur er að ríkið og Reykjavíkurborg nýti ekki sem best til rannsókna á sviði nýj- unga og tækni. Stúdentablaðið 13

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.