Fálkinn - 20.10.1934, Side 1
42,
Reykjavík, laugardaglnn 20. október 1934
VIL
Frá
Lapplandi.
Landflæmin nyrst á Skandinavíu-
skaga, sem einu nafni eru kölluð
Lappland en hjetu á fornu máli Finn-
mörk, eru um fjórum sinnum stærri
en ísland. Var Finnmörk í upphafi
norskt skattland, en síðar fóru Svíar
og Rússar að gera út grávörukaup-
menn þangað og heimta skatt. Með
samningum þessara ríkja 1751 og 1826
var landinu skift milli þessara þriggja
landa, og samningar eru einnig um,
að hreindýraeigandi, sem býr t. d. inn-
an landamæra Svíþjóðar megi beita í
Noregi suma tima ársins, því að eins
og kunnugt er flytja Lapparnir sig til
með hjarðir sínar eftir árstíðunum.
Landið er hrjóstugt og skóglaust og
svipar að þvi leyti til íslenskra öræfa
og hreindýrarækt er aðalatvinmweg-
urinn. Málmar eru þar i jörðu, svo
sem við Kiruna og Gellivare og hafa
risið upp þorp og smábæir í sam-
bandi við námurndr. Ilæsta fjallið í
Lapplandi heitir Kebnekaise, sem er
litlu lægra en Öræfajökull. — Sakir
nádtúrufegurðar hefir ferðamannaað-
sókn aukist mjög til Lapplands síð-
ustu áratugi og má segjco að Lappland
sje helsti keppinautur íslands, því að
margt er líkt með báðum löndunum,
þó þjóðir óg þjóðlíf sje gerólíkt. fíæði
löndin eru strjálbygð fjallalönd og
stendur Lappland betur að vígi um
það, að eigi þarf að fara sjóferð til
að komast þangað. — Hjer á efri
myndinni sjest norski krónprinsinn
og kona hans (í Lappabúningum) á
gangi í Kautokeino en að neðan eru
/;au í sleða.
:;x:x;:x