Fálkinn - 29.09.1928, Síða 9
F Á L K I N N
9
Hinn frægi landkönnuður Sven Hedin hefir farið fram á að fá
fjárstgrk úr rikissjóði Svia til þess að kaupa lieilt Búdda-musteri
er hann hefir sjcð í Tíbet, og flytja það iil Svíþjóðar og setja það
þar upp. Segir hann að trúarbrögð mongólanna sjeu á fallandi
fæti og eftir nokkra tugi ára muni liin fornu musteri verða hrun-
iri i rústir og innanstokksmunir jx’irra komnir út i veður og vind.
Núna er hægt að fá stík mutseri kegpt fgrir tiltölulega litið vcrð
ásamt guðamyndum og öllu sem tilheyrir, og segir Hedin, að ef
tiúddamusterið lcomist til Stokkhólms, verði það safn, sem ckki
eigi sinn tíka í Evrópu. Og eigi verður annað sagt, en verðið sjc
lágt, þvi sænskur maður, P. A. Larsson, sem búsettur hefir verið
i Mongóliu tugi ára, hefir eitt af þessum musterum til boða fyrir
sex Jnis. dollara. Kostnaðurinn við flutninginn verður vitanlega
margfalt meiri, og álítur IJedin, að eigi veiti af um 250 þúsund
krónum iil þess að. kaupa musterið, flytja það og setja það upp.
—- A myndinni sjest að ofan t. v. heiðursbogi bygður yfir einn
þjóðveginn en t. h. tveir Lamaprestar, með lúðra sína, sem eru
svo langir, að þeir þurfa að hafa burðamenn undir öðrum end-
aruim á þcim. Þar undir ern nokkrir smíðisgripir úr gulli, sem
notaðir hafa verið iil prýði i musterinu. Og neðst er sýnd mynd
af Lama-musteri.
Myndin er frá Ástralíu og sijnir vinnumenn við uppskeru i hvíld-
Urtimanum að drekka t 'e. Bak við þá er sjálfbindarinn. t þeim
hlutum Ástralíu sem á annað borð. eru rældanlcgir, er ágætt land
og búskapurinn rekinn eftir nýjustu tísku.
Núna i haust verður haldin í Chicago mælskusamkepni og er full-
trúum frá flestum mentaskólum norðurálfunnar boðið að taka
þátt í lienni. — Myndin sýnir þýslm fulltrúdnn sem sendur
var á mþtið.
í síðasta blaði var birt mynd af öðru slcipinu, sem Norddeutscher
Lloyd hefir i smíðum, og sýndi hún skipið áður en J>að hljóp af
stokkunum. Á myndinni hjer að ofan sjest hvernig umhorfs vcrð-
ur á farrýminu. Sjest að ofan dagstofa farþega og líkist hún mcst
skrautlegum sal á gistihúsi. En að neðan er mynd af sundlaug,
bygðri i rómverskum stíl. Hafa menn veitt þessum skipasmíðum
Þjóðverja mikla athygli. Bretar hyggjast að búa sig undir hina
nýju samlcepni Þjóðverja með því að smíða tvö skip, sem lwort
um sig eru 60 þúsund smálestir að stærð. En eigi verða þau full-
qerð fyr en cirið 1930.