Fálkinn


Fálkinn - 28.02.1931, Qupperneq 5

Fálkinn - 28.02.1931, Qupperneq 5
FÁLKINN 5 Sunnudags hugleiðing. ■■■■■ ■■■■■ Forsögumaðurinn frá Peking. Hvað munum vjer öðlast? Matth. 19, 27—30. Engin metorð eða völd fylgja því, að gerast kristinn. Jafnvel má búast við því, að sá sem það gerist, þyki ekki starfgengur þar sem liann var áður, og að aðrir reyni að gleyma honum og hætti samneyti við hann. Mörgum finst, að maður, sem farinn er að helga Kristi líf sitt, sje alls ekki liæfur til þess að vera í kunningjahóp eins og áð- ur. Þeim finst eins og að sá, sem hefir orðið trúaður, hljóti að hætta að liafa gaman af listum, íþróttum, iðnaði eða almennum áhugamálum, og sneiða því hjá honum ýmist af því, að þeir halda að hann sje orðinn „leið- inlegur“ eða af því að honum muni vera óljúft að gleðjast með glöðum yfir því, sem mannsand- inn gerir hest í veraldlegum efn- um. En Kristur leggur ekki hpmlur á lífið lieldur vill hann glæða það. Hann vill gera alla liluti nýja, skapa þeim eilífðargildi. Við þekkjum flest umræður sumra manna um kirkju og kristindóm, umræður, sem liafa heinlínis hrætt ungt fólk og börn frá því að leita til Guðs. Þetta fólk þorði ekki að eiga á hættu, að verða „viðutan í þjóðfjelag- inu“ eins og það lijelt, að trúaðir menn yrðu að vera. Og því deyfði það rödd lijartans í stað þess að fylgja lienni. En livað var sálinni gert með því? En sá, sem hefir hafnað nokkru „sakir nafns míns, mun fá hundr- aðfalt og erfa eilift lif“, segir drottinn. Hverju hefir þú liafnað sakir nafns lians? Áttu í nokkurri har- áttu fyrir hans nafn? Mistir þú af nokkru eða hafnaðirðu nokkru til þess, að gegna hinni kallandi rödd samviskunnar? Mun jeg öðlast nokkuð ? Þetta er spurning, sem vjer allir eigum að liugleiða. Hvorl vjer höfum nokkurntíma sett Guð hærra, en svo ótal margt annað, sem hugur okkar var bundinn við — jafnvel okkar nánustu. Eða hvort við höfum hafnað honum eða játað, þegar um var að velja veraldlega smá- muni eða hann. Gefið honum rúm, honum sem endurnærir sálina, huggar hinn einmana, reisir hina föllnu — honum sem læknar syndasárin. Hann gefur lifinu tilgang og lxughreysting. Hann byggir upp aftur það, sem syndin hefir hrot- ið niður. Og það, sem þú hefir hafnað lians vegna, gefur þjer hlutdeild í því, sem að hann hafnaði þín vegna. 1 honum fær þú fylling lífsins, frelsun og frið. Þessi mynd er frá Chou-Kon-Tien við Peking, þar sem Pekingmaffurinn fanst. Á miffri myndinni sjest votta fyrir hellismunna, sem grafinn var inn í kalksteinsfjalliff og fundust þar mörg steinrunnin mannabein. Nokk- um metrum fyrir innan hellismunnann fanst hauskúpan af Pekingmanninum. Þessi maffur heitir W. C. Pei og er ungur visindamaður kinverskur. Það var hann, sem fann Pekingmanninn. sannanir þær, sem fengist hafa síðan á Darwins dögum orðið til þess að styðja kenningar hans. Þess má geta, að sumar þær kenningar, sem kendar eru við Darwin eru alls ekki lians verk, en hann átti þátt í því að þær hárust út meðal almennings, og -selti þær í samhengi, sem gerði þær eðlilegri og trúlegri. Darwin sjálfur hafði ekki nema tiltölulega fábrotnar leif- ar af útdauðum mann- og dýra- tegundum til þess að byggja vís- indakerfi sitt. En staðhæfingar lians urðu til þess, að vísindu- Síðustu áratugi nítjándu aldar stóð áköf deila um það meðal vísindamanna, hvort Darwins- kenningin um uppruna mann- kynsins væri á rökum hygð eða ekki. Og meðal almennings var kenningin fordæmd og liötuð, þvi að það þótti alls ekki fallegt til frásagnar, að mennirnir, „æðsta skepna jarðarinnar“, ætti ekki til göfugri forfeðra að telja en apanna. Darwin hafði i ritum sínum um hreytiþróunina hent á að lík- indi v'æri til, að mannkyn nútím- ans væri komið af miklu óþrosk- aðri verum, sem í ýmsu tilliti hefði líkst öpunum. Að þeir væri af öpum komnir vildi hann ekki fullyrða, en færði miklar líkur að því, að forfeður mannkynsins hefðu verið talsvert líkir hinum ferfættu klifurdýrum, sem nú lifa í skógum lieitu landanna og notaðir eru til skemtunar og fróðleiks i dýragörðum stórborg- anna. Og vitanlega vakti þetta megna andúð, ekki síst frá trú- arlegu sjónarmiði, enda var það ekki beinlínis í samræmi við sköpunarsöguna. En mikið af þessari andúð var sprottið af mis- skilningi og ónógri þekkingu á kenningum Darwins yfirleitt. Siðan hann har fram kenningar sínar hefir svo margt komið í ljós, sem sýnir og sannar, að mennirnir hafa hreyst mikið í útliti frá öndverðu, alveg eins og að sannað verður með sögulegum heimildum, að andlegum og verklegum þroska mannkýnsins hefir farið afar mikið fram, sið- an fyrstu sögur hófust, þó að enn þvki mörgum mönnunum miða liægt áfram í áttina til fullkomn- unar. En i öllum aðalatriðum hafa Höfuökúpa Pekingmannsins, sjeö ofan frá.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.