Fálkinn - 09.07.1938, Síða 5
F Á L K I N N
5
Fyrsta járnbrautarlestin ekur inn á brúna.
smíðað í Englandi heldur setl
saman þar i svo stór stykki,
sem færl þótti að flytja á skip-
um og flýtti þetta lika fyrii
verkinu. En við brúarstaðinn
voru svo allar 60 metra brýrnar
settar saman á verkpallinum,
en svo lók prammi, útbúinn
með lyftu, þau og fór með þau
þangað sem þan áttu að fara
og lyfti þeim i 26 metra hæð og
lagði þau með mestu gælni á
stöplana. betta er einstakur
prammi i sinni röð, og á lík-
lega ekki sinn jafningja i heim-
inum, þvi að brýrnar vógu 500
tonn hver! En brýrnar yfir mið-
opin stóru gat bann þó ekki
ráðið við. Þar varð að reisa
trjepalla í miðjnm opunum og
ltggja brúarhelminga milli
stöplanna og þeirra og skrúfa
svo stálbogana, sem bera brúar-
pallana, saman. Alt gekk þetta
prýðilega og mátti varla heita,
að eitt einasta óhapp bæri að
höndum við brúarsmíðina.
Þó að hin nýja brú sje mik-
ið mannvirki og dýrt — bún
kostar um 10 krónur á hvert
mannsbarn í landinu —- þá er
hún frá verkfræðilegu sjónar-
miði ekki eins merkileg og
Litlabeltisbrúin. Þar eru bæði
miklu lengri brúarliöf og þar
var dýpið undir stöplunum
miklu meira og botninn erfiðari
viðureignar. Undan stöplunum
á Stórstraumsbrúnni var ekki
grafið nema þrjá metra niður,
botninn var svo fastur, að ekki
þótti þörf á meiri undirstöðu.
Og dýpið ekki meira en svo,
að bægt var að nota opna kassa
tii þess að vinna að stevpunni
og greptrinum í.
Eftir brúnni gengur eitt tvö-
falt járnbrautarspor, svo að
járnbrautir geta ekki mæst á
brúnni, enda er þess ekki þörf,
því að þarna ganga varla aðrar
iestir en lestin frá Gjedser til
Kaupmannahafnar kvölds og
morgna. Aftur á móti er öku-
brautin á brúnni 5,6 metra
breið, svo að brúin leyfir mikla
bilaumferð, og ennfremur er á
brúnni 2Lj metra breið gang-
Framh. á bls. íl.
Nokkrir af vígslugestunum talið frá vinstri: Forstjóri þýsku járnbrautanna, bankastjóri þýska ríkisbankans, dr. Schacht, danski sendiherrann
í Luridon, Lerche kammerherra, sjóliðsfgringi Rechnitzer og aðalforstjóri dönsku járnbrautanna, Knutzen.