Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Síða 15

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Síða 15
gæti það síður leitt til stofnunar fyrirtækja samkvæmt almennri löggjöf þar sem eignar- aðild gæti verið með ýmsum hætti þ.e.a.s. gæti verið eign háskóla og fyrirtækja eða þá einstakra háskólakennara í samvinnu við ýmsa aðila eða jafnvel alfarið í eigu utan- skólaaðila. Ég tel heppilegast m.k. á þessu stigi að ríki og Reykjavíkurborg eigi ekki beina aðild að þróunarmiðstöðinni. Hins veg- ar hlýtur fé og aðstaða að koma frá þeim með ýmsum hætti. Ég bind miklar vonir við sam- starf af þessu tagi og trúi því að með því sé unnt að flýta þróun hugmynda um mörg ár sem út af fyrir sig er yfirleitt bráðnauðsyn- legt í þeirri hörðu samkeppni sem ríkir á flestum sviðum. Sömuleiðis bind ég miklar vonir við að við getum haslað okkur völl á sviði ýmiss konar hugbúnaðar. I slíkum til- vikum skiptir afskekkt lega landsins ekki miklu máli. Svo vill til að sala hugbúnaðar á .alþjóðamarkaði vex nú um 40% á ári þegar sala á hráefni stendur í stað eða jafnvel dregst saman. Einnig treysti ég því að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í efnahags- málum og ráðgerðar eru til eflingar atvinnu- lífs í landinu verði til styrktar samstarfi milli háskóla og fyrirtækja. Á ég þar við hjöðnum verðbólgu og hækkun raunvaxta sem leiðir til meiri framboðs á sparifé og áhættufé svo og þær breytingar á hlutafjárlöggjöf og lög- um um viðskiptabanka sem væntanlegar eru. Allar tilraunir koma ekki til með að tak- ast — það væru þá ekki tilraunir. En höfum við efni á að gera þær ekki? Frétt frá menntamálaráðuneytinu Styrkir til háskólanáms í Portúgal Portúgölsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm styrki til háskólanáms í Portúgal háskólaárið 1985—86. Ekki er vitað fyrirfram, hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut Islendinga. Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til framhalds- náms í háskóla. — Umsóknareyðublöð fást í sendiráði Portúgals í Ósló, utanáskrift: Ambassade du Portugal, Josefines Gate 37, Oslo — 2, Norge, og þangað ber að senda umsóknir fyrir 1. júní n.k. Menntamálaráðuneytið 16. febrúarl985. Styrkir til háskólanáms í Frakklandi Frönsk stjórnvöld bjóða fram tíu styrki handa íslendingum til háskólanáms í Frakk- landi á skólaárinu 1985—86. Um er að ræða eftirtaldar námsgreinar: Stærðfræði og raunvísindi, hagfræði, húsagerðarlist, tón- list, leikhúsfræði, myndlist, kvikmyndagerð, bókmenntir og málvísindi. Umsóknarfrestur er til 28. mars n.k. Umsóknum um styrk til náms í myndlist skulu fylgja myndir af verk- um umsækjenda. — Umsóknum, ásamt staðfestum afritum af prófskírteinum og meðmaelum, skal skila til menntamálaráðu- neytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik. — Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 26. febrúar 1985. Um rannsóknastyrki frá J.E. Fogarty Intemational Reserch Foundation. J.E. Fogarty-stofnunin í Bandaríkjunum býður fram styrki handa erlendum vísinda- mönnum til rannsóknastarfa við vísinda- stofnanir í Bandaríkjunum. Styrkir þessir eru boðnir fram á alþjóðavettvangi til rann- sókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina (biomedical science). hver styrkur er veittur til 6 mánaða eða 1 árs á skólaárinu 1986-87. Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa umsækjendur að leggja fram rann- sóknaáætlun í samráði við stofnun þá í Bandaríkjunum sem þeir hyggjast starfa við. Nánari upplýsingar um styrki þessa veitir Atli Dagbjartsson, læknir, barnadeild Land- spítalans, (s. 29000.) — Umsóknir þurfa að hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 20. júlí n.k. Menntamálaráðuneytið 27. febrúar 1985. Kjördeildir Kosið verður á kjördag á eftirfarandi stöðum: 1. kjördeild: 2. 3. 4. 5. 6. Heimspekideild í Hliðarsal F.S. Lyfjafræði, Læknisfræði 1. ár og jarðfræðiskor í Hliðarsal F.S. Félagsvísindadeild í Hugvísinda- húsi. 2., 3. og 4. ár viðskiptafræði í Hugvísindahúsi. Viðskiptafræði 1. ár og guðfræði í Aðalbyggingu. Lagadeild í Lögbergi 3. hæð. 7. 8. 9. 10. Verkfræði og raunvísindadeild (— líffr. ogjarðfr.jí VRII. Tannlæknadeild, hjúkrunar- fræði og læknisfræði 3., 4., 5. og 6. ár í Hjúkrunarskóla Isl. 2. hæð. Sjúkraþjálfun í Vitastíg 8, fundarherbergi. Líffræðiskor og læknisfræði 2. ár Grensásvegi 11. Kjördeildir verða opnar frá kl. 9:00 til kl. 18:00 ákjördag. Munið framboðsfundinn Miðvikudaginn 13. mars kl. 20 í Hátíðarsalnum. Stúdentablaðið 15

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.