Fálkinn - 27.08.1932, Page 8
8
F Á L K I N N
Árnar eru lífæð stórborganna og
mundu þær alveg breyta svip án
þeirra. llvað væri Hamborg án Elf-
innar, París án Signu, Róm án Tiber
eða London án Tempsár. En auk þess
sem árnar eru elsiu samgönguæðar
borganna hafa þær 'stórt hlutverk
með höndum i skemtilífi borgarbú-
anna, einkum á sumrin, eins og sjái
má af myndinni til vinstri, sem er tek-
in á Thames. Yfir þessari á liggur
einnig aðalloftrásin um Lundúnaborg.
Hinn 22. júlí síðastliðinn voru 12:5 ár
liðin síðan herlogadæmið Varsjá fjekk
heimastjórn. Fór athöfnin fram í
Dresden. Á myiidinni hjer fyrir neð-
an sjest Napóleon mikli í hásætinu,
en i kringum hann standa menn úr
semlinefnd pólsku stjórnarinnar til
hans og Siamslaus Malakcvski for-
maður þeirrar nefndar. fíak við
standa Talleyrand og Moret.
Það kemur stundum fyrir, að kaf-
arar farast vegna þess að þeir
verða fyrir of snöggum áhrifum af
loftþrýstingnum, er þeir korua neð-
an af sjávarbotni og upp á yfirborð-
ið aftur. Er þetta kallað kafaraveiki
og er algengt að menn fái hana,
Dánartilf elli kom fyrir í danska sjc-
liðinu af þessum ástæðum og varð
það til þess, að búið var til áliald
til þess að verjast kafaraveikinni,
áhald sem dregur úr hinum snöggu
þrýstiumskiftum, og gert var i sam-
ráði við læknavísindin. Tlefir það
verið margreynt og gefist ágtetlega.
Hjer á myndinni sjest læknir einn
vera að kenna mönnum notkun á-
halds þessa.
Sífeldar óeirðir eru í Berlin oy viðar
í Þýskalandi bæði af völdum nazista
og kommúnista og kröfugöngur og
spellvirki á götunum. Iljer á mynd-
inni sjást kommúnistar í kröfugöúgu'
í Berlín.