Fálkinn - 28.02.1931, Page 8
8
F Á L K I N N
Fyrir rúmum 20 árum var borgin
Dehli gerð að stjárnarsetri lndlands,
en það liafði áður verið í Kalkutta.
Var þetta gert samkvæmt tilmælum
Indverja sjálfra, því að Dehli var
hinn fornhelgi staður þjóðarinnar,
en Kalkutta var iðnaðar og verslun-
unarborg, sem þotið hafði upp eins
og gorkúla, eftir að vesturtandaþjóð-
irnar fóru að reka verslun við Ind-
land. Þessi 20 ár hefir verið starfað
að því að koma upp stjórnarbygg-
ingum í Dehli og eru þær nú full-
gerðar — og ekkert smáræði, eins
og hægt er að sjá af myndunum
hjer fyrir ofan. Voru byggingarnar
vígðar 9. þ. m. með afar mikilli við-
höfn. Efri myndin er af stjórnar-
ráðshúsunum en sú neðri af hþll
undirkonungsins enska. Eru þetta
stærstu byggingarnar, en auk þeirra
hefir verið reistur fjöldi minni
bygginga í þarfir stjórnarinnar.
Myndirnar hjer til vinstri sýna
báðar vetraríþróttir. Sú efri er tek-
in í Spandau við Berlín og sýnir
nemendur á íþróttaháskólanum þar
— alt tómar stúlkur — vera að iðka
boltalcast úti á ís. Eru þær allar lítið
klæddar, álílca og við fimleikaæf-
ingar innan húss, þó lmlt sje í veðri.
Hafa Þjóðverjar lagt afar mikla
stund á íþróttir síðan ófriðnum lauk
og eigi hefir kvenfólkið hvað síst
látið til sín taka á því sviði. — Neðri
myndin er, þó undarlegt megi virð-
ast sunnan frá Ítalíu. Þar getur líka
komið snjór og þá er tækifærið not-
að til þess að fara á skíðum og iðka
aðrar vetraríþróttir. ítalir hafa
mikinn áhuga fyrir skíðaferðum, og
þekkingin á nótkun skíða kemur
einkum frá þeim lxjeruðum lands-
ins, sem liggja upp í Alpafjöllum.
Her sá, sem ítalir hafa þar til landa-
mæragæslu verður að nota skíði til
þess að geta gegnt hlutverki sínu,
og þaðan hefir þekkingin á skíða-
íþróttinni breiðst iil annara. En eins
og geta má nærri er það ekki nema
sjaldan, sem skíðafæri er þarna
syðra, þegar fjallahjeruðunum
sleppir.