Fálkinn - 02.10.1937, Page 9
F Á L K I N N
9
Myndin til hægri er af Leopold
Belgakonnngi, þar sem hann er
staddnr á sjúkrahúsi barna til að
spyrja e ftir líðan þeirra. Nýtur
komingur mikilla vinsælda ekki
síður en faðir hans og þjóðin öll
hefir eigi síst samúð með konung-
inum, síðan hann misti konu sína
vofeiflega af bifreiðarslysi í hitti-
fyrra.
Myndin er af hinni frægu leikkoiui
Bodil Ipsen í leikriti, sem heitir
„Eva vinnur af sjer barneigna-
skylduna“ og er eftir hinn sjer-
kennilega höfund Kjeld Abell.
Myndin hjer að ofan er af enska
skólaskipinu „Impregnable". Þar
verða nýliðarnir að læra til allra
verka á sjó, sjóða matinn, þvo
gólfin, stoppa sokkana sína og þvo
þvottinn. Myndin sýnir sjóliðana
vera að rulla þvott.
Myndin til vinstri er frá vinnu-
deiluóeirðum vestur í Tennessee-
fylki í Ameríku, en þar getur stund-
um hitnað í blóðinu í fólki ekki
síður en austan hafs. Stúlkurnar á
myndinni hafa ráðist á verkfalls-
brjóta og ætla að afstýra því, að
þeir haldi áfram að vinna.