Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 13

Stúdentablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 13
Tölvuvinna endurkasta álíka mikilli birtu. Forðist hvíta eða mjög ljósa veggi og gólf. Forðist að klæöast hvítum eða mjög ljósum fatnaði. Lampar með ristum sem takmarka dreif- ingu birtunnar, valda síður glampa. Þar sem almenn birta má ekki vera sterk, er notuð sérlýsing á handrit og lyklaborð. Tölvuskjár- inn á að vera þar sem ljósgjaflnn speglast ekki í honum. Gangið úr skugga um að ljósið hafi rétt að- fallshom með því að koma litlum spegli fyrir á handriti og lykla- borði. Ljósgjaflnn má ekki sjást í speglinum. Vinnustellingar Ástæður fyrir verkjum í vöövum og liðum, höfuðverk og þreytu er oft að rekja til rangra og einhæfra vinnustellinga. Samfelld vinna viö tölvuskjá í margar klukkustundir er frá vinnutæknilegu sjónarmiði óæskileg vegna einhæfrar líkams- beitingar. Tækjabúnaður og húsgögn sem notuð eru, s.s. skjár, lyklaborð, textagrind, stóll, borð o. fl. eru oft óstillanleg eða hafa mjög takmarkaða stillimöguleika. Þetta skapar einkum vandamál þar sem mishátt fólk þurfa að nota sömu tölvurnar. Algengt er að tækjabúnaður og húsgögn séu ekki rétt stillt. Hvemig má bæta aðstöðuna? Æskilegt er að tölvuskjár og lyklaborð séu aðskilin, svo að hægt sé að stilla þau hvort um sig. Ef svo er ekki, er ráðlegt aö hvíla sig vel á miili. Æskilegt er að hægt sé að stilla hæð skjásins, snúa honum og halla. Einnig þarf aö vera hægt aö færa hann að og frá sér til að fjarlægð frá augum verði rétt. Ef skjárinn hefur góðan stilliútbúnað er hægt að hafa bæði skjá og lyklaborð á sama borði. Þá er hægt að flytja tældn til að vild, en það eykur möguleika á að skipta um vtnnustellingar. Þá er einnig hægt að hagræða tækjunum eftir því í hveiju verkefnin felast. Ef mikið er unnið við skjáinn em skjár og lyklaborð höfð beint fyrir framan notandann. Ef skjárinn er hins vegar lítið notaður getur verið æskilegt að hafa hann til hliðar. Hæð lyklaborðsins ætti ekki að vera meiri en 2 cm mælt við aöra lyklaröð og æskilegt að halli þess sé um 5°. Röng hæð lyklaborös getur valdið óþarfa álagi á herðar, handleggi og úlnliöi. Ef tölur em mikill hluti þess sem er skrifaö, er æskilegt að tölu- lyklamir séu í sérstöku lykaborði sem hægt er að hafa bæði hægra og vinstra megin við aðallyklaborðið. Notið stillanlega textagrind fyrir handrit. Oft er þægilegt að stað- setja grindina svipað og skjáinn; þá þurfa augun ekki að laga sig að mismunandi Qarlægð við lestur af handriti og skjá, og halli hðfuðs er sá sami og þegar horft er á skjáinn (ca. 20°). Hvort textagrindin er höfð hægra eða vinstra megin við skjá- inn eöa fyrir miðju skjás og lykla- Forðisl snúning á hrygg. Vinslri h.andleggur verður fyrir ofálagi. Vinnuhœð of mikil. Axlir dregnar upp. Vinnuhœð of lág. Preytandi fyrir háls- og bakvöðva. Hœð stólsetu of mikil, þrýstingur myndast undir lcerum. Stúdentablaöiö 13

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.