Stúdentablaðið - 01.03.1985, Blaðsíða 23
Sjálfstæður Háskóli
Aukin áhrif nemenda
— Stúdentum verði fjölgað í
Háskólaráði og deildarráðum
svo að kennarar hafi ekki þá ein-
okunaraðstöðu sem þeir hafa
þar nú.
— Nemendur fái að hafa
meira að segja um nám sitt. Þeir
ráði meiru um alla námstilhögun
og einstakar námsgreinar.
Lánamál
— Allir nemendur hafi rétt til
þess að fá lán úr lánasjóði, að
fyrsta árs nemum meðtöldum.
Þannig gildi sömu reglur um þá
og aðra nemendur.
Fjármál
— í gegnum tíðina hefur
skortur á fjármagni staðið há-
skólanum fyrir þrifum. Mikið
hefur verið rifist en minna
framkvæmt til þess bæta þar út
málum. Afstaða fólks í landinu
og þá sérstaklega ráðamanna
hlýtur að hafa sitt að segja um
þessi mál og er um það fjallað
hér á undan. Onnur hlið á
málinu er pólitísk, þ.e.a.s. það er
ekkert skrítið þótt háskólanum
sé þröngt skorinn stakkur í fjár-
veitingum þegar afborganir og
vextir af erlendum skuldum eru
stærri þáttur í útgjöldum ríkis-
sjóðs en útgjöld vegna
menningarmála, menntamála og
kirkjumála samanlögð. Hags-
munir stúdenta hljóta því að ná
inn á landsmálapólitíkina og
ættu þeir yfirleitt ekki að standa
fyir utan hana heldur taka
afstöðu og virkan þátt í henni.
Ýmislegt
— Mikilóánægjavirðistvera
með pólitískar kosningar í 1.
des. nefnd og leggjum við því til
að skoðanakönnun verði gerð á
meðal stúdenta um hvernig haga
beri skipan í hana.
— Við erum á móti fjölda-
takmörkunum þar sem við lítum
svo á að háskólanám sé eitthvað
fyrir nemendur fyrst og fremst
en ekki eitthvað sem framleiðir
„apparöt" til þess að sinna
þörfum kerfisins. Það er sið-
laust að koma í veg fyrir að
einhver, sem langar til þess að
stunda ákveðið nám geti gert
það, eingöngu vegna þess að
þeir sem eru starfandi í við-
komandi stétt vilja ekki aukið
framboð í stéttinni sem gæti
þýtt lægri tekjur eða vegna þess
að „þarfir kerfisins" eru látnar
ráða.
— Það gefur ekki góðan
vitnisburð að nemendur í æðstu
menntastofnun landsins hafi
gefist upp við rekstur eins
mötuneytis og látið það í
hendur utanaðkomandi aðila.
Mötuneytið ætti skilyrðislaust
að vera í þeirra umsjá.
— Stúdentaráð taki ekki af-
stöðu gagnvart þjóðmálum eða
heimsmálum sem ekki tengjast
þeim beint. Hlutvert stúdenta-
ráðs ætti að vera að efla um-
ræðu um þessi mál og halda
almenna fundi um þau. Það væri
þá fundurinn sem tæki afstöðu
og gæfi út yfirlýsingu gagnvart
viðkomandi máli.
Aukin áhrif nemenda
Stúdentablaðið
23