Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 20

Stúdentablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 20
Manngildissinnaðir stúdentar 1. KjartanJóns- son Heimspeki- deild 2. Ragnheiður Sigurðardóttir Verkfræði- og raunv.deild 3. Sveinn Baldursson Tölvunarfræði 4. Jónalngibjörg Jónsdóttir Hjúkr- unarfræði ' ir ? 5. Sigurður Grét- arsson Viðskipta- fræði l m .,Æm 6. Valdimar Tryggvason Félagsfræði 7. Sigurður Bragason Félags- fræði Nýrlisti Nú komum við fram með nýjan lista, lista Manngildissinnaðra stúdenta sem, eins og allir hinir, ætlar að breyta og bæta. Af hverju að breyta? Er ekki allt gott og blessað eins og það er? Við fæðumst, förum í skóla, í vinnu, á eftirlaun og drepumst svo. Étum fleiri tonn, látum frá okkur fleiri tonn. Er þetta ekki bara ágætt eins og þetta er? Háskólinn er verk- smiðja sem framleiðir apparöt fyrir kerfis- maskínuna, stúdentar eru meira og minna óvirkir og stúdentaráð situr fundi og sam- þykkir ályktanir um eitthvað sem skiptir litlu máli og gætu alveg eins verið að bródera eða eitthvað annað sniðugt. Er þetta ekki bara kósí og kammó, eigum við nokkuð að fara að breyta, þá þurfum við að fara að hugsa sjálf- stætt, kannski í fyrsta sinn síðan við byrjuð- um í skóla? Er þetta ekki til allt of mikils mælst? Spurningin er kannski um það hvort við viljum haga okkur eins og manneskjur eða ekki, því hvað er að vera maður? Er það ekki að vera virkur og skapandi, stöðugt endurmetandi og endurbætandi sitt umhverfi. Tölva getur geymt upplýsingar og látið þær frá sér við áreiti en það er það sem flestir stúdentar virðast vera að gera enda býður umhverfi þeirra ekki upp á mikið meira. Við höfum hugmynd um að þetta gæti verið allt öðruvísi og að það sé hægt að gera eitthvað og því bjóðum við fram nýjan lista, lista Manngildissinnaðra stúdenta. Munuráokkur og hinum Grundvallarmismunur á manngildis- sinnum og öðrum er að manngildissinnar leggja til grundvallar að maðurinn og velferð hans sé númer eitt en hinir miða við fjár- magn og kerfisbreytingar. Þeir styðjast við kenningar sem urðu til í öðrum þjóðfélags- raunveruleika, í þjóðfélagi þar sem einokun var algjör hvert sem litið var, á peningum og valdi. Þar var litið á manninn sem fram- leiðsluvél, tannhjól í apparati sem var hægt að færa til og ráðskast með að vild og skóla- kerfið var fyrst og fremst til þess að kenna fólki aga og hlýðni. Á þessum tíma var mikil virkni og barátta í kringum þessar kenn- ingar og fylgdi þeim stórt stökk í þróunar- sögu mannsins. þessar kenningar hafa í tímans rás tapað því megininntaki að fjár- magnið og kerfisbreytingamar eru fyrir manninn og velferð hans en ekki takmark í sjálfu sér. Við sjáum afleiðingamar út um allt, menntakerfi sem er einskonar sambland af grísku menntakerfi, dönsku embættis- mannakerfi og iðnbyltingarfæribandafyrir- komulagi (þrátt fyrir að iðnaðarþjóðfélag hafi aldrei verið á íslandi). Hagvöxtur og staða efnahagsmála er notað sem réttlæting fyrir niðurskurði á fjármagni til heilsugæslu og menntamála og mannréttindabrot eins og afnám samningsréttarins er látið viðgangast. Litið er á menntun sem fjárfestingu sem á að skila sér í auknum hagvexti í stað þess að líta á hana sem eitthvað sem tekur mið af ein- staklingnum fyrst og fremst. Þetta kemur í dag er öldin önnur. Þeir sem hafa mikla menntun hafa hana á svo þröngu sviði að þeim er ekkert betur treystandi til að taka ákvarðanir, sem krefjast yfirsýnar, heldur en þeim sem ekki hafa langa skólagöngu að baki. Hér á landi er almenningur það vel upp- lýstur að honum á að vera treystandi til að taka ákvarðamir. Það á ekki að þurfa að hafa vit fyrir mönnum. Auðvitað er ekki hægt að ætlast til þess að allir skipti sér af öllu, því þá gerðu menn lítið annað. En þegar ákvarðanir þarf að taka um mál sem alla varða, þá er það vanvirðing við almenning að láta einungis nokkra fulltrúa ráða. Það þarf nýja hugsun í þetta. Það þarf að vera hægt að komast að því hvað fjöldinn vill á skjótan, hagkvæman og ömggan hátt. Á íslandi er slíkt fyrir- komulag ekki fyrir hendi. Við viljum sjá slíkt skipulag komast á. Tilvalinn vettvangur til að byrja á er einmitt háskólinn. Við gætum notað tölvu(r) háskólans til þess að safna saman upplýsingum frá nemendum. Hún væri notuð sem atkvæða- móttakari. Þannig væri hægt að telja atkvæði á örskotsstund að loknum kjör- fundi. Fyllsta öryggis væri gætt með lykil- orðum sem hver nemandi hefði fyrir sig. Hver nemandi gæti vitanlega aðeins kosið síðast en ekki síst fram sem óhagkvæmt gildismat sem leiðir til vanlíðunar og sjálfs- flótta. Starfsaðferðir okkar munu líka verða öðmvísi þar sem við munum leggja mikla áherslu á að virkja stúdenta til þess að vinna að sínum hagsmunamálum í stað þess að einangra okkur á stúdentaráðsfundum. Það er í þágu lýðræðis að auka virknina og í raun og vem er það eina leiðin til þess að koma því á þar sem það að vera virkur er að hafa völd og án virkni verður bara fulltrúaveldi áfram. „Hægri“ og „vinstri" skilgreiningar em tíma- skekkja og eins er með „umbætur" á því gamla, það er eins og verið sé að endur- bæta gufuvélina endalaust. einu sinni um hvert mál. Nemendum væri frjálst að fylgjast með tölvukeyrslunni þannig að engin brögð væri í tafli við tölvu- talninguna og að ekki væri hægt að komast að því hvað hver hefði kosið. Um hvað ætti svo að kjósa? Sjálfsagt er að öll stærri mál séu lögð fyrir stúdenta. Einnig væri hægt að leggja yfirlýsingar um ýmis þjóðmál fyrir þá. Þannig væri t.d. hægt að kanna afstöðu stúdenta til lánamála, fjár- veitinga til háskólans, útvarpsreksturs, hús- næðismála og kjaramála eða annarra mála sem ofarlega væm á baugi hverju sinni. Hugsa mætti sér fundi sem hver sem vildi gæti boðað til, þar sem málefnin væm lögð fyrir stúdenta svo að þeir gætu tekið afstöðu til þeirra. Þannig væri það tryggt að skoðanir annarra en stúdentaráðsmanna kæmust að til atkvæðagreiðslu. Hvers vegna hafa hinir listarnir ekki framkvæmt hugmyndir í líkingu við þessa? Skortir þá hugmyndaflug? Telja þeir slíkar hugmyndir fáranlegar? Þora þeir því ekki af ótta við pabba- og mömmuflokkana á Alþingi? Eða vilja þeir kannski bara fá að ráða áfram í friði. Því verða þeir sjálfir að svara, en hitt er víst að við viljum, þomm og getum. Tækni íþágu lýðræðis Hinir listamir vilja væntanlega allir láta kenna sig við lýðræði. Gallinn er bara sá að þeirra lýðræði er það sem oft er kallað fulltrúalýðræði. Slíkt fyrirkomulag hentaði ágætlega þegar þorri fólks var tiltölulega illa upplýstur miðað við þá fulltrúa sem þá fóm með völdin. 20 Stúdentablaðið

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.