Fálkinn - 10.03.1934, Blaðsíða 2
9
I' Á I. R 1 N N
------- GAMLA BÍÓ ----------
Bros gepnm tár.
Gullfalleg og efnisrík talmynd
i 12 þáttum eftir leikriti JANE
COWL og JANE MUHFIN:
‘ „SMILING THROUGH".
Aöaihlutverkin leika:
NOIUIA SHEARER
FREDRIC MARSII
LESLIE HOWARD
„Bros gegnum tár“ hiaut lieið-
urspening í gulli sem besta
mynd Bandaríkjanna 1933.
Það er mynd sem hrífur
hjörtu allra.
EGILS
PILSNER
BJÓR
MALTÖL
HVÍTÖL.
SIBIUS
SÓDAVATN
GOSDRYKKIIÍ,
9 tegundir.
SAFT
LÍKÖRAR, 5 teg.
Nöfnin ,EGILL‘ og ,SIRIUS‘
j tryggja gæðin.
1 H.f. Ölgerðin
| Egill Skallagrimsson
Sími 1290.
Reykjavík.
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■H
INSULITE-
veggplötur.
Efni þetta ryður sjer nú mjög til rúms hjer á Iandi,
eins og annarsstaðar í heiminum. Það hefir verið notað
í 100 hús á íslandi með mjög góðum árangri. I n s u I i t e
einangrar betur en nokkurt annað byggingarefni. Það
gerir húsin hljóðþjett, hlý og rakalaus. Notið það í ný
og gömul hús.
Hart Insulite
er til margvíslegra nota betra en aðrar vegg-
plötur. Athugið verð og gæði.
INSULITE
er mjög fallegt að lit, og vekur aðdáun allra
byggingameistara og listamanna.
EINKASALI Á ÍSLANDI:
Timburverslunin
Völundur h.f.
Reykjavík.
----- nýjabío -------------
Bláa paradísin.
Ljómandi skemtileg frönsk
mynd, tekin undir stjórn Joe
May i París og fegurstu skemti
stöðum við Miðjarðarliaf.
Aðalhlutverk:
BRIGITTE HELM,
ALBERT PREJEAN og
JAQUELINE MADE.
/Erslafull, fyndin og fögur
mynd!
SVAM-VITAMIN
smjðrlíki
Ier eina íslenska
smjörlíkið, sem
jafngildir sumar-
smjöri að A-fjör-
efnamagni.
Best að aucjlýsa I Fálkanum.
Hljóm- og
RROS tiEGNUM TÁR.
Þessi mynd, sem gerð er eftir
leikritinu „Smiling Through“ eftir
Cowl og Murfin og tekin af Metro
Goldwyn Mayer undir sljórn Sid-
ney Franklin, hlaut heiðurspening
„Photopiay" sem besta mynd árs-
ins 1933. Enda mun flestum er
hana sjá bera saman um, að tæp-
iega sje unt að hugsa sjer hugnæm-
ari mynd og betur leikna.
Sagan sem myndin segir er í
stultu máii þessi: Sir John Cart-
eret hefir á brúðkaupsdaginn sinn
orðið fyrir hinum þungbærasta
harmi. Brúður hans, sem hann
unni af alhug, Moonyeu, var myrt
fyrir altarinu, meðan verið var að
gefa þau saman. Morðinginn var
.leremy Wayne, keppinautur hans.
I'essi sorg hefir eitrað alt líf hans
og fylt það hatri til morðingjans.
En það er eins og nokkuð fari að
rofa til i sorg hans eftir að hann
hefir lekið til fósturs Katleen syst-
urdóttur Moonyen, sem varð mun-
aðarlaus í bernsku. Ilún elst upp á
heimili hans og er í öliu lifandi
eftirmynd móðursystur sinnar.
En svo ber það við, að hún verð-
ur ástfangin af Kenneth, syni morð-
ingjans, sem ekki hefir hugmynd
um ódæði föður síns. Undir eins
og sir John verður þessa vísari
blossar hið gamla halur hans upp
á ný og hann fortekur, að þau fái
nokkurntíma að eigast. Kenneth er
að fara i stríðið og hann og Kath-
leen. hafa viljað giftast áður en
hann færi á vígstöðvarnar en fá
því ekki ráðið fyrir ofríki sir
talmyndir.
John, sem hótar Kathleen öllu illu
ef hún giftist Kenneth. Svo fer
hann í striðið og er burtu i fjögur
ár. Að stríðslokum kemur hann
heini aftur sem örkumla hermaður.
Hún leitar hann uppi og fær að
vita, að hann ætlar sjer til Ame-
ríku. Hún grátbænir hann um að
hafa sig með, því að ást hennar til
hans er henni meira virði en alt
annað. En hann neitar. En sögu-
lokin verða þau, að hjarta sir John
mildast og kærleikur hans til
stúlkunnar verður yfirsterkari hatr-
inu til sonar þess iqanns, er svift
hafði hann því, sem honum var
dýrmætast.
Leikendurnir leysa hlutverk sin
hver öðrum betur af hendi, enda
er valinn maður í hverju hlutverki.
Hinn aldraða sir John leikur Les-
lie Howard. En stúlkuna fóstur-
dóttur hans leikur Norma Shearer
og Kenneth Wayne leikur Fredrich
March, hinn ágæti leikari, sem m.
a. hefir orðið frægur í hlutverkum
sínum í „Tákn krossins“ og ,,Dr.
Jekyil og mr. Hyde“. Ennfremur
má nefna Ralph Forbes. — Þessi
hrifandi mynd verður sýnd á
GAMLA BIO á næstunni.
RLÁA PARADÍSIN
Þessi kvikmynd er tekin á
frönsku og ber þess merki, að
Frakkar gera sjer far um, að end-
urbæta kvikmyndaiðnað sinn.
Myndin er einkennileg um margt
og yfir henni er sjerstakur blær,
sem ekki er tíður á kvikmyndum,
en gerir myndina heillandi.
Aðalpersónurnar eru nýgift hjón,
leikkonan Anita Paglioni (Brigitte
Helm) og Henry Keller (leikinn af
.einu mesta eftirlætisgoði Parísar-
búa, Albert Préjean). Þau verða
að fara með giftingu sína eins og
mannsinorð, til þess að spiila ekki
fyrir leikkonunni, þvi að allir vilja
heldur sjá ógiftar leikkonur en
giftar — og hafa ákveðið að ferð-
ast eins og ógift væri suður lil
Capri í brúðkaupsferð. En í sömu
svifum býðst henni kvikmyndalilut-
verk í París og hún kýs það frem-
ur en ferðalagið. Maðurinn hennar
verður reiður og einsetur sjer að
fara samt og velur sjer að förunaut
unga stúiku á ferðaskrifstofunni þar
sem hann hefir keypt farmiðana.
En til þess að hafa vaðið fyrir neð-
an sig segist stúlkan eiga unnusta á
Capri og tekst að hitta rakara þar,
sem tekur að sjer að leika það hlut-
verk. Henry og stúlkan fara svo lil
Gapri og njóta lífsins, en þegar
minst varir kemur konan hans
þangað, þvi að henni hefir fekisl
að fá leikstjórann til að taka úti-
myndirnar þar syðra. Kemst Henri
nú í bobba og skal það ekki rakið
hjer hvernig greiðist úr þessari
flækju.
Það sem myndin hefir sjer til
gildis, auk ágæts leiks, eru hinar
undurfögru náttúrusýningar, sem
myndin er mettuð af. Flestar þessar
sýningar eru frá frægum skemti-
ferðastöðum, sem flestir hafa heyrt
getið. Sumt fer fram við Riviera,
sumt á Capri og í tilbót ferðast á-
horfandinn með leikendunum upp
Vesuvíus, alla leið upp að eldgign-
um. í myndinni eru ijómandi falleg
ítölsk lög sungin.
Það er hinn alkunni gamanleikja-
stjóri Joe May, sem hefir annast
leikstjórn þessarar myndar og tek-
ist svo vel, að þessi mynd ber það
nafn með rentu að heita ein skemti-
legasta og unaðslegasta gamanmynd
sem lengi hefir sjest. Stuðlar og þar
að hinn ágæti leikur þeirra tveggja
aðalpersóna sem nefndar voru en
auk þeirra má nefna Jaquellne
Made, Jim Gerald og Pierre Bras-
seur, sem öll leika ágætlega. Enda
hefir myndin fengið ágæta dóma
hvar sem hún hefir verið sýnd
hingað til. Hún kemur fram bráð-
lega á Nýja Bíó.
Engin þjóð hefir aukið útflutn-
ingsverslun sína eins stórkostlega á
síðustu árum og Japanar. Má segja
að vörur þeirra, sem framleiddar
eru með margfait ódýrari vinnu-
krafti en i Evrópu og Ameríku
ryðji sjer rúms um allan heim, þó
að hvergi hafi þær náð eins mikl-
um markaði og í Indlandi -— á
kostnað Breta. Nýlega fóru Japanar
að senda lifandi fisk yfir þvert
Kyrrahafið til San Fransisko og
var hann boðinn miklu lægra verði
en heimaveiddur fiskur. En ltoose-
velt var fljótur til og bannaði þeg-
ar þessa verslun.
——x------
Metro-Goidwyn-Meyer er í sarnn-
ingum við Franz Lehar um að kvik-
mynda frægustu óperettu þessarar
aldar, „Iíátu ekkjuna". Eiga Maur-
ice Chevalier og Jeanette MacDon-
ald að leika aðalhlutverkin, en leik-
stjórinn verður Ernst Lubitz. Og
Lehar á sjálfur að stjórna liljóm-
sveitinni. Það verður mynd, sem
horfandi er á.