Fálkinn - 31.05.1930, Blaðsíða 7
FALKINN
7
Altaf á öndverðum meiði.
Eflir BöSvar frá Hnífsdal
Dansleikur i sjóþorpi vestanlands
Un? jeturnæturnar.------
t'ólkið ruddist inn í sífellu. Sjó-
ínenn, nýkomnir af síldveiðum, með
ullar hendur fjár og fulla vasa
Panarvíns, verkamenn með sumar-
aupið i veskinu, og verslunarmenn
e , gullydda vindlinga í munninum
g útgerðardrauma í höfðinu. Vinnu-
°nur, sem virtust hafa legið í ódýr-
ni ilmvatnspækli árum saman, fisk-
, ’°ttarstúlkur með rauðar og þrútn-
r hendur, sildarstúlkur með liðleg-
r nreyfingar og ljótt orðbragð, versl-
narmeyjar svo óhóflega dyftar, að
ngu var líkara en þær hefðu dottið
nn i hveititunnu á leiðinni. Þrengsl-
voru svo mikil, að danssvæðið rúm-
1 ekki nema fjögur til fimm pör,
. n nuðvitað dönsuðu þar eitthvað um
... usu. Leðjan að utan barst við-
u unulaust inn, þórnaði og rykaðist
t Við þetta bættist svo reykur ó-
Jandi vindla .og vindlinga, varð og
ukkurinn svo þykkur, að ljósin líkt-
þst niest lungli, er veður i skýjum.
®rn.a inn í skýstrokknum dönsuðu
uð°nn’ -Sern <)‘5tr væru’ rákust á, stjök-
1 u iná sjer, stigu hver á annars tær,
0nej’ttu ókvæðisorðum á báða bóga
8 skutust út með dansmeyjar sinar
unnað veifið.
s er laglegt háttalag á þjer!
bp8?* BerSur, sem stóð út í horni,
(j.Sar ,Ari kom til hans, heitur af
n.s'nuni, og þurkaði sjer um ennið.
Ur Crt aBat a® dansa við stúlk-
i ’ seni eru í m.jög litlu áliti meðal
*ira fólksins Íijer.
(.{.T- ®>ær dansa betur en hinar, svar-
1 Vri stuttlega.
jJV7~ Lansa betur! Já, en gáðú að
(u *’ a® l30er eru brennimerktar í aug-
j 1 almennings og þú leggur álit þitt
meS þvi að leggja lag þitt
Meiri menn mjer hafa orðið
fyriji harðinu á almenningsálitinu
fyrir
k0nr ' a® umgangast bersyndugar
P «Sem en ekki sem hunda.
seil) n Parf ekki að umgangast þær
Veji, nnnda fyrir þvi, þó þeim sje
minni eftirtekt en hinum, sem
6ma er i varið.
n>eir' BerSur minn, í hverjar er
ha>na vai’ið? Almenningsálitið er
alt e1)?-1 mæilkvarði, því það dæmir
Ultl :lr efninu — alt eflir stundleg-
ittnr- horhun- Ba® dænlir ekki hin
hfösi SB<il‘, Þegar það talar t. d. um
hekl;'n’ ^a hugsar það ekki um
Bað m^una’ sem fæsl af hrösuninni.
ttiejfg1 .gar eiíki> að maður lærir
aldré' 3 hv' a® re“ka sig oft á en
keuu?’ • a<5 ógæfan er tíðum betri
á önf,ri en gæfan. — Þú ert nú altaf
BerR..Ver®um nieiði við afera, sagði
Verg r Sramur. — Já, jeg er á önd-
bað-i.. meiði, og jeg skal sýna þjer
sem f,J?Sara- Ef jeg leita að stúlku,
jeg jJ(Utnvað er spunnið í, þá leita
bú þ mra Byhlausl meðal þeirra, er
jeg hj11 lr s,leinum að áðan, en leiti
lifsre SVegar aS stúlku, sem á enga
br°sk,.nSu’ mjög lítinn andlegan
sóttuie'j °S Baria ósjálfstæðan per-
ilUttv j a’ lla íeita jeg hennar á heim-
Jl°rgarn SSara viðurstyggilegu odd-
Wtisin ’ SCm Pykjast lifa lifi rjett-
°g aj ’, eins og farísearnir forðum,
eóðuttj :Ílrn Slu upp i guðsótta og
kóðu .f'pmn. Hverjir eru svo þessir
jega við V' '■ ila®’ :|ð brosa fyrirlit-
PUrfa {'eim kynsystrum sinum, er
'ð Uteð qnf.a iifinu og geta ekki geng-
úúum n?UU króna tófuskinn á öxl-
Uvern n8r keyPt nýjan kjól annan-
eig yfirKS’ hrosa, gáfulega og vaða
v'ð tnem °*ðsilekli;in8ar’ ef þær tala
latiega fj meun, — að brosa góð-
°S hasaH truarhragðahræsnaranna
• Hvenna, og siðast eu eltld
síst að flíka öllu fögru og greiða
haglega snörur sínar, þegar foreldr-
arnir finna einhvern glitrandi gull-
kálf, sem einhver matur er í fyrir
tc-ngdason.
Þá er að athuga guðsóttann.
Hann er fullnæging kvenlegra mik-
ilmenskuduttlunga og annað ekki.
Þetta fólk leikur hinn miskunnsama
Samverja með þvi að gefa fátækling-
um ónýta fatagarma og matarleyfar,
til þess svo að geta glaðst yfir þvi
í hjarta sínu að vera á þeirri hillu
i lífinu að geta látið aðra finna til
þess. Þetta eru ölmusugjafir með bá-
súnublæstri. — Þú talar eins og rauð-
asti bolsi, ansaði Bergur.
— Jeg tala ekki frá sjónarmiði
neinskonar múlbundinna flokksverja
í dægurþrasi stjórnmálanna, svaraði
Ari snúðugt. — Jeg lýsi aðeins hlut-
unum eins og þeir koma mjer fyrir
sjónir, og dreg elcert undan.
— Mjer virðist þú nú stundum fyr-
irlíta lægri stjettirnar, sagði Bergur.
— Misskilningur, svaraði hinn ró-
lega. — Allar stjettir eru mjer jafn-
kærar. Allar stjettir skapast af fjölda
einstaklinga, og innan hverrar stjett-
ar er fjöldi einstaklinga, sem auk
stjettareinkennanna hefir sín sjerein-
kenni. Einni stjett manna má likja
við eina tegund bókmenta, einstak-
ling hennar við yfirgripsmikla skáld-
sögu af þeirri tegund. Sljettir manna
og einstaklinga eru mjer eins og
bækurnar. Jeg les, og reyni að skilja.
Það gengur auðvitað misjafnlega, en
þegar jeg er búinn að lesa eina bók
tek jeg mjer aðra í hönd, og þegar
jeg hefi lesið nægju mína af einni
tegund bókmenta sný jeg' mjer að
annari.
Það er þetta, sem liefir vilt þjer
sýn.
Nú varð þögn um stund.
— Við hva'ð lieldur þú að jeg
skemti mjer hjerna á dansleiknum?
hjelt Ari áfram, þegar Bergur gcrði
sig líklegan til að ganga i burtil.
— Við dansinn, hljóðfærasláttinn
og kvenfólkið, auðvitað.
— Að nokru leyti rangt. Það þyrfti
t. d. öllu hrifnæmari mann mjer til
þess að komast á loft yfir þessum
hljóðfæraslætti. Þegar ölvaður maður,
sem þar að auki er viðvaningur; ham-
ast á ramfölsku draggargani eins og
mannýgt naut á móhlaða, þá langar
mig einna helst til þess að troða
baðmull í eyrun. Dans er skemtilegur,
þegar hann er iðkaður sem íþrótt eða
list, en þessi dans erlivorugt.Hjer sjer
maður og skilur orsök þeirrar óbeit-
ar, sem roskið fólk hefir á dansi, þvi
hvernig verða þau álirif, sem svona
samkomur skilja eftir i sálum ung-
linganna.
— Til hvers ertu þá að koma hing-
að? spurði Bergur óþolinmóður.
— Til þess að læra. Jeg skemti
mjer við að athuga fólkið og reyna
að geta mjer til, hvað liann eða hún
sje að gera liingað o. s. frv. Jeg horfi
á kvenfólkið, sem liefir varið sumar-
kaupinu sínu i glæsilegan búning.ytra
og innra, og nýtur æskunnar og
augnabliksins. Hvernig verða þær eft-
ir fimm eða tíu ár? Ef til vill verður
þá sú, sem ljómar mest af í kvöld,
orðin margra barna móðir, gömul
fyrir timann af skorti og ófrelsi, —
ef lil vill verður hún hamingjusöm
þrált fyrir alt baslið og bágindin, því
að hamingjan fer ekki i manngrein-
arálit. Hin sanna hamingja byggist
á þroskun innri verðmæta, er gera
men óháðari ytri aðstæðum .... Ef
til vill verður lmn lika blaktandi skar,
brákaður reyr, skekinn af vindi al-
menningsálitsins, konan, sem gaf al-
eigu sina og var grýlt i staðinn, —
Jeg horfi á sjómanninn,ungan,hraust-
an og óheflaðan. í nótt drekkur hann
vín fyrir þá peninga, sem liann á-
vann sjer með viku eða hálfsmán-
aðar erfiði. Hvað verður hann, þeg-
ar árin líða? Ef til vill ofdrykkju-
maður, andlegúr og líkamlegur ræfill,
ef til vill eiginmaður, sem eyðileggur
lieimili sitt og skýtur eiturörvum úr-
kynjunar í brjóst komandi kynslóða.
vargur i vjeum þjóðfjelagsins, fyrir-
lilinn af öðrum í þessu lífi, dæmdur
af sjálfum sjer til óslökkvandi þorsta
og kvalar í öðru lífi. En alt getur
þetta farið á annan veg. Maðurinn og
konan geta lært það af fyrstu bylt-
unum að vara sig á hálkunni. Ferða-
maðurinn leggur ekki( á hliðhallar
svellbungurnar án þess að festa á sig
mannbrodda, þá er honum óhætt. En
hver veit nema hann, einhverntima
i ofurkappi æskunnar, hafi hlaupið
þær járnalaus, fengið byltu og meitt
sig?
Hálka mannlífsins er freistingin að
taka hið stundlega fram yfir liið ei-
lífa, að elta vafurlog dægurgullsins,
en gleyma vitunum, ér sýnir rjetta
leið. Járnsporarnir er siðferðilegt
þrek og trúin á hinn skapandi og
göfgandi algóða mátt tilverunnar.
— Þetta cr nú elcki vitlaust hjá
þjer að sumu leyti, svaraði Bergur,
— en það hæfir hvorki stað nje stund,
og nú fer jeg að dansa aftur.
—- Það ætla jeg líka að gera.
En rjett í því, að Bergur ætlaði
að ná sjer í dansmær, var komið við
liandlegg hans og sagt i klökkva-
þrungnum kvenrómi.
•— Bergur! Ó, jeg þarf að tala við
þig!
Þetta var frænka hans Valný. Hún
var 18 ára og hafði altaf verið í for-
eldrahúsum. Fyrir skömmu hafði hún
farið ttð vera með' ungum manni,
sem kom úr Reykjavík, umboðssala
eða einhverju jjess hátlar. Bergur
hafði komið þeim sainan, sem kallað
er, en nagaði sig brátt i liandarbökin,
því að umboðssalinn neytti víns og
kvenna livaðan, sem það kom og Val-
ný dansaði dauðadans æskuvona
sinna og framtiðardrauma á glóðheit-
um spjótsoddum afbrýðinnar_______Já,
jeg skal koma undir eins, sagði
Bergur.
Svo gengu þau bæði út.
Tíminn leið og ekki kom Bergur
aftur. Sjómennirnir fóru að verða um-
svifameiri eftir því, sem þeir drukku
meira. Við og við ruku þeir saman,
börðust, duttu og ruddu öðrum með
sjer í fallinu, sein svo aftur bættust
i áflogaliópinn.
Ari tók yfirhöfn sina og fór heim.
Þeir Bergur bjuggu saman í lierbergi,
en hann var ókominn þegar Ari kom.
Ari kveikti ljós og fór að lesa.
Þegar hann hafði lesið á að giska
klukkustund koin Bergur inn.
— Valný segist vera trúlofuð, sagði
hann mæðulega og kastað hattinum á
stól.
— Það er gleðilegt, svaraði Ari. Við
verðum að senda henni skeyti.
— Hún er trúlofuð umboðssalan-
um — ekki opinberlega þó — skil-
urðu mig ekki?
— Skárra væri það nú ef jeg skildi
þig ekki. Frá sjónarmiði nútíina-
mannsins virðist trúlofun vera samn-
ingur tveggja aðila um ótakmarkaða
heimild til líkamlegra hlunninga.
— Valný elskar hann út af lífinu.
— Hugarástand ungra elskenda er
hliðstætt hugarástandi barnanna, sem
dansa kringum stórt jólatrje, ljósum
prýtt og sælgæti hlaðið. Meðan leikið
er umhverfis það horfir livert og eitt
á það löngunaraugum og því finst það
eiga það alt. Svo kemur til skiftanna.
Hvert barn fær eitt epli, eina appel-
sínu, poka með brjóstsykri og súkkú-
legi eða þvi um lilct. Barnið sest við
að borða þetta og lýkur því von bráð-
ar. Þá verður því lilið upp til jóla-
trjesins. Nú er það bert og nakið,
engin ljós, eugir ávextir, cngar körí-
ur, engir pokar. Hrygt í huga fer
barnið að sofa. Næstu daga moðar
það jólakökur og kleinur og þykir
gott, og ef þetta er almúgabarn þá
ganga kökurnar til þurðar, er jólin
líða. Barnið verður að fara að’borða
rúgbrauð og má þaklca fyrir ef það
fær nóg áf því.
— Þú ert nú altaf svo öndverður,
sagði Bergur hálfreiður. — Það er
• aldrei hægt að lala við jiig um nokk-
urn skapaðan hlut án þess að þú
komir mcð einhverja vafninga. Þjer
væri nær að leggja mjer einhver ráð.
Jeg veit að þesi trúlofun Valnýjar
varir skamma stund og endar með
skelfingu.
— Hvi þá það?
—- Af þvi að hann elskar hana ekki
en hefir algert vald á henni.
— Þú veist ekkert um hvort hann
elskar hana eða ekki. Jeg skal játa
það, að umboðssalanum virðist ekki
trúandi fyrir ungri stúlku, en i þess-
um málum skiftist oft veður i lotfi
á skammri stundu. Þú skalt láta hliit-
ina rása. Hver veit og á hinn bóginn
hversu langvinn ást Valnýjar reyn-
ist? Ást þesara ungu stúlkna, sem
varla eru af gelgjuskeiði, er óbund-
inn og ótaminn kraftur, sem brýst
út eins og eldgos og hverfuf oft jafn
snögglega. Jeg hefi þekt stúlkur, sem
elskuðu heitar en nokkur orð fá lýst.
Kossar þeirra voru eins og eldibrand-
ar, faðmlög þeirra föst og voldug eins
og vestfirskt hauslbrim, í afbrýði
sinni voru þær grimmar eins og solt-
in tigrisdýr, tilfinningar þeirra virt-
ust dýpri en úthöfin og hamingja
jieirra Ömælanleg eins og hfmin-
geimurinn. Þessar stúlkur voru orðn-
aiv, rólyndar vmur unnustanna að
mánuði liðnuin, eftir tvo mánuði
voru þær horfnar úr sýn, — horfnar
í mannfjöldann, ef til vill orðnar að
{jjósandi Etnum annarsstaðar. Og
únnustarnir tíndu upp nýjar stjörn-
ur á lejð sinni um himinhvolf nautn-
anna.
— Það er óskandi, að svo verði
um Valnýju, sagði Bergur. — Þó var
það nú ekki að sjá i kvöld, þvi að
hún var grátandi út af því, að hann
var i boði þar, sem margt væri um
fallegar stúlkur.
— Það er ofur skiljanlegt ástand
eins og sakir standa, ansaði Ari.
— Ilitt er álitamál, hvort það er ósk-
andi, að tilfinningar hennar fuðri
sem flugeldar og slokkni á sama hátt,
þvi að líklega er varanleg ást á
manni eða málefni dýrasta hnossið
í þessum heimi og haldbestur arin-
eldur í kulda lífsins. Það fer raunar
minna fyrir slikri ást en hinni, sem
jeg var að tala um áðan. Farðu út
á viðavang með fullan poka af trjeT
spónum og heltu í þá steinoliu og
kveiktu svo i. í öðrum stað skaltu
kynda bál með kolum. Á hverju ber
meira, til að sjá? En hvert verður
langærra og gefur meiri hita?
— Kolabálið auðvitað, svaraði
Bergur, —en það cr líka erfiðara að
kveikja i kolum en trjespónum.
— Það veit jeg vel, svaraði Ari.
— Þvi meira, sem fyrir einhverju
er haft, því meira gildi hefir það,
þegar því er náð.
— Erfiðleikar geta kipt úr þroska
mannsins, staðhæfði Bergur.
— Það eru ekki erfiðleikarnir,
sem skapa vanþroskann, andmælti
Ari, öllu fremur er það vanþroski
mannanna, sem skapár erfiðleikana,
Þeir hættu nú samtalinu og fóru
að hátta.
—- Undarlegúr maður Ari, hugs-
aði Bergur og sneri sjer í rúminu,
— hann er besti drengur, ef á reyn-
ir, en hann er öðruvísi en fólk er
flest, — hann er altaf á öndverðum
meiði.