Stúdentablaðið - 01.03.1985, Side 14
Skipting tekna Háskóla íslands og
rannsóknarstafsemi
Eins og kunnugt er nýtur háskólinn þess
að hafa Happdrætti Háskóla íslands að
bakhjarli. Hann fær 80% af tekjuafgangi
þess en 20% (eða andvirði þeirra) renna til
annarrar rannsóknarstarfsemi í landinu.
Lætur nærri að 15% af tekjum H.í. komi frá
happdrættinu, 80% úr ríkissjóði og 5% eru
þjónustutekjur. Eru þá ekki taldar með tekj-
ur Háskólabíós og Reykjavíkurapóteks sem
háskólinn rekur. Reyndar er þessi mikli fyrir-
tækjarekstur óvenjulegur á evrópska vísu.
Sé borið saman við aðra skóla er skiptinging
við Tækniháskólann í Stokkhólmi sú að 67%
tekna koma á fjárlögum, 28% frá rannsókn-
arráðum og 5% eru þjónustutekjur. Við
Minnesotaháskóla er '/3 tekna frá fylkinu,
annar þriðjungur frá alríkisstjórninni (mest
samkvæmt rannsóknarsamningum) en af-
gangurinn er skólagjöld og ýmsar aðrar
tekjur.
Svo við hverfum aftur til íslands þá eru að
sjálfsögðu í gangi fjölmörg rannsóknarverk-
efni og þarf ekki annað en líta á Arbók Há-
skóla íslands og ársskýrslur stofnana hans
til að sannfærast um það. Tekjur af útseldri
þjónustu eru mestar af Reiknistofnun há-
skólans en um helmingur tekna hennar er frá
utanskólaaðilum en síðan frá stofnunum í
verkfræði- og raunvísindadeild og lækna-
deild. Raunvísindastofnun háskólans hefur
sérstakan fjárhag og þar eru rannsóknir á
tæknisviðinu lengra komnar og fjölþættari
en í hinni ungu Verkfræðistofnun. Rétt er að
vekja hér athygli á því hvemig fjárveitingum
til rannsókna á íslandi er háttað. Arið 1981 er
talið að 76,3% af fénu hafi komið frá opinber-
um aðilum, 19,4% frá einkafyrirtækjum og
4,3% frá erlendum aðilum. Jafnframt er talið
að það ár hafi 86,8% af rannsóknum verið
framkvæmd af opinberum stofnunum (þar
með töldum æðri menntastofnunum). Hlutur
hins opinbera er því miklu meiri hér á landi
en annarsstaðar. Er því ekki óeðlilegt að leit-
að sé leiða til þess að virkja fyrirtækin meira
en áður til beinnar þátttöku í rannsóknar-
starfi og þróun tækninýjunga.
Nokkur dæmi um hvað er að gerast
annars staðar
Aðstæður eru á einhvem hátt sérstakar í
hverju landi jafnvel við hvem einstakan há-
skóla og því hafa verið famar margar mis-
munandi leiðir til að efla rannsóknir og at-
vinnulíf. M.a. er væntanleg skýrsla frá
OECD þar sem dæmi um mismunandi sam-
vinnu em rakin. Það er ekki unnt að gefa ein-
hverja ákveðna formúlu fyrir því hvemig á
að stofna vel heppnuð fyrirtæki og græða á
nýjungum. Það virðist þó að saman verði að
fara nálægð við góðan háskóla á tæknisvið-
inu, verkkunnátta, markaðsþekking, dirfska
og áhættufé. Þekktustu dæmin sem nú jafn-
vel em orðin klassísk em frá Silicon Valley
kringum Stanford-háskólann á San Fran-
siscosvæðinu og „Vegur 126“ nálægt
Massachusetts Institute of Technology
(MIT) í Boston og Cambridge á Nýja Eng-
landi í Bandaríkjunum. í Evrópu má einnig
nefna Cambridge í Englandi, Kista nálægt
Tækniháskólanum í Stokkhólmi, fyrirtæki í
kringum Chalmers tækniháskóla í Gauta-
borg, Uleáborg í Norður-Finnlandi. Að því er
varðar samstarf milli háskóla og sveitarfé-
laga em mér efst í huga vísindagarðar í Bret-
landi og það samstarf milli háskóla og sveit-
arfélaga sem nú er í gangi á Norðurlöndum
og er þar einna nýjast Idéon í Lundi þar sem
ýmis stórfyrirtæki hafa ákveðið að reisa
byggingar og verja fé til rannsóknarstarf-
semi.
Rétt er að greina þetta frá því sem ég vildi
nefna þróunarmiðstöðvar við háskólana
sjálfan eins og SINTEF í þrándheimi sem er
eins konar þróunarfyrirtæki í eigu háskóla,
iðnaðarsamtaka og rikisins.
Samanburður á Massachusetts og
Svíþjóð
Svo vili til að nýlega var gerður saman-
burður á þróun hátækniiðnaðar í Massa-
chusetts í Bandaríkjunum annars vegar og í
Svíþjóð hins vegar. I því skyni að reyna að
einangra þær forsendur sem stuðlað gætu að
framfömm á þessu sviði ætla ég að fara um
þetta nokkmm orðum Ástæðan fyrir því að
Massachusetts var valið til samanburðar við
Svíþjóð er sú að fólksfjöldi er svipaður.
Áþekkur fjöldi starfsmanna er í tækniiðnaði,
um 250 þús. Á báðum stöðum em laun til-
tölulega há, menntastig hátt o.s.frv. I ljós
kcm að erfitt var að finna einhverja tiltekna
gerð fyrirtækis sem var líkleg til þess að
verða ofan á eða undir. Þau atriði sem virtust
mestu máli skipta vom víðfeðm stjómunar-
þekking, þ.e. kunnátta bæði á markaðssvið-
inu og tæknisviðinu, svo og aðgangur að
áhættufé. Almenna reglan er sú að það em
nýju fyrirtækin sem em í fararbroddi með
nýja tækni og hugmyndir þótt stórfyrirtækin
kaupi þau ósjaldan upp síðar. Það gæti að
vísu brenglað tölumar að hugvitsmenn sem
starfað hafa við stórfyrirtækin hverfi á braut
og stofni sín eigin fyrirtæki. Bandarísku fyr-
irtækin höfðu meira fé milli handanna í byrj-
un og fjármagnsmarkaður er þar virkari en í
Svíþjóð. Hins vegar gegndu stórfyrirtækin í
Svíþjóð því hlutverki að útvega minni fyrir-
tækjum fé með því að ráða þau sem undir
verktaka. í Massachusetts þekktu allir alla
en það kom mér á óvart að í Svíþjóð vissi
einn ekki hvað annar var að gera á sama
sviði. Nálægð við tækniháskóla skipti miklu
máli báðum megin Atlantshafsins. Má í því
sambandi nefna að af hverjum 10 nýjungum
komu sex hugmyndir frá kaupendum, 3 frá
háskólunum og 1 — 2 annars staðar frá.
Háskóli Islands og Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg veitti Háskóla Islands
gífurlegan styrk með hinni höfðinglegu gjöf
háskólalóðar á 50 ára afmæli hans 1961. Það
er þó fyrst nýlega að formlegt samstarf við
Reykjavíkurborg hefur hafist með því að há-
skólinn og Reykjavíkurborg hafa ráðið sér
starfsmann sameiginlega til þess að vinna að
eflingu hátækniiðnaðar á Reykjavíkursvæð-
inu. Sömuleiðis var tekið tillit til þess við
samninga háskólans, ríkisins og Reykjavík-
urborgar um framtiðarafnot af Keldnaholt-
inu að þar gætu risið stofnanir og fyrirtæki
sem hefðu hag af nálægð við háskólann og
rannsóknarstofnanir atvinnuveganna á
Keldnaholti.
Þróunarmiðstöð Háskóla íslands og
fyrirtæki í tengslum við hana.
I Háskóla Islands er nú verið að vinna að
fjölda áhugaverðra þróunarhugmynda á
sviði rafeindatækni, hugbúnaður og líftækni
o.fl. sem geta leitt til framleiðslu á nýjum há-
þróuðum iðnaðarvörum til sölu heima og er-
lendis. Á fjölmörgum tæknisviðum eru ekki
starfandi á Íslandi fyrirtæki sem geta not-
fært sér og styrkt rannsóknarstarfsemi í
landinu. Það er áhugavert að stuðla að stofn-
un slíkra fyrirtækja svipað og gert hefur ver-
ið erlendis. Einnig má geta þess að margir
efnilegir íslendingar eru nú í framhaldsnámi
erlendis og er mikilvægt að þeir nýtist vel
þegar heim kemur að námi loknu. Auk þess
hefur ekki farið fram hjá neinum að þriðji
hver íslendingur hefur nú nám í Háskóla ís-
lands og þann mannauð þarf að virkja ekki
síður en fallvötnin, jarðhitann, sjávarafla og
landbúnaðarvörur.
Þjónusturannsóknir og tilraunir í háskól-
anum eru orðnar það fjölþættar að nauðsyn-
legt er að beina þeim í skipulegan farveg. Hin
opna frjálsa rannsóknarstarfsemi við há-
skóla hentar heldur ekki alltaf þegar komið er
út í harða samkeppni þar sem vinna þarf
hratt, með leynd og fyrir áhættufé. Einnig
þarf að leysa ýmis flókin höfundarréttarmál
jafnframt því sem virkja þarf einstaklings-
framtakið í rannsóknum og framleiðslu.
Eftir viðræður við menn innan og utan
háskólans er ég um þessar mundir að vinna
að stofnun þróunarmiðstöðvar eða þróunar-
fyrirtækis Háskóla íslands. Markmiðið yrði
að efla hagnýtingu rannsókna við háskólann,
nýsköpun og vöruþróun á sviði hátækniiðn-
aðar með því að auðvelda starfsmönnum
háskólans að koma hugmyndum sínum í
framkvæmd með bættri starfsaðstöðu og
starfsliði með ráðgjöf á sviði markaðsmála
og nægilegu áhættufé til að stunda mark-
vissa og öfluga þróunarstarfsemi; að efla
nýsköpun og fjölbreytni í íslensku atvinnulífi
og stuðla að eflingu háþróaðra iðngreina hér-
lendis til að fjölga atvinnutækifærum fyrir
háskólamenntaða menn og aðra þegna
þjóðfélagsins; að efla möguleika á áhuga-
verðum störfum við háskólann fyrir íslenska
námsmenn þegar þeir koma aftur heim frá
sérfræðinámi erlendis. Fyrirtækið heyrði
undir háskólaráð en væri sameign háskól-
ans, fyrirtækja og fjármálastofnana. Það
starfaði á viðskiptalegum grundvelli eftir
deildum og annaðist samninga við aðila inn-
an og utan skólans. Það yrði því eins konar
umsýsluaðili sem ekki framkvæmdi rann-
sóknir sjálft nema þá að litlu leyti. Leiði
þróunarstarfsemin til söluhæfra hugmynda
14
Stúdentablaðið