Fálkinn - 06.07.1935, Blaðsíða 5
F Á L K 1 N N
5
sænskum bygSarlögum, einkum
með því markmiði að gera ung-
lingum úr skólum landsins ó-
dýrara að ferðast um og kymi-
ast landinu. Á þessum gisti-
heimilum eru stórir svefnskál-
ar með dýnum og værðarvoð-
um og greiði seldur þeim þeim
sem hafa vilja. Heíir fjelagið
mestpart leigt húsnæði til þess-
ara gistiheimila og voru þau
orðin 93 síðastliðið liaust, um
alt landið sunnanvert. Auk þess
hefir fjelagið komið sjer upp
sumarheimilum til langdvalar
fyrir unglinga. Yfirleitt beinist
starfsemin hin síðari ár mjög
að því, að auka kynnisferðir
unglinganna og veitti fjelagið25.-
000 krónur síðastliðið ár til jiess
að stjækja þessar ferðir. Á af-
mæli sínu í vetur stofnaði það
sjóð til styrktar unglingaferða-
laga, og gaf ríkisstjórnin fje-
laginu í afmælisgjöf 100.000
krónur í þennan sjóð, um leið
og hún vottaði fjelaginu þakkir
sínar fyrir vel unnið starf á
undanförnum 50 árum.
Á fjallvötnunum í Norður-
Svíþjóð á fjelagið ennfremur
8 stóra vjelbáta lil skemti-
ferðalaga og auk þess hefir það
komið sjer upp 70 ferjubátum
við ár í óbygðum. Og um 1300
kilómetra af óbygðaleiðum hef-
ir það rutt og varðað.
Árbók sænska ferðal'jelagsins,
sem byrjaði sem lílið kver er
nú orðin prýðileg bók og hver
árgangur mörg hundruð blað-
síður að slærð með fjölda góðra
mynda. Framan af voru í ár-
bókinni, ferðalýsingar og upp-
lýsingar á víð og dreif, en síð-
ustu tuttugu árin hefir hver ár-
gangur verið lielgaður ákveðnu
hjeraði. Með þessari breytingu
varð starfið skipulegra en áður
og eignast þjóðin smátt og
smátt ítarlega lýsingu á land-
inu, eigi aðeins náttúru þess
heldur einnig fornmenjum,
gömlum byggingum og nýjum
verklegum fyrirlækjum, þjóð-
siðum, búningum og fleiru. Auk
árbókarinnar gefur fjelagið út
minna rit sem heitir „Svensk
Turistkalender“ með ýmsum
upplýsingum, sem ferðafólki
mega að haldi koma og enn-
fremur mánaðarrit nú hin síð-
ustu árin. Og öðru hverju fylg'ja
svo ársritinu stórar bækur, með
lýsingu á borgum og bæjum, t.
d. Bókin um Stokkhólm. Alt
þetta fá fjelagsmehn fyrir ein-
ar fimm krónur á ári, svo ódýr
verður útgáfan vegna þess hve
upplögin eru stór.
Skrifstofa fjelagsins er nú
orðið svo mikið bákn, að þar
starfa um 50 manns, auk starfs-
fólksins á skrifstofunum í
Gautaborg og Málmey. Fram-
kvæmdarstjóri fjelagsins nú,
eða ritari sem bahn er kallað-
lir, er ungur doktor í landfræði
og lieitir Carl-Julius Anrick og
á fjelagið honum viðgang slnn
hin síðari árin meir að þakka
en nokkrum öðrum manni.
Hann tók við starfinu fyrir 15
árum og skömmu síðar fjölgaði
fjelögum meira á einu ári, en
nokkurntíma liafði orðið áður
í sögu fjelagsins. Næstur hon-
um kernur fjehirðir fjelagsins.
Eru þessir báðir meðlimir í
framkvæmdastjórninni, en liún
er skipuð 14 mönnum og for-
maður hennar hin síðustu árin
er Arthur Lindhagen justitsráð,
eu varaform. Hilding Kjellman
prófessor. í ritstjórn fjelagsins
sitja fjórir, ein stúlka gerir ekk-
ert annað en hafa reglu á
myndasafni fjelagsins, sem tel-
ur 65.000 myndir og einn mað-
ur sjer um bókasafn fjelagsins.
Ferðaskrifstofa fjelagsins þarf
12 manns að staðaldri og meira
um skemtiferðatimann. Gegnir
hún öllum venjulegum ferða-
skrifstofustörfum og annast auk
þess hópferðir og undiríbýr
skólaferðirnar. Siðustu 15 árin
hefir fjelagið gert úl 363 hóp-
ferðir með samtals 18.086 þátt-
takendum.
Ferðaleiðbeiningarnar eru
mikið starf. Fjelagið hefir lek-
ið þar upp aðferð, sem margir
hafa síðan tekið ujip eftir því.
Það lætur prenta stuttar leiðar-
lýsingar af ákveðnum stöðum
og komi svo einhver að fá upp-
lýsingar um ákveðnar leiðir, eru
settir sainan handa honum i
hefti miðar * með lýsingum á
þeim stöðum sem hann ætlar
til, svo að hann hefir lýsingu á
allri leiðinni, vegalengdum,
gististöðum og því sem mark-
verl er að sjá. Þessar ferðalýs-
ingar hafa orðið mjög vinsælar.
Eftirlitið með sæluhúsunum
og umsjón með ferðaáhöldum
þeim, sem fjelagið leigir út er
mikið og vandasamt starf, og
umsjónarmaðurinn, Nils Fröling
veiðimeistari ferðast meira en
nokkur annar af starfsmönnum
ferðafjelagsins. Á hverju sumri
gengur hann yfir 700 km. á
íjöllum og á hverjum vetri yfir
500 km. á skíðum, en það sem
hann fer í járnbrautum og bif-
reiðum verður ekki með tölum
lalið. Hann gerir tillögur um
hvar reisa skuli ný sæluhús og
lítur eftir byggingu þeirra og
hefir tvo aðstoðarmenn. Iljá
gjaldkeranum vinna 6 aðstoð-
armenn og að útsendingu 5, en
brjefritararnir eru 4 og 6
manns starfa að þvi að liafa
meðlimaskrána jafnan í lagi.
Loks eru þrjár stúlkur i sölu-
deild skrifstofunnar og ein
ljómandi falleg stúlka hefir á
hendi söfnun auglýsinga í rit
þau, sem fjelagið gefur út.
En hjer er eigi talið starfs-
fólk fjelagsins. Víðsvegar um
alla Sviþjóð og í nágrannalönd-
unum hefir fjelagið umboðs-
menn, sem safna nýjum með-
limum og veita upplýsingar um
slarfsemi þess og leiðbeiningar
um ferðalög. — --------
Ilin almenna upplýsinga- og
fræðslustarfsemi fjelagsins er
vitanlega mesl fólgin i bókaút-
gáfu þess. Hefir fjelagið frá
öndverðu gefið út 586 bækur og
ritlinga um ferðalög, í samtals
9.076.325 eintökum. Auk árbók-
anna bafa verið gefnar út yfir
20 ítarlegar ferðabækur um ein-
stök bjeruð og landsvæði, mik-
ið af uppdráttum og mýnda-
bækur. Þá liefir fjelagið gefið
út yfir 1200 brjefspjöld með
myndum frá Svíþjóð og fjöld-
an allan af skuggamyndum,
sem eru flokkaðar eftir stöðum,
um 50 myndir í hverjum flokki.
Þessir myndaflokkar eru lán-
aðir fyrirlesurum og fjelögum,
bæði innanlands og erlendis. —
Þetta brafl af upplýsingum,
sein hjer hefir verið gefið, ætli
að nægja til þess að sýna, að
Sænska ferðafjelagið er mikið
og margþætt fyrirtæki. Það er
efasaint livort nokkuð ferða-
fjelag í heimi, hefir unnið til-
tölulega jafn mikið starf fyrir
land sitt og þjóð og það er haf-
ið yfir allan vafa, að fjelagið á
meiri itök í þjóð sinni, en títt
er um ferðafjelög annarsstaðar.
Það hefir opnað landið fyrir í-
búum þess, kent fólkinu að
ferðast og meta fegurð þess
sem fyrir augað ber úti í
guðsgrænni náttúrunni og með-
al blánandi fjalla. Ferðahreyf-
ingin i Svíþjóð er orðin að á-
Irúnaði. Þar þykir engin skemt-
un betri en ganga á fjöll, eng-
inn matur smakka eins vel og
bitinn úr malnum, ekkert rúm
jafnast á við harða dýnu í sælu-
húsi. Allir, bæði ríkir og fátæk-
ir, leggja kapp á, að komast á
burt úr þjettbýlinu, bæjar-
mollunni og vegarykinu, upp i
óbygð fjöll og til afskektra dala
og verða þar að nýjum og betri
mönnum í faðmi náttúrunnar
og fá tækifæri til „að tala við
sjálfan sig i næði“. —-------
Það kom berlega í ljós á 50
ára afmæli fjelagsins í febrúar
síðastliðnum, hve afar miklum
vinsældum fjelagið á að fagna
meðal þjóðarinnar. Svíar liika
ekki við að telja þennan fje-
lagsskap, sem stofnaður var al'
uokkrum jarðfræðistúdentum
fyrir 50 árum, þjóðþrifafyrir-
tæki, sem nauðsynlegt sje að
lilúa að og sem aldrei verði
gert of mikið fyrir. Og vinsæld-
ir fjelagsins eru alstaðar jafnt,
meðal allra stjetta.
Afmælisdagurinn liófst með
því, að fulltrúar ýmsra fjelaga
og stofnana fluttu fjelaginu
kveðjur, ávörp og gjafir á skrif-
stofum þess á Stureplan 6. Var
stjórn fjelagsins þar öll viðstödd
en formaðurinn Lindhagen just-
itsráð og ritarinn, dr. Anrick
lóku á móti kveðjum fvrir hönd
Ijelagsins. Þar báru fram kveðj-
ur fulltrúar flestra ferðafjelaga
í Evrópu, því að alþjóðaþing
terðafjelaganna var háð í
Stokkhólmi um þessar mundir
og sátu það um 80 erlendir full-
trúar. Þar komu 15 af lands-
höfðingjum Svíþjóðar til þess
að færa fjelaginu óskir og þakk-
ir, visindafjelög, fulltrúar há-
skólanna, og ótal margir aðrir,"
sem lijer yrði of langt að telja.
Salurinn fyltist von bráðar al'
blómum og fagrar gjafir og
skrautbundin ávörp fyltu borð-
in. Peningagjafir bárust fjelag-
inu einnig, einkum frá ýmsum
stofnunum, sem hafa atvinnu
af skemtiferðalögum og renna
þær í styrktarsjóðinn til ferða-
laga unglinga. Ein gjöf var þess
eðlis, að varla verður komist
hjá að nefna hana. Það var olíu-
fjelag eitt i Stokkhólmi séni
gaf — alt starfsfólk sitt, 722
manns — sem meðlimi í fjelag-
inu og borgaði tillag fvrir þá i
eitt ár.
Klukkan 4 síðdegis var svo
baldið til Uppsala, en þar var
Frh. á bls. l't.
Myiiílin er tekin á skrifstufum Suenska Turistföreningen árdegis á af-
mælisdaginn, þegar fulltrúar og nefndir komu þangað, að bera stjóru-
innni kveðjur sínar. Frá vinstri sjást justitsráð Arthnr Lindhagen for-
seti fjelagsins og dr. Carl.-Julins Anrick aðalrilari þess, taka á móti
kveðju lappneska hreppstjórans Kráik og konu hans.