Stúdentablaðið - 01.12.1987, Síða 18
Finnur Ingólfsson
Byggingarsjóöurinn
kominn inn í þingsali
Fimm þingmenn Framsóknarflokks-
ins hafa lagt fram á Alþingi þings-
ályktunartillögu um stofnun bygging-
arsjóðs námsmanna. Flutnings-
mennimir em Finnur Ingólfsson, Páll
Pétursson, Stefán Guðmundsson,
Guöni Ágústsson og Valgerður
Sverrisdóttir. Tillagan hljóðar svo:
“Alþingi ályktar að fela ríkistjóminni
að stofna í samvinnu við námsmanna-
samtökin, þ.e. Stúdentaráð Háskóla
íslands og Bandalag íslenskra
sérskólanema, byggingarsjóð sem hafl
það hlutverk að fjármagna íbúðar-
byggingar fyrir námsmenn. Byggingar-
sjóðurinn verði sjálfstæð stofnun með
sérstakri stjóm og verði í vörslu
Seðlabanka íslands.
Byggingarsjóðnum verði heimilað að
taka lán hjá Byggingarsjóði verka-
manna. Sjóðurinn verði til að byija með
í eigu ríkisins og námsmannasamtak-
anna. Tekjur sjóðsins verði leigutekjur
af húsnæði i eigu sjóðsins og greiði
námsmenn innan námsmannasamtak-
anna ákveðið hlutfall af árlegum
skólagjöldum sínum til byggingar-
sjóðsins. Fyrstu 10 árin greiðir
ríkissjóður árlega þrefalda þá upphæð
til sjóðsins sem námsmenn greiða.
Þegar tekjur sjóðsins standa undir
eigin framlagi sjóðsins við fjármögnun
bygginga aíhendi rikið samtökunum
eignarhlut sinn i sjóðnum."
Úr greinargerð
í greinargerð þeirra flmmmenninga
með tillögunni segir svo:
“Tilgangur þessarar þingsályktunar-
tillögu er að stofnaður verði Bygg-
ingarsjóður námsmanna með eignar-
aðild Stúdentaráðs Háskóla Islands,
Bandalags íslenskra sérskólanema og
ríkissjóðs. Með stofnun þessa
Byggingarsjóðs yrði komið fastri
skipan á húsnæðismál námsmanna í
framtiðinni og þannig leystur sá vandi
sem námsmenn hafa á hveiju hausti
staðið frammi fyrir við útvegun leigu-
húsnæðis.
Með stofnun Byggingarsjóðs má ná
eftirfarandi marluniðum:
1. Framtíðarlausn á húnæðisvanda
námsmanna.
2. Lækkun námskostnaðar nemenda
þar sem leiga í námsmannaíbúðunum
yrði mun ódýrari en á hinum almenna
markaði.
3. Lægri námskostnaðar nemenda
minnkar kröfur námsmanna um
hækkun á framfærslu Lánasjóðs ísl.
námsmanna.
4. Jafna aðstöðu milli landsbyggðar
og höfuðborgar, hvað menntun varðar.
5. Leiguverð á hinum almenna
leigumarkaði á höfuðborgarsvæðinu
mundi lækka sem kæmi þeimhelst til
góða sem þar búa í leiguhúsnæöi.”
Ástæða er til þess að fagna þessu
frumvarpi, og ættu stúdentar að
fylgjast vel með gengi þess á Alþingi.
18
Stúdentablaöið