Fálkinn - 14.10.1933, Blaðsíða 12
12
F Á L K I'fí N'
STJÓRNARBYLTINGIN Á CÚBA.
í 36. tölublaði Fálkans var
sagt fra stjórnarbyltingunni á Cuba
og frá Machado forseta, sem steypt
var af stóli þar, eftir að hann hafði
ríkt þar sem einvaldur harðstjóri
í nokkur síðustu ár. Svo virðist sem
Machado hafi haft margt ljótt á
samviskunni og að allir hafi orðið
fegnir að losna við hann, en hins-
vegar má draga í efa, hvort þeim
sem tekið liafa við stjórnartaum-
unum muni takast að friða landið
og koma á þingræðisstjórn. —
Myndin hjer að ofan er frá Hav-
ana, höfuðborginni á Cuba og sýn-
ir fagnaðarlæti almennings, er það
frjettist að Machado væri oltinn úr
sessi.
SVNDKONAN SEM DÓ AF OFREYNSLV
. .Myndirnar lijer að ofan eru af
19 ára gamalli sundkonu, sem hjet
Ruth Lipzig og setti nýlega met i
því, að vera lengi í sjó. Var hún
samtals 79 líma á sundi. Það er
sagt, að móðir hennar hafi lagt
svo fast að henni að setja þetta
inet, að stúlkan hafi ekki þorað
annað, enda hafði kerla verið upp
með sjer yfir þvi, þegar hún kom
með dóttur sína nær dauða en tífi á
sjúkrahúsið, að hún ætti duglegustu
sundkonu heimsins fyrir dóttur. En
þessi langa dvöl í sjónum hafði orð-
ið stúlkunni ofraun og dó hún
tveim dögum eftir að hún kom á
sjúkrahúsið, án þess að hafa feng-
ið meðvitundina.
UPPGJAFAKEISARINN LIFIR í
VONINNI
Kunnur enskur blaðamaður, Gle-
velyn Thomas hefir heimsótt Vil-
hjálm keisara í Doorn og segir hann
að hann hafi ekki enn gefið upp
vonina um að verða á ný keisari
i Þýskalandi. Hann er reiðbúinn
að hverfa heim „undir eins og
kallað er á hann“.
Ekki vildi keisarinn tala neitt um
Hitler við biaðamanninn, en gat
þess að þeir væri ekki persónu-
lega kunnugir. Hinsvegar virtist
keisarinn vel kunnugur stjórnar-
stefnu Hitlers. En Hermína prins-
essa, sem hefir kynst Hitler á ferð-
um sinum til Þýskalands dáist mjög
að honum. Hún sagði að hann væri
mikilmenni og sá maður, sem
Þýskaland þyrfti á að halda nú.
Þegar blaðamaðurinn drap á, að
Englendingar álitu að keisarinn
væri ósamþykkur Gyðingaofsóknum
Hitlers, neitaði hann ákveðið að
gefa nokkuð út á það. En Hermine
sagði, að keisarinn liefði ekki ver-
ið óvinveittur Gyðingum fyrir strið.
Hann hafði meira að segja haft
Gyðinga í stjórninni, en þeir hefðu
hagað sjer svo illa, að keisarinn
hefði fengið andúð á þeim.
FJÁRSJÓÐIR „LVSITANIV".
í árslok 1931 fór enski kapteinn-
inn H. H. Railey að vinna að því
áformi að láta kafa niður að
‘OSKAÐLEGT’
ULLARFLÍKUM
Halda peisur ykkar og sport ullar-
föt mýkindum og lit ef þau eru
þvegin ? AuSvitað gjöra þau það
ef Lux er notað. Luxlöðrið skilar
öllum ullarfötum eins ferskum
og skærum eins og þau væru ný.
Enginn þráður hleypur þegar Lux
er notað og flíkin er altaf jafn
þægileg og heldur lögunsinni.
Eina örugga aðferðin við þvott á
uilarfötum—er að nota freyðandi
Lux.
STÆRRl PAKKAR og
FÍNGERÐARI SPÆNIR
Hinir nýju Lux spænir, sem eru
smærri og fíngerðari, eii þeir
áður voru, leysast svo fljótlega
upp að löðrið sprettur upp á ein-
ni sekúndu. Skýnandi og þykkt
skúm, fljótari þvottur og stserri
pakki, en verðið helzt óbreytt.
LUX
LEVER BROTHERS LIMITED
PORT SUNI.IGHT, ENGLAND
M-l_X 397-047A IC
RISAFL V VJEL
Flugsamgöngur milli Kaup-
mannahafnar og Berlínar hafa auk-
ist svo mjög, í sumar, að ákveðið
hefir verið, að setja eina af stærstu
landvjelum Evrópu i fastar ferðir
á þessari leið. Heitir vjel þessi
„G 38“. Iijer á myndinni sjest fram-
hlutinn á þessari vjel. „G 38“ er
44 metra breið milli vængjabrodda.
og er 23 metra löng, en knúð á-
fram með fjórum Junker-hreyflum,
og er hver þeirra 800 hestöfl. Þessi
vjel ber fjörutía farþega auk póst-
flutnings og farangurs.
„Lusitaniu“, skipinu mikla, sem
Þjóðverjar kafskutu i ófriðnum,
skamt frá írlandsströnd.
Kapteinninn hefir nú fullgerl
köflunaráhöid sín og ætlar að gera
tilraun á næstunni. Var hann ný-
lega í Southampton. Hann segir að
það sjeu öfgar að mikið af gulli
sje í skipinu, en hinsvegar sje í
geymsluklefa skipsins mikið af dýr-
gripum og peningum. Einn farþeg-
inn hafði t. d. afhent um 200.000
kr. til geymslu. Er Jiað tilætlunin
að komast i klefann og ná Jiví sem
þar er.
En kapteinninn segir, að þó sje
sjer það meira áhugamál að reyna
hvernig nýju köfunartækin gefist.
María Theresía Austurrikisdrotn-
ing átti 16 börn. Af þeim urðu 2
keisarar en 3 drotningar.
«’