Fálkinn - 21.03.1931, Blaðsíða 10
10
FÁLKINN
Koraið eða
skrifið til
URO'GLER
okkar.-------
sem útiloka hina
skaðiegu ljósgeysia.
Ókeypis gler-
augnamátun.
ÍGina verslunin sem
hefir sjerstaka ran-
sóknarstofu með öll-
um nýtisku áhöldum.
Langavegs ftpotek.
Fyrir kvenfólkið.
Fleiri konur en karlar.
flnna Paviova.
Myndin er af liinni heims-
frægu rússnesku danskonu
Önnu Pavlova, sem nú er nýlát-
in. Andaðist hún í Hollandi en
var grafin í London. Pavlova
var tvímælalaust mesta dáns-
kona sinnar aldar.
Drotningin, sem
beiddist ölmnsn.
Eftir hagskýrslum að dæma eru
fleiri konur en karlar í Evrópu, og
svo mikill er munurinn að ef fara
mætti eftir því ætti 11. hver kona að
deyja ógift.
Það eru fáir, sem vita það, að
Evrópa er eina heimsálfan par sem
er skortur á karlmönnum. Alstaðar
annarsstaðar er hlutfalíið öfugt, og
afleiðingin sú að konurnar eru hafn-
ar upp til skýjanna og umkringdar
hiðlum. Hverjum er ekki minnisstætt
þegar hinir 1000 ungu Grikkir tóku
sjer skip og sigldu frá Ameríku heim
til ættjarðar sinnar til þess að leita
sjer kvonfangs.
Það land, sem hefir flestar konur
að tilltölu við karlmenn er Rússland.
Þar eru 1152 konur á móti 1000 karl-
mönnum. í Þýskalandi og Frakklandi
eru 1120 konur móti 1000 körlum, í
Bandaríkjum Ameríku eru ekki nema
958 konur móti 1000 körlum og í
Kanada 936. Japan er eitt hinna fáu
landa, þar sem hlutföllin eru hjer-
umbil jöfn, það er að segja það eru
ekki nema 2% færri konur. Annars
eru karlmennirnir miklu fleiri en
konur um öll Austurlönd.
Mismunurinn á tölu karla og kvenna
í heiminum liggur ekki í því að það
fæðist fleira af einu kyninu en öðru.
En í Evrópu er dánartala karla hærri
en laégri í öðrum heimsálfum t. d.
Bandaríkjunum, Ástralíu og Japian.
Má telja að þetta sje mjög bundið við
atvinnuvegi þá og lifnaðarhætti, sem
þjóðirnar eiga við að búa og eftir
þátttöku karla og kvenna í iðnaði og
framleiðslu landanna.
„Sirius“ súkkulaði og kakó-
duft velja allir smekkmenn.
5 Gætið vörumerkisins.
í Quartier Latin í l’arís hefir
gömul kona ein, fátæklega klædd vak-
ið eftirtekt á sjer með því að biðjast
ölmusu. Daglega stóð hún með tin-
krús sína í hendinni og rjetti hana
að þeim sem fram lijá fóru. ölmusuí
þær sem hún fjekk nægðu varla fyrir
kartöflum og súru rauðvíni á kveldin.
Liklega stæði gamla konan þarna
ennþá ef hún hefði ekki lent í orða-
kasti við mann þann, sem átti veit-
ingalnis það, sem hún var vön að
standa fyrir framan. Hann kallaði á
iögregluna og það var farið með
gömlu konuna á lögreglustöðina. Það
vakti ekki litla undrun þegar þá kom
í ljós að kona þessi var engin önnur
en Natalia fyrverandi drotning í
Serbiu.
Natalia drottning er dóttir Keschke
ofursta og giftist átján ára gömul,
Milan fursta í Serbiu. Þegar hún varð
23 ára varð hún drottning og komst
brátt á orð við liirðirnar í Evrópu
fyrir drotnunargirni sina og hugsun-
arleysi. Iljónaband hennar var einnig
mjög óhamingjusamt, og 1885 yfir-
gaf lnin mann sinn skyndilega og
skildi hann tveim árum seinna við
drotningu sína. Hún fór til „Rivier-
unnar“, varð hún þar brátt lirókur
alls fagnaðar og lifði í glaum og gleði
um nokkur ár. En brátt fóru eigur
liennar að þverra og hún varð snauð-
ari, seinustu árin hefir hún orðið að
lifa á bónbjörgum.
Frá lögreglustöðinni var farið með
hina fyrverandi drotningu í nunnu-
klaustur það, sein hún var vön að
gista i á nóttunni, og þegar lögreglu-
þjónninn ávarpaði hana Yðar hátign,
brosti hún þunglyndislega.
Alit (egnrðardrotDingar-
innar ð friðleik karlmanna.
Blaði einu hefir liugkvæmst að fara
til allra „fegurðardrotninganna",
sem kjörnar liafa verið í ýmsum lönd-
um Evrópu undanfarið, og leita álits
þeirra á karlmönnum og fríðleik
þeirra og hvernig þær liugsa sjer til-
vonandi eiginmann sinn.
Sú franska segir: Fríðleikur karl-
mannal Það stendur á sama hvort
maðurinn er fríður eða ljótur, ef að-
eins skapgerð hans er einhvers virði.
Jeg þrái að komast í hjónaband, það
er hið æðsta, sem konan getur ósk-
að sjer. Maður og börn eru lífsgæfan.
Sú austurríska svarar: Líkamlegt
atgjörvi karlmanna er þýðingarlítið
nema í kvikmyndunum. í lífinu er það
fegurð sálarinnar og skapgerðin, sem
ræður úrslitunum; og jeg held að
gott lijónaband sje vissasta leiðin til
gæfunnar, — að minsta kosti fyrir
konuna.
Sú enska: íþróttamaðurinn vekur
mesta athygli allra karlmanna lijá
kvenfólkinu. Jeg efast um, að liann
skilji betur hlutverk hjónabandsins
en aðrir menn, nema síður sje. En
gagnkvæmur skilningur í hjónandinu
er það affardrýgsta verðmæti, sem til
er í heiminum.
Ungfrú Jugoslavia: Það eina, sem
jcg krefst af manninum er dugnaður
og greind. Jeg dáist að þróttmiklum
manni og styrk lians. Aðeins það
lijónaband, sem gefur konunni færi
IDOZAN
er af öllum læknum álitið
f ramúrskarandi
blóðaukandi og styrkjandi
járnmeðal.
Fæst í öllum lyfjabúðum.
VAN HOUTENS
konfekt og átsúkkulaði
er annálað um allan heim
fyrir gæði.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
B R A S S O
fægilögur
er óviðjafnanlegur
á kopar, eir, tin,
aluminium o.s.frv.
B R A S S .0
er notaður meir
með ári liverju,
sem er að þakka
ágæti lians.
um verslunum.
á að fórna sjer fyrir manninn sinn
og börnin, fins injer aðlaðandi.
Sú þýzka: Fegurð lijartans og lund-
arinnnar er það eina, sem gefur
karlmanninum gildi. Mig langar ekk-
ert til að gifta mig (en líkast til hald-
ið þið að jeg sje að skrökva?)
Ungfrú ftalia: Líkamlegt atgjörvi
lcarlmannsins met jeg einskis. Hið
eina, sem hefir þýðingu fyrir lifs-
gæfu hans eru hyggindi hans-og sál-
argöfgi. Hjónabandið er raunveru-
leiki. Jeg vildi óska að það væri
draumur!
— — — Þær virðast eftir þessu
* að dæma ekki gefa mikið fyrid út-
litið, þessar fögru drósir. En skyldu
það vera nokkuð nema ólíkindalæti?
En flestar þykjast þær vera fiknar
í hjónabandið, og það er ekki nema
gott. Vonandi rætist sú ósk þeirra
von bráðar, þvi að varla skortir sjáf-
ar fegurðardrolningarnar biðla..
Bessaðar farið þið að dæmi þeirra,
stúkur og giftið ykkur strax. Eii
munið bara, að láta ykkur það einu
gida hvort hann er fríður eða ljót-
ur, iturvaxinn eða kryppingur —
bara að hjartað sje nógu stórt! Feg-
urðardrotningarnar segja það.
Flestir menn ímynda sjer, að kon-
an sem þeir eru ástfangnir af, sje
fuilkomin-------en mjög fáar stúlk-
ur gera sjer slíkar hugmyndir um
manninn, sem þær eru ástfangnar af.
List ástarinnar er það að vera
mörgum trúr.
----0—0-----