Fálkinn


Fálkinn - 16.02.1935, Síða 14

Fálkinn - 16.02.1935, Síða 14
14 F.ÁL.KIN'N „Dm ?ð oera að vera foisjáir. Sraásaaa eftir Dick Fonck. — Það er maSur hjerna frammí, sem langar að tala við yður, sag<5i skrifstofustúlkan og rjetti forstjór- anum nafnspjald. Smith lypti gleraugunum upp á ennið og sneri spjaldinu milli fingr- anna. — William Stockton for- stjöri, ias hann á spjaldinu. - Þekki hann ekki, tautaði hann. Mintist hann á erindið? — Nei, ekki annað en að það væri áríðandi. — Auðvitað. Það segja þeir allir. Látið þjer forstjórann koma inn. Stór maður dökkklæddur og hérðibreiður kom að vörmu spori inn úr dyrunum. Smith stóð upp og gesturinn kom á móti honum með útrjetta hendina: — Er það hr. Smith? sagði hann. —- Jeg er Stockton forstjóri frá London. — Gleður mig að kynnast yður, sagði Smith og bauð gestinum 'stól. Hva'ð get jeg gert fyrir yður? Stóckton rendi augunum í flýti kringum sig, til að sjá hvort þeir vær.u einir. — Jeg hefi uppásturigu, sem jeg hýst við að þjer hafið á- huga fyrir. Nú skal jeg sýna yður meðmæli mín, sem jeg býst við að þjer gerið yður ánægðan með, eri málið er þess eðlis, að jeg verð að biðja yður um, að láta ekki trufla okkur, meðan við erum að ræða það. Smith hnyklaði brúnirnar. Þetta var óvenjulegur formáli, en þessir Lundúnamenn höfðu sína siði. — Skrifstofutíminn er úti eftir fimm mínútur, sagði hann og leit á úrið. Þessvegna verðum við lijer í al- gerðu næði. — Það er ágætt, svaraði Stock- ton. — Viljið þjer nú gera svo vel að lita á meðmælin? Og svo rjetli hann Smith nokkur brjef. Hann blaðaði í þeim. Alt virtist vera í bestu reglu; brjefin voru öll frá kunnum firmum i London. Nú var barið á dyrnar og stúlk'i kom í gættina. — Þakka yður fyrir, sagði Smith, nú er það ekki fleira í dag. Víð Stockton forstjóri ætlum aðeins að tala saman dálitla stund. Smith tók sarrian brjefin og rjelti Stockton þau. — Jæja, hvað þókn- ast yður, spurði hann svo. — Þá getum við tekið til ósiltra málanna, sagði Stockton. — Yðu-' hefir verið falið að útvega perlu- festi handa — nú, já, nafnið þarf maður ekki að nefna, en þjer skilj- ið að jeg fylgist með. Leyfið mjer að sýna yður hana, áður en við höldum lengra áfram. Hann hnepti frá sjer jakkanum og tók fram fallegt leðurhylki. Smilh gat ekki neitað því, að hann fór að verða forvitinn. Framferði Stoc- klons var í hæsta máta óvenjulegí, svo að hann bjóst við einhverju skrítnu. Og hann varð heldur ekki fyrir vonbrigðum. Stockton opnaði hylkið og dró upp úr því gljáandi skammbyssu og miðaði henni á þriðja vestis- hnappinn á Smith. — Hún er hlað- in, sagði hann og nú var horfin kurtéisin serri verið hafði i rödd- inni. Smith starði á skammbyssuhlaup- ið, Nokkrir svitaciropar höfðu kom- ið fram á enriinu á honum, en ao öðru léyti sýndi hann ekki af sjer nein merki um ótta. — Jeg bý.st við að. þjer sjeuð kominn hingað til að rcéna mig, sagði hann eftir drykklanga stund. Hvað viljið þjer hafa? . " .' ; ’ " Góði, þprr.a Smith, yður skjátl- ast. Jeg er kominn hingað til að sem náttúrufriðunarfjelagið danska mann. Inniheldur bók þessi ein- FRÁ SUÐUR-SJÁLANDI. hefir gefið út í samvinnu við einn göngu myndir frá Sjálandi sunn- Myndin hjer að ofan er úr nýút- af bestu áhugaljósmyndurum Dan- anverðu. Myndin sem hjer fylgir ef komnu skrautprentuðu myndariti, merkur, Sigvart Werner stórkaup- af ströndinni við Bisserrup. gera verslun við yður. Hreina og beina verslun, sem jeg ætla mjer vitanlega að hafa hagnað af. Hagn- að vill maður hafa af allri verslun. Jeg ætla að selja yður dálítið. En það óvenjulega við verslunina er, að jeg ræð sjálfur verðinu. — Reynið ekki að vera fyndintj, sagði Smith og reyndi að gera sjer upp bros. Haldið þjer yður við efnið. Hvað viljið þjer? Gesturinn stóð upp og steig eitt skref aftur á bak. — Sitjið graf- kyr, sagði hann skipandi. Ef þjer reynið að kalla á hjálp þá skyt jeg. Jeg er ekki lamb að leika við, og þjer skuluð eklci halda, að þetta sje fyrsta verslunin af þessu tæi, sem jeg geri. — Jeg hefi í vasan- um öslcju með einmitt þeirri perlu- festi, sem þjer eigið að útvega. Verðið er mjög sanngjarnt Jeg vii selja festina fyrir 2000 pund, með því skilyrði, að verslunin sje gerð strax og að þjer gefið mjer kvitt- un fyrir viðtökunni. Smilh tók við öskjunni sem gest- urinn rjetti að honum. — Þetta er ekki tíu punda virði, sagði hann er hann hafði skoðað gripinn. Gesturinn hló. — Því miður verður þessu samtali nú að vera lokið, sagði hann. Verðið er eins og jeg sagði 2000 pund, en hækkar upp í 3000 pund ef þjer ákveðið yður ekki innan einnar mínútu. Jeg veit að þjer hafið peningana. Þjer ljetuð í dag borga yður 2000 pund fyrir tjekkávísun. Þjer sjáið að jeg er öllum hnútum kunnugur og að yður þýðir ekki að vera með neinar vífilengjur. Nú jæja, það lík- ar mjer! Smith hafði staðið upp. Gestur- inri fylgdi honum eftir og snart hann í bakið með skammbyssu- hlaupinu. — Verið þjer nú fljótur, sagði hann. Smith tók upp lyklakippu og opnaði peningaskápinn. Hann taldi 20 hundrað punda seðla og rjeiti gestinum þegjandi. — Það er rjett. Og svo var það móttökuskírteinið. Setjist þjer og svo skal jeg lesa yður fyrir. Smith skrifaði viðurkenninguna með settri hendi og skrifaði nafn sitt undir. — Sjáið þjer, þetta gekk alveg þjáningarlaust. Jeg verð að biðja yður um að fá yður sæti i stólnum meðan jeg sker á símaþræðina. Svona nú! Ja, því miður neyðisl jeg til að binda yður í stólinn, en jjjer fáið að hafa hendurnar laus- ar, svo að þetta er ekkerl óþægi- legt. Það kostar yður í liæsta lagi hálftíma að losa yður aftur. En þá skal jeg vera kominn langt í burt í minni iðju er um að gera að vera forsjáll. Alt verður að vera ger- hugsað fyrirfram og hvergi má bresta. Jæja, svo held jeg að það liafi ekki verið annað. Verið þjer sælir, herra Simth, og þakka yður fyrir viðskiftin. Um leið og lyklinum var sriúið fyrir að utanverðu sneri Smith stólnum að skrifborðinu sínu. Með því að teygja sig gat liann opnaö annan skápinn og tók fram síma- áhald. — Er ]jað lyftuvörðurinn? Þetla er Smith forstjóri, á 6. hæð. Stöðv- ið lyftuna á milli liæða, þegar hún er á Ieiðinni niður. Ha, er liún að. fara niður? Jæja, stöðvið þjer hana uildir eins. Er það' búið? Ágætt, hringið þjer svo á næslu lögreglu- stöð og biðjið um að senda lög- reglu hingað. Gott. Og svo sendið þjer einhvern hingað upp til þess að opna fyrir mjer. Já, jeg er lok- aður inni. Nei, nei, engin hætta á ferðum. Gætið þjer bara vel að lyff- unni. Horium tókst að ná í vindlavesk- ið sitt. Þegar hann hafði kveikl sjer í vindli horfði hann brosandi á tóbaksreykinn og tautaði: - í minni iðju er um að gera aö vera forsjáll! Best að auglýsa í Fálkanum. MICHAEL HANSEN danski flugmaðurinn, sem lók þátt i Astraliufluginu sjest hjer a mynd- inni. Er hún tekin meðan hann slóð við í Bagdad.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.