Fálkinn - 04.01.1936, Page 15
F A L K I N N
15
Leikhúsið:
„í annað sinn“
Eftir BARRIE.
Eiiska leikritiö, sein i.eikfjelag
Réykjavíkur valdi til sýningar um
jólin, er eftir eitt af frægustu skáld-
um Breta, lárviðarskáldið Barrie.
Efni leiksins og fyrirkomulag er
með mjög óvenjulegum hætti, svo
að telja má leikinn æfintýraleik i
aðra röndina, þó að hann sje raun-
verulegur í hina. Leitast höfundur-
inn við að sýna, hvernig menu-
irnir mundu nota sjer það, ef þeir
i'engju kost á að gera hlutina upp
aftur, og nota sjer reynslu, sem
þeir hafa fengið í lífinu. Og lætur
liöfúndurinn þetta ske á þann hátt,
að persónurnar fara út í æfintýra-
skóg einn á Jónsmessúnótt og kom-
ast þar alveg í nýtt ástand.
jiann hátt leikur hver leikandi í
raun og veru tvö hlutverk, allir
nema gjörningamaður Lob, sem er
húsbóndi á heimilinu, þar sem leik-
urinn gerist. Er hann leikinn af
Indriða Waage. Önnur hlutverk í
leiknum eru leikin af systrunum
Emilíu og Þóru Borg, Mörthu Kal-
man, Arndísi Björnsdóttur og Soffíu
Guðlaugsdóttur, Ragnari Kvaran,
Haraldi Björnssyni og Brynjólfi Jó-
hannessyni og einnig leikur Dóra
Haraldsdóttir litla telpu. Er með-
ferð leikenda á hlutverkunum mjög
góð og samleikur prýðilegur. Hefir
Ragnar Kvaran stjórnað æfingum
leiksins. Hjer birtast myndir af
Indriða Waage, Haraldi Björnssyni
Mörthu Kalman og Dóru Haralds-
dóttur, og ennfremur af leiksviðinu’
i 2. þætti (töfraskóginum).
Þrítugur bóndi í Liffré í Frakk-
landi hengdi sig út af því, að það
átti að kjósa hann í bæjarstjórn.
Maðurinn lifði i farsælu hjónabandi
og átti tvö efnileg börn, en hafði
altaf haft mestu óbeit á að fást við
opinber störf. Þegar honumt barsl
lil eyrna, að hann hefði verið settur
í örugt sæli á lista við komandi
liæjarstjórnarkosningar, þá gerði
hann sjer lítið fyrir og hengdi sig.
------------------x-----
Hávaðinn er sú plága stórborg-
anna, sem nú er einkum barist á
móti. Svíar hafa bannað bifreiðuin
að nota hornið i bæjum og hefir
sú ráðstöfun verið gerð víðar. í
New York er sagl *að hávaðinn sje
svo mikill, að maður mundi ekki
geta heyrt ljónsöskur í tnttugu
skrefa fjarlægð. f þessu sambandi
er verl að geta þess, hvaða skoð-
anir ýmsir spekingar og mætir
menn höfðu á hávaðanum, og var
hann þó hverfandi á þeirra dögum
móti því sem hann er nú. Ivant,
Goethe og Mark Twain töldu há-
vaðann skaðlegan heilbrigðinni og
tefja fyrir andlegum þroska ungl-
inga. Scopenhauer taldi hann kval-
ræði fyrir greinda menn og verstu
hugsanamorðingja. Var hann I. d.
gramur smellunum, sem ökumenn-
irnir gerðu með keyrum sinum. Það
er til dæmis um álit það, sem
Scopenhauer naut, að tveimur ár-
um áður en hann dó, bannaði lög-
reglan í Núrnberg — en þar bjó
hann - að smella með keyrinu. Sá
ætti bágt ef hann lifði núna!
Bandarikjastjórn hefir nýlega
samið frið eftir heillar aldar ófrið
við Indíánaflokk einn í Florida.
Indiánarnir i Florida hafa aldrei
viðurkent yfirráð Bandarikjanna og
þeir hafa heldur aldrei verið sigr-
aðir að l'ullu. Eftir margra ára
vopnaviðskifti við hermenn stjórn-
arinnar, fluttust þeir inn í illfær
mýrarfen fyrir 50 árum og hafa
hafst þar við síðan og neitað að
eiga nokkur mök við stjórnina eða
hlýðnast henni og borga skatta.
Loks nú hafa Indíánarnir fengist
til að gera út sendinefnd til Was-
hington, að semja frið. Hafa samn-
ingar verið undirskrifaðir og Indí-
ánar fengið ágæt lönd til afnota og
auk þess vilyrði fyrir lánum úr
ríkissjóði til þess að rækta landið
og byggja sjer hús.
Magnús Ketilsson útvegsbóndi,
Bakka í Höfnum, varð rt0 í gær.
Sigurbjörn Á. Gíslason cand.
theol. varð 60 ára 1. jan.
Gísli Jónsson dfgreiðslustjóri
varð 65 ára 1. janúar.
Finnbogi Finnbogason skip-
stjóri verður 55 ára á morgun.
„Niður með tómatsúpuna! Niður
með nýja ávexti! Undir þessu kjör-
orði gerðu 820 sjúklingar á spitala
í PóIIandi verkfall og neituðu að
jeta fjörefnaíæðuna, sem sjúkrahús-
ið framreiddi þeim, en heimtuðu
ket. Jafnvel dauðveikt fólk tók þátt
í „verkfalliniú' og neitaði að bragða
nokkurn mat, fyr en því væri boðið
kjöt. Eftir 32 klukkustunda sultar-
bið urðu læknarnir að fara til for-
stjorans og biðjá hann um, að láta
sjúklingána fá kjöt í stað „fjörefna-
fæðunnar", því annars væri lifi
þeirra hætta búin af sulti. Og for-
stjórinn varð að láta undan. Sjúkl-
ingarnir fengu ketið sitt.