Stúdentablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 15
Jólainnkaup
í jólainnkaup meó
afslóttarkortió
- það borgar sig!
Sjaldan er eins áríöandi og íyrir
jólin að halda utan um aurana sína
og reyna að láta þá endast sem
best. Til þess eru afsláttarkortin
ákaflega heppileg og nauðsynleg.
Sumum finnst að vísu að
afslátturinn sé svo lítill í flestum
tilvikum, að það taki því ekki að
vera að hugsa um hann, síst að
vera að flengjast út um allan bæ
hans vegna. En þetta er rangt.
Sérstaklega verður það Ijóst, þegar
um mikil innkaup er að ræða.
Dæmi um slík mikil innkaup eru
jólainnkaupin. Viö skulum rölta
um bæinn og kynna okkur
möguleikana. Við einbeitum
okkur að innkaupum ájólagjöfum
og jólafatnaði og e.t.v. etnhveiju
smálegu fyrir heimilið, og síöan
innkaupum í jólamatinn. En eitt
þarf þó að minna á: - Þegar
afsláttarkostin eru notuð er
nauðsynlegt að sýna einnig
stúdentaskírteini!
Bamavörur og leikföng
Flestum - a.m.k. þeim okkar sem
eigum böm - verður íyrst fyrir aö
hugsa um að kaupa eitthvað á
bömin fyrir jólin. Við höfum um
margt að velja niðri í bæ. Ein
verslun, BamafataversluninX og Z,
Skólavörðustíg 6 b, veitir 15%
afslátt. NB! Þessi verslun er ný með
afsláttog er ekki á afsláttarkortlnu.
Þijár verslanir veita stúdentum
10% afslátt, Bangsímon, Lauga-
vegi 41, Englaböm, Laugavegi 17,
og Bamabrek, Óðinsgötu 4 (not-
aðar vörur 5%). Ef viö finnum
ekkert í þessum þrem búðum,
skulum við samt ekki gefast upp,
því að tvær verslanir á næstu
grösum veita 5% afslátt. Þær em
Barnafataverslunin Þumalína,
Leifsgötu 32, og Mæörabúðin,
Bankastræti 4.
Flest böm vilja ekki bara mjúka
pakka, heldur em leikföng alltaf
vinsæl. Tómstundahúslö hf.,
Laugavegi 164, veitir stúdentum
10% afslátt, svo að það getur
borgað sig að skreppa þangað, t.d.
ef kaupa þarf gjafir handa
mörgum bömum.
Hljómplðtur
Ef við fæmm okkur aðeins ofar
í aldri, komum vlö að gjöfum fyrir
táninga, unglinga - og reyndar
ýmsa fleiri, nefnilega
hljómplötum. Tbeir aðilar veita
stúdentum 10% afslátt á
hljómplötum. Þeir eru Hljóð-
færahús Reykjavikur hf, Lauga-
vegi 96, Kamabær-hljómplötu-
deild, Austurstræti 22, Laugavegi
66, Glæsibæ, Rauðarárstíg 16, og
Mars, Strandgötu 37 í Hafnarfirði.
Fatnaöur, skór og vefnaöarvara
Föt þarf að kaupa í heilmiklum
mæli fýrir jól, bæði til gjafa og svo
er nauðsynlegt að líta sjálfur
sæmilega út. Mjög margar
verslanir veita stúdentum afslátt,
og er alveg sjálfsagt að reyna að
nota sér hann. öll fyrirtækin veita
10% afslátt, nema tvö Faco. Lauga-
vegi 37, og Geysir, Aðalstræti 2,
Stúdentablaöiö
15