Fálkinn - 18.07.1936, Blaðsíða 7
F Á L K 1 N N
7
Hjer til hægri birtast tvær myndir
af risaloftfarinu L.Z. 129, sem nú
er farið að fara áætlunarf erðir
milli Evrópu og Ameríku og hefir
verið skýrt „Hindenburg". Er þetta
loftskip miklu stærra og að öllu
lexjti fullkomnara en „Graf Zeppe-
lin“. — Myndirnar eru teknar af
loftskipinu meðan það var í smíða-
skálanum og sýnir önnur grind
skipsins, en hin er tekin eftir að
grindin hafði verið klædd með dúk.
Olympíunefnd Dana hjell nýleyu
íþróttamót til ágóða fyrir för
íþróttamanna til Berlín. Mesta at-
hygli vakti þar reiðsýning liðsfor-
ingja úr hernum. Myndin að neðan
sýnir einn liðsforingjann standa á
tveimur hestum og beita þremur
á undan sjer á fleygiferð.
Lögreglan í Kaupmannahöfn hefir
nýlega keypt sjer átta bifreiðar
mjög fullkomnar, handa lögreglu-
þjónum að nota þegar þeim ligg-
ur mikið á. Eru þeir allir með
skilti að framan, en taka má það
af, ef það þykir hentugra. Hjer á
myndinni sjest Thune Jacobsen
lögreglustjóri vera að skoða vagn-
anu.
Þýska herskipið „Deiitschland“
var nýlega i kynnisför i Kaup-
mannahöfn og vakti mikla athyyli
þar. Skipið er ekki nema 10.000
smálestir, en svo vel vopnað og
hugvitssamlega smíðað, að það er
talið geta gert eins mikið gagn og
miklu stærri herskip. Það er 180
metra ilangt og áhöfnin er um þús-
und manns. Myndin til vinstri sýn-
ir herskipið við Löngulínu i Khöfn.