Stúdentablaðið - 01.12.1987, Page 7
Byggingarsjóður
- Og núna er ný bygging haíin
og það þarf að fjármagna hana.
Hvaða leiðir eru fyrir hendi í
fjármögnun í dag?
- Sú fjármögnun sem stúdentar
þurfa að leggja til er um 45
milljónir króna. Það sem búið er að
fá í dag er eingöngu hluti af
innritunargjöldum stúdenta og
kaup Háskóla íslands á þremur
íbúðum í nýju stúdentagörðunum.
Þessi framlög nema í dag nálega 15
milljónum króna. Ennþá er því
eftir að fjármagna 30 milljónir.
Samkvæmt lögunum um
Félagsstofnun, þ.e. lögum nr. 33 frá
1968, ber Félagstofnun stúdenta
að sjá um byggingaframkvæmdir,
rekstur og eflingu fyrirtækja
stofnunarinnar. Þar er þess getið
að leiðir til þess séu með
innheimtu skráningargjalda af
stúdentum, framlagi úr ríkissjóði,
auk gjafa og annarra Qáröfl-
unarleiða sem tiltækar kunni að
vera.
Það hefur gerst að ríkissjóður
hefur skorið mjög niður sitt
framlag, en á sama tíma hefur
þurft að hækka skráningargjöld.
Það er alveg ljóst að enn meiri
hækkun þeirra nú er illmöguleg og
ósanngjöm.
Þrátt fyrir það að við höfum
ítrekað sótt um hækkun á framlagi
ríkisjóðs, bæði á fasta framlaginu,
sem er reiknað samkvæmt kvóta,
og á framlaginu vegna nýbygg-
ingar, hafa þeir skorið þá upphæð
niöur og framlög sem beðið var um
vegna nýbyggingar hafa verið
þurrkuð út.
- Er þetta þannig í
Q árlagafmmvarpi fyrir næsta ár?
- Vegna fjárlagafmmvarps fyrir
næsta ár sóttum vlð um 5 1/2
milljón vegna reksturs Félags-
stofnunar og 7 milljónir vegna
nýbyggingar. Það er búið skera
framlag vegna nýbyggingar niður í
núll og framlag vegna reksturs,
sem byggt er á nefndaráliti, var
skorið niður í fjórar milljónir. Það
þarf því að fara aðrar leiðir til að
fjármagna þetta.
Þá er sú leið fyrir hendi að láta
reksturinn skila hagnaði og nota
þann hagnað til að byggja Hjóna-
garða. Hingað til hefur stefnan
verið sú hjá Félagsstofnun að hafa
alla þjónustu við stúdenta eins
ódýra og mögulegt er og láta rekst-
urinn skila sér á núlli. Eigi að
viðhalda þeirri stefnu verður því
að leita á önnur mið.
Þá stendur eftir sá möguleiki að
taka skammtímalán með þeim
kostnaði sem því fylgir, eða leita
annara leiða. Það má kannski
segja að vlð séum að leita þeirra,
þegar við leggjum nú af stað með
söfnunarátak vegna nýbygg-
ingarinnar.
■ Skráningargjold S Rlkisframlag
1981 1982 1983 1984 1985 1986
Stúdentablaðið
7