Fálkinn


Fálkinn - 28.02.1931, Side 2

Fálkinn - 28.02.1931, Side 2
2 P Á L K I N N ---- GAMLA BIO ---- Engin sýning vegna inflnensn. PILSNER BEST. ÓDÝRAST. INNLENT. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRlMSSON. Lárus G. Lúðvígsson, skóverslun. ---- NÝJA BÍO ------- Engin sýning vegna infliíensu. 1 I Soffíubúð 1 : S. Jóhannesdóttir. : i : Reykjavík. fsafrði. Í j í • Herrafatnaður 2 ■ blár og mislitur. Móðins snið. : : Vetrarfrakkar. Rykfrakkar. Manchettskyrtur. Í Hálsbindi. | i FUbbar. Hanskar i : i Bestar vðrur. Best verð. i i i S o f f f u b ú ð. ■ ■ ...... Um víða veröld. ---X-- Rósranði likðrinn. Ferðamannagistihúsin í Sviss, einkum þau, sem Ameríkanarnir búa á, eru búin öllum upphugsanlegum þægindum. Nýlega uppgötvaði vellrík- ur kaupmaður nokkur frá Lexington i Kentucky alveg nýjan útbúnað hjá sjer í gistihúsinu í Pontresina, þar sem hann bjó. Á vegginn var fest dálítil ívöl flaska úr slípuðu gleri full af rósrauðum líkör. Maðurinn var himinlifandi yfir þessari fádæma hugsunarsemi, sem fólkið í Pontre- sina sýndi gestum sínum með þvi að verða á þennan hátt við hinum ieyndustu óskum hinna amerísku gesta sinna — og fjekk sjer strax vænan teyg úr flöskunni. Og fór það eins og hann grunaði; hann sveið i hálsinn á eftir, en það var jafn in- dælt á bragið fyrir l)að. Um miðdegi var flaskan tóm. Á hótelunum í Pontresina er gætt hinnar mestu nákvæmni og sjeð hið besta fyrir gestunum. Og strax næsta morgun fylti stofustúlkan flöskuna aftur. Og þrátt fyrir það að Ameríku- maðurinn daginn áður meðan hann var að borða miðdegismatinn hafði fengið ógurlegt magakast, svo hann varð að standa upp frá borðinu, tók hann sjer þó strax um morguninn vænan teyg úr flöskunni. Og fór það á sömu ieið að hann fjekk aftur magakast. En hvað gerði það svo sem tiJ þó að honum yrði dálítið iJt i maganum — rósrauði likjörinn var svo ilmandi góður. Og þannig hjelt hann áfram að tæma flöskuna á hverjum einasta degi i átta daga. í Lexington var ekki slíkur útbúnaður á gestaherbergjunum. En að viku liðinni var maginn í þeim ameríska orðinn svo að hann varð að flytja á annan stað sjer til hressingar. Vikum saman braut hóteleigand- inn heilann um hvernig í ósköpun- um riki gesturinn hans frá Lexing- ton hefði farið að því eyða heilli flösku á dag af hinni dýru, rósrauðu sápulút hótelsins. ----x----- Alsk. mælirar Hita- og kuldamælar. Regn- og snjómælar. ÖJ- og vínmæJar. Sterkju- og lútmælar. Sykur- og saltmælar. Sjúkramælar. Laugaveg 2. Dnt Svana-smjðrlfki. Um hálfan annan mánuð hef- ir Svana-smjörlíki verið framleitt og náð meiri útbreiðslu en títt er um nýjar neyzluvörur. Vin- sældir Svana-smjörlíkis eru ein- göngu því að þakka, hve það likist hreinu smjöri, að bragði og útliti. Þeir, sem ekki enn þá liafa reynt Svana-smjörlíki, ættu að lesa eftirfarandi ummæli ungfrú Helgu Sigurðardóttur, kenslu- konu í matreiðslu, sem bygð er á reynslu hennar: Munur á Svana-smjörlíki og góðu smjöri finst tæplega ofan á brauði. Til að steikja og brúna úr er það mjög gott; verður fljótlega fallega brúnt, en brennur elcki við. Fiskur og kjöt brúnast jafnt og vei úr Svana-smjörlíki, sem úr góðu smjöri. Kartöflur liefi jeg vanalega brúnað úr smjöri, ef vel átti að takast, en Svana-smjörlíki reyn- ist mjer jafnvel og smjör. Svana-smjörlíki brætt með fiski hefir greinilegan smjörkeim og er soralaust. Til bökunar reynist það mjög vel; sjerstaklega í fint brauð og kökur og hnoðast sjerlega vel. f „smjörkrem“ reyndist það sérstaklega vel og liefir mjer al- drei fyr tekist að búa til smjör- krem úr smjörlíki. Að margra dómi var ekki hægt að finna ann- að, en að „kremið“ væri úr besta smjöri gert. Yfirleitt hefir Svana-smjörliki reynst mjer miklu betur en ann- að smjörlíki, og líkist í öllum til- fellum smjöri. Þessi er reynsla kenslukon- unnar og margra húsmæðra, á Svana-sm j örlíki. Svana-smjörlíki er framleitt eftir nýjustu vísindalegum rann- sóknum og inniheldur efni, sem eru mjög auðug af fjörefnum (vitamin), og það er fyrsta smjörlíkisgerð hjer á landi, sem notað hefir blaðgrænuefni (klorofyl) í smjörlíkið, svo það er áhætt að ganga út frá því, að ekkert smjörlíki er eins auðugt af fjörefnum. Húsmæðurnar ættu að bera Svana-smjörlíki saman við annað smjörlíki og at- huga, hvað er bragðbest og yfir- leitt reynist best. Inc. Elsti maður heimsins, Zaro Agha, sem nú er í Ameriku og sýnir sig þar fyrir peninga, hefir veri'ð kærður fyrir að vanrækja konu sína og börn. Hann græðir vel í Ameríku, en hefir enga peninga sent heim til, Tyrk- lands. Konan kærði hann — og nú hefir dómstóllinn i New York til meðferðar. Sagt er að Zaro Agha „skemti“ sjer fyrir alla peningana, sem hann græðir. ----x-----

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.