Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Page 18

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Page 18
MEIRIHLUTINN Þegar á móti blæs er mikilvægt að Stúdentaráð sé klettur í hagsmunabaráttu stúdenta. Öflugt Stúdentaráð er líka forsena þess að nýir sigrar vinnist. til þess að þetta sé mögulegt er mikilvægt að meirihluti Stúdentaráðs sé sterkur og samstíga. Núverandi meirihluti er því miður hvorki sterkur og samstíga. Það hefur aldrei gerst s.l. ár að allir Stúdentaráðsmeðlimir meiri- hlutans hafi staðið saman við atkvæða- greiðslur í ráðinu (nema í málum sem allir voru sammála um). Meirihlutinn klofnaði i hverju einasta hagsmunamáli stúdenta. Það er nokkuð um góð fyrirheit í mál- efnasamningi meirihlutans. En þrátt fyrir að formaður Stúdentaráðs hafi sagt að hann hafi ekkert að gera, þá hefur ekki verið haft fyrir því að minnast á mörg mál, hvað þá að vinna að þeim eins og lofað var. Dæmi um slík mál eru: sáttadómur, sumarönn, náms- kynning, Háskólaforlag og dagvistarmál. í öðrum málum hafa efndirnar orðið þver- öfugar á við það sem lofað var. Ritstjórinn átti að vera hlutlaus, félagsstarfsemi stúd- enta átti að hafa forgang að húsnæði Félags- stofnunar. Þessi loforð hefur meirihlutinn þverbrotið. Alvarlegust eru þó lánamálin. Þar var lof- að að standa vörð um réttindi stúdenta og sérstaklega minnst á fyrsta árs nema í því sambandi. Talað var um samstarfsnefnd menntamálaráðuneytis og námsmanna. Við skulum láta fyrsta árs nemum eftir að dæma um efndirnar á þessum loforðum. Stúdentar! Ef þið teljið hagsmunum ykkar best borgið í höndum rótklofins og sundur- virks meirihluta í Stúdentaráði, sem ekki hef- ur dug til að minnast á loforð sín og því síður afl til að framkvæma þau, þá c.u framboð Vöku og umba það sem þú leitar að. Ef þú kærir þig ekki um slíka stjóm en vilt þess í stað samhent og baráttuglatt Stúd- entaráð, þá er Félag vinstri manna eini kost- urinn. FRJÁLSHYGGJA VÖKU Árið 1935 voru íslenskar hreyfingar nasista og kommúnista öflugur í H.í. Andstæðingar þessara afla gerðu þá með sér félagsskap sem enn er við líði: Vöku félag lýðræðissinnaðra stúdenta og var meginmarkmið selskapsins að berjast gegn öfgaöflunum. 50 árum síðar geta flestir verið sammála um að frelsi og lýðræði stafi ekki hætti af þessum öflum a.m.k. hér á landi. Það má því kalla kaldhæðni örlaganna að í dag blómstra öfgamar í Vöku, því félagi sem var stofnað gegn öfgunum. Við höfum kosið að kalla þessa stefnu frjálshyggjufasisma, því hún er bæði öfgakennd og mannfjandsamleg. Stefna, sem vill veg auðsins sem mestan, án tillits til jöfnuðar, frelsis og lýðræðis, á ekkert erindi í S.H.Í: Vaka vill gefa aðild að S.H.I. frjálsa og skerða það fjármagn sem það hefur til að standa vörð um hagsmuni stúdenta. Vaka vill gefa áskrift að Stúdentablaðinu frjálsa og veikja þannig málgagn stúdenta. Vaka fjár- magnar hinsvegar húsnæðiskaup og starf- semi sína með peningum frá fyrirtækjum hér í borg, með peningum sem fyrirtækin hafa rænt frá launþegum. Þetta kallar Vaka frelsi en ófrelsi að stúdentar fjármagni sjálfir starfsemi og baráttu. Stúdentar, það verður að koma í veg fyrir valdatöku frjálshyggjunar í Stúdentaráði. Þið gerið það ekki með því að kjósa þá sem færa Vökumönnum völdin. Eina leiðin til að koma í veg fyrir að slíkt slys hendi er öflugt Félag vinstri manna. Munið það í komandi kosningum. 18 Stúdentablaðið

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.