Fálkinn - 18.02.1933, Page 5
F Á L K I -N'N
5
sjeð — liljótið að hafa skilið
— að jeg elska yður. Jeg get
ekki farið úr borginni um óá-
kveðinn tíma án þess að vita
hver örlög' bíða mín. Jeg mundi
verða í sífeldri kvöl, hverja
einustu stund. Jeg elska yður
meira en alt í lífinu. Viljið
þjer verða konan mín, Lára,
þegar jeg kem aftur — viljið
þjer það?
Hún sat þögul um stund —
ein dýrmæta mínútan farin
enn — og svo sagði hún:
- Sam, hvernig dettur yður
i hug að segja þetta við mig,
giftur maðurinn?
Andlitið á Hadiey varð alt að
einum furðusvip.
Lára? —eruð þjer geng-
in af göflunum?
Hver veit nema jeg sje sú
sem vitið hefir meira, okkar
tveggja, því að þjer eruð gift-
ur, Sam, — og þjer vitið það
ekki.
— En, — heyrið þjer — góða
• « « •'
Þjer eruð giftur skrif-
stofunni yðar, Sam, sagði hún
og starði i augun á lionum, og
lijónaband yðar er það heit-
strengdasta og tryggasta sem
jeg þekki. Ekkert annað band
-hvorki maður nje kona —
getur kept við það. Sumum
mönnum getur þótt ákaflega
vænt um konuna sína, en und-
ir eins og skrifstofan hans kall-
ar á hann þá fórnar hann fús
lega öllu á altari hennar.
Hadley svaraði, og það var
auðheyrt að honum þótti:
- Lára! Jég er viss um að
þjer meinið þetta ekki. Þjer
haldið þó ekki — i alvöru —
að jeg mundi taka skrifstofuna
mína fram fyrir yður eða láta
yður liggja í láginni hennar
vegna? Ástæðan til þess að jeg
vií græða þessa miljón er að-
eins sú, að mig langar til að
gefa yður peningana.
Það var eitthvað skrítið í
brosinu á henni þegar hún svar-
aði:
Þetta er einstaklega fal-
lega sagt og þjer haldið víst
sjálfur að það sje satt. Karl-
mönnunum er altaf svo ein-
staklega lagið að finna þær
röksemdir, sem þeir hafa þörf
fyrir þá stundina — og segja
þær með svoddan sannleiks-
blæ. En í þetta skifti sjest of
vel gegnum vefinn — jeg þekki
yður of vel, kæri Sam. Jeg veit
upp á hár til hvers þjer viljið
græða þessa miljón. Ekki til
þess að leggja hana fyrir fætur
mjer sem konunglega gjöf
alls ekki, þó að þjer haldið það
kanske sjálfur. Raunverulega
ástæðan til þess að þjer verðið
að græða þessa miljón er sú, að
kaupsýslugáfa yðar æsir yður
L;pp í að græða sífelt meira og
meira, þó að þjer eigið þegar
miklu meira fje, en þjer þurfið
nokkurntíma á að halda. Yður
er varið eins og veiðimannin-
um, sem heldur áfram að drepa
dýrin meðan þau eru í færi,
þó að liann hafi drepið miklu
meira en hann getur gert sjer
vou um að geta borið heim.
í sama bili varð Hadley litið
á klukkuna og það kom fát á
hann. Hún var þegar- orðin 16
mínútur yfir tvö! — Augu
þeirra mættust, og hann sá að
liún var eggjandi og ertnisleg.
Hann varð sár yfir þessu þvi
að hann grunaði, að það væri
ekki eins auðvelt að ráða við
hana eins og verkefnin, sem
hann að jafnaði hafði með
höndum.
Annars hafði það ávált ver-
ið svo, að þegar hann ságði við
einhvern: Jeg hefi eitt kor-
tjer til að tala um þetta, þá
varð það gert á þeim tíma.
„Time is money“ stóð með stór-
um stöfum yfir skrifborðiuu
lians — og „Time is money“
stóð með enn stærri stöfum i
heilanum á honum. Var það
mögulegt að hann stæði í fyrsta
skifti augliti til auglitis við
manneskju, sem ekki bar virð-
ingu fyrri mínútunum?
— Æ, þjer hendið bara gam-
an að mjer, sagði hann ráð-
þrota. — Mergurinn málsins er
víst sá, að jeg hefi komið of
seint....
Hún lyfti augnabrúnunum
og horfði undrandi á hann.
Of seint? Mjer heyrðist
þjer segja, að bifreiðin yðar. .
Þjer vitið vel að það er
ekki lestin, sem jeg er að
tala um núna, sagði hann ó-
þolinmóður. Jeg hefi komið df
seint. Þjer elskið annan mann.
Vitanlega. Jeg hefði átt að vita
það fyrir. Jeg liefði átt að geta
sjeð, að Kenyon gat vilt yður
sýn, svo að þjer sáhð ekki aðra
en hann.
Við skulum ekki fara að
blanda Kenyon í samtalið þessa
stuttu stund sem eftir er þang-
að til þjer verðið að fara. Lát-
um okkur sjá, hvað er klukk-
an? Þrjár mínútur eftir —
þrjár mínútur. .. .
— En elskið þjer þá ekki
Kenyon? spurði hann ákafur.
— Nei, jeg elska hann ekki,
svaraði liún rólega, — að minsta
kosti gæti mig ekki dreymt um
að giftast honum....
Gæti þá hugsast að það gæti
komið til mála að þjer vilduð
giftast mjer?
Hún brosti. — Þjer eruð
giftur fyrir, Sam. Viðskiftin
sitja í fyrirúmi fyrir öllu öðru
hjá yður.
Nei, það er ekki satt, and-
æfði hann.
Sannið þjer það, mælti
hún eggjandi. — Það er einn
vegur til. .,. .
Segið mjer þá hver hann
er, jeg á aðeins eina mínútu
eftir, sagði hann og benti á
klukkuna.
—- Það er einmitt það, sagði
hún alvarlega, — þessi eina
mínúta svarar sppurningunni.
Hann horfði spýrjandi á
hana þangað til að það gekk
alt í einu upp fyrir honum
hvað hún átti við.
Gott og vel, svaraði hann,
við skulum láta mínútuna
svara.
Hann horfði spyrjandi á
í vasann og hagræddi sjer í
stólnum, en hún tók langt en
lágt andvarp —- mitt á milli
TORSTEN KREUGER,
aftalkonsúll, bróöir Ivar Kreuger var
dæmdur i 3% árs fangelsi nýlega
fyrir sviksamlegt athæfi. Var hann
stjórnandi fjelags eins, sem Högbro-
fors Aktiebolag nefnist og var eitt
af braskfjelögum Kreugers, Torsten
Kreuger er sakfeldur fyrir sviksam-
lega bókfærslu og fyrir að hafa
liilmað yfir með bróður sínum. Af
klókindum höfðu þeir bræðurnir
altaf látið það í veðri vaka á yfir-
borðinu, að þeim væri kalt hvorum
til annars, tiJ þess að leiða af sjer
allan grun um, að nokkuð svika-
makk væri á milli þeirra. Hjelt al-
menningur að þeir væru óvinir en
þegar svik Kreugers komu upp kom
það brátt i Ijós, að þeir voru sam-
herjar í fjársvikunum. Meðal annars
hafði Ivar flutt stórar fjárupphæðir
á nafn Kreugers skömmu áður en
liann fyrirfór sjer.
Thorsten Kreuger var einn aí
„stóru nöfnunum" í samkvæmislif-
inu í Stokkliólmi og bar miklu meira
r, honum þar en bróður hans, enda
var Ivar meira langdvölum erlendis
og hafði sig eigi míkið frammi á
almanna færi. Torsten var ræðis-
maður Pólverja í Slokkhólmi.
Skipstjórinn á Brimaskipinu „Ev-
ropa“ varð veikur af botnlanga-
bólgu á leiðinni vestur til Ameríku i
desember. Skipslæknirinn gerði á
lionum skurð úti i rúmsjó, en þegar
skipið kom þangað var skipstjórinn
fluttur á spítala. Nú er hann dáinn
þar — af brjósthimnubólgu, sem
hann hafði fengið eftir uppskurðinn.
í „Aquitania“ skipi Cunard Line
er verið að setja upp leikhús. Mat-
salnum á 2. farrými verður breytt
í leikliús með sætum fyrir 250 manns
gráturs og hláturs, vafði
liandleggjunum um hálsinn á
honum og kysti hann. Svo
spratt hún upp og togaði í
liann eins og liún gat.
Komdu nú fljótt, það er
ekki sekúndu að missa — en
Sam,-jeg skal bíða eftir þjer
þangað til þú keniur aftur.
og ágætu leiksviði. 1 fyrstu er það
tilætlunin að láta leikarahópa, sem
ferðast milli Ameríku og Evrópu
sýna leikrit á leiðinni og borga með
því fargjöldin en þegar fram í sækir
stdlar fjeagið að koma upp sjálf-
stæðum leikaraflokki. Er fyrirhugað
að koma upp svona leikhúsum i öðr-
um skipum fjelagsins og eiga teik-
araflokkarnir að skifta um skip í
hverri ferð, svo að skipsmenn geti
altaf sjeð eitthvað nýtt. Leikhúsið
verður líka notað til þess að sýna
þar kvikmyndir.
ítalsi flugmaðurinn Agello hefir
selt heimsmet í fiughraða, 720 kíló-
metra á klukkustund. Metið hefir
þó ekki verið staðfest enn.
----x——
í Nissa er verið að byggja nýtt
spilavíti — casino — um þessar
mundir og á það að heita „Sporting
Glub“ enda mun það einkum ætlað
enskumælandi mönnum. Ýmsar frúr,
sun koma með mönnum sínum til
Nissa, eru á móti því að þeir faii
í spilavítin og sitja fyrir þeim á
leiðinni, og því verða gerð jarðgöng
að þessu nýja víti frá ýmsum gisti-
liúsum í nágrenninu, svo að spila-
fiftin geti taumast þangað þá leið-
ina. í sambandi við „Sporting Club“
verður stóreflis veitingasalur, þar
sem þeir hepnu geta eytt gróða sín-
um og þeir óhepnu drekt sorgum
sínum.
----x-----
f Englandi er stofnun sem miðlar
börnum milli þeirra, sem vilja taka
þau að sjer og foreldra, sem ekki
geta sjeð fyrir þeim. Þessa stofn-
un vantar tilfinnanlega stúlkubörn
en hefir hinsvegar nóg af sveinbörn-
um á boðstólum. Flestir vilja frem-
ur taka telpu en dreng fyrir kjör-
barn og fore'drarnir vilja fremur
sjá af drengjunum en telpunum.
-----x----
Maður nokkur í New South Wales
er orðinn 93 ára gamall en hefir
aldrei á æfi sinni rakað sig. Hann
var orðinn alskeggjaður þegar hann
var 21 árs.
----x------
Lögreglan í Bryssel fann nýlega
hjá skraddara einum þar í borginni
koffort, sem hann sagði að tveir
menn er hann ekki þekti, hefðu beð-
ið sig að geyma. í koffortinu voru
ýmsir dýrgripir, samtals 10 miljón
franka virði. Hafði þeim verið stol-
ið úr ýmsum kirkjum í Þýskalandi
undanfarna mánuði.
----x-----
Tcsliu-Tcshu-tin, fyrverandi vara-
utanríkisráðherra dó nýlega í Kan-
ton eftir að hann hafði setið veislu,
sem haldin var til heiðurs yfirher-
stjói'a Breta í Kina. Er sagt að liann
hafi fengið höggormseitur í matn-
um.
Á aðalsímstöðinni í Berlín geta út-
lendingar fengið að tala við mann,
sem kann 23 tungumál, ef þeir eru
i vandræðum með að skilja síma-
stúlkurnar.
----x-----
Söngleikhúsið Covent Gardens í
I.ondon verður nú rifið til grunna
en í stað þess reist stór og mikill
söluskáli fyrir venjulegar markaðs-
afurðir og á hann að verða fullger
á næsta ári. Þegar Covent Jardens
er úr sögunni er ekkert stórt óperu-
'eikhús eftir i heimsborginni London.