Fréttablaðið - 29.09.2009, Qupperneq 4
4 29. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR
sumarferdir.is
Í dag er spáð 26°C
hita á Tenerife
Fréttablaðinu hefur borist eftirfarandi
yfirlýsing frá Skúla S. Ólafssyni, sóknar-
presti í Keflavík: „Í gærkvöldi (27/9)
hringdi blaðamaður Fréttablaðsins í
mig og óskaði frétta af viðbrögðum
kirkjunnar vegna þeirra skelfilegu
atburða er átt höfðu sér stað í
Keflavík þann daginn. Í samræðunum
hafði ég það á orði að gerandinn
hlyti að eiga við andleg vandamál að
stríða. Eftir á að hyggja var þetta mjög
óvarlega að orði komist enda má
túlka þessi orð mín á þá leið að þeir
sem þjást af geðrænum sjúkdómum
séu líklegri til ofbeldisverka en aðrir.
Slíkt er þó ekki á nokkurn hátt skoð-
un mín. Ég harma það að hafa látið
þessi orð falla og bið þá afsökunar
sem hefur þar fundist að sér vegið.“
YFIRLÝSING
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
21°
16°
13°
17°
21°
22°
13°
13°
24°
21°
26°
19°
32°
13°
23°
18°
12°
Á MORGUN
5-10 m/s.
FIMMTUDAGUR
3-8 m/s.
6
6
4
4
4
7
7
8
8
7
7
9
10
8
7
6
4
3
5
8
-2 8
0 0
3
5
5
1
1 0
4
5
ÚRKOMULÍTIÐ
Hitinn verður með
ágætum í dag en
á morgun snýst í
hæga norðanátt
með heldur kóln-
andi veðri og élja-
gangi fyrir norðan.
Útlit er fyrir þurru
veðri sunnanlands
fram á fi mmtudags-
kvöld, en þá kemur
myndarlegt úrkomu-
svæði inn á landið
með slyddu eða
snjókomu um allt
land á föstudag.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
HEILSA Of feitum Íslendingum
hefur fjölgað hratt undanfarin
sautján ár. Þeir voru um tíu pró-
sent þjóðarinnar árið 1990 en eru
um tuttugu prósent í dag. Til að
sporna við þessari þróun eru for-
varnir besta ráðið og þá er einkar
mikilvægt að beina sjónum sínum
að börnum og unglingum, segir
Stefán Hrafn Jónsson, einn höf-
unda skýrslunnar Líkamsþyngd og
holdafar fullorðinna Íslendinga frá
1990 til 2007, sem kynnt var í gær.
Stefán sagði í framsögu sinni erf-
itt að benda á nákvæmlega hvað
skýrði þessa þróun, en ýmsar vís-
bendingar bentu til þess að fólk
borðaði óhollari mat en áður og
hreyfði sig minna. Einnig væru
matartímar orðnir óreglulegri en
áður og mörk matartíma og narts
væru óljós. Áfengisneysla hefði
aukist og henni fylgdi hömluleysi
sem gæti skilað sér í meira áti.
Þó að fleiri stunduðu kannski
líkamsrækt væru um það ýmsar
vísbendingar að fólk hreyfði sig
almennt minna, færi allra sinna
ferða akandi og hreyfði sig lítið
sem ekkert í vinnunni.
Stefán sagði mikilvægt að benda
á mikilvægi hreyfingar og næring-
ar í umræðu um líkamsþyngd fólks.
Líkamsþyngd segði í sjálfu sér ekki
mikið um heilsufar. Hins vegar
væri ljóst að Íslendingar, eins og
grannþjóðirnar, væru að þyngjast
og það væri alvarlegt mál enda
fylgdu offitu margvíslegir sjúk-
dómar. Í skýrslunni kemur fram að
fólk sem er talsvert yfir kjörþyngd
er í hættu á að fá ýmsa sjúkdóma,
sykursýki tvö, hjarta- og æðasjúk-
dóma, háan blóðþrýsting og fleira.
Stefán sagði að efla þyrfti for-
varnir á meðal barna og unglinga.
Mikilvægt væri að skólar og heilsu-
gæsla tækju þátt í því verki. Bent
er á í skýrslunni að líkur eru tals-
verðar á því að of feit börn glími
við offitu á fullorðinsárum.
Ögmundur Jónasson heilbrigðis-
ráðherra sagði á fundinum
forvarnir vera eitt mikilvægasta
úrræðið til að bregðast við auk-
inni offitu á meðal Íslendinga, því
yrðu forvarnir rauði þráðurinn á
Heilbrigðis þingi sem haldið verð-
ur á næsta ári. Með skýrslunni
lægi ljóst fyrir hver staðan væri og
það væri ákveðin forvörn að vekja
athygli á því. sigridur@frettabladid.is
Feitum hefur fjölgað mikið
Tuttugu prósent þjóðarinnar eru of feit og of þungum hefur fjölgað hratt undanfarin ár. Leggja þarf áherslu á
hreyfingu og hollt mataræði, ekki síst hjá börnum. Forvörn er besta úrræðið, segir heilbrigðisráðherra.
Í kjörþyngd
33,45%
Of þungir
47,7%
Of feitir
18,9%
Of feitar
21,3%
Í kjörþyngd
46,5%
Of þungar
32,2%
Karlar
18-79 ára
Konur
18-79 ára
Minnihluti þjóðarinnar er í kjörþyngd
Rannsóknin Líkamsþyngd og holdafar
fullorðinna Íslendingar 1990 til 2007
byggir á gögnum um hæð og þyngd
fólks úr sex könnunum á tímabilinu.
Niðurstöðurnar sýna að á tímabilinu
fjölgaði of feitum mikið. Árið 1990
voru rúm sjö prósent karla of feit og
9,5 prósent kvenna. Sautján árum
síðar voru of feitir karlar tæp nítján
prósent og of feitar konur um tuttugu
prósent.
Grafið hér til hliðar sýnir skipting-
una árið 2007. Ef holdafar er greint
eftir aldri var offita mest í hópi 50 til
59 ára karla en minnst í hópi 18 til 29
ára. Offita var algengust hjá konum
yfir sjötugu.
Þegar talað er um of feita er miðað
við þá sem eru með hærri líkams-
þyngdarstuðul (LÞS) en 30. Þeir sem
hafa líkamsþyngdarstuðul á bilinu
25-30 teljast of þungir.
Líkamsþyngdarstuðull er reiknaður
út frá hæð og þyngd einstaklinga
með jöfnunni kg/m2. Sem dæmi er
líkamsþyngdarstuðull manns sem
er 1,80 metrar á hæð og 90 kíló,
90/1,80x1,80=27,8. Viðkomandi
einstaklingur telst þannig vera yfir
kjörþyngd, of þungur, en ekki of
feitur. Sami mælikvarði er notaður
fyrir bæði kynin.
Ekki er talið að þessi aðferð sé
fullkomin er kemur að því að finna út
hvort fólk sé yfir kjörþyngd eður ei,
því að LÞS tekur ekki tillit til vöðva,
beinabyggingar og fleira. Hins vegar
gefa þessar tölur góða vísbendingu
um holdafar þjóðarinnar, einkum
þegar horft er yfir lengra tímabil.
STEFÁN HRAFN JÓNS-
SON Hreyfing og næring
skiptir meginmáli fyrir
heilsufar fólks.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BANKAR Heildareignir Íslandsbanka
eru 629,26 milljarðar króna, sam-
kvæmt stofnefnahagsreikningi
bankans sem birtur var í gær.
Inni í þessari tölu er lausafé
bankans, 53 milljarðar, útlán til
viðskiptavina, 477 milljarðar, og
ógreitt hlutafjárloforð upp á rúma
64 milljarða.
32 prósent útlána eru til ein-
staklinga, sextán prósent til sjávar-
útvegsfyrirtækja, fjórtán pró-
sent til fasteignafélaga, ellefu
til fjárfestingar félaga og 27 pró-
sent til annarra ónefndra atvinnu-
greina. Skuldir eru 564,26 milljarð-
ar og hlutafé 65 milljarðar, samtals
629,26 milljarðar.
Meðal skulda eru innlán fyrir-
tækja og einstaklinga, samtals 372
milljarðar. Innlán frá fjármála-
stofnunum nema 52 milljörðum.
Aðrar skuldir 83 milljarðar.
Inni í skuldatölunni er einnig
skuldabréf upp á 52 milljarða, sem
fellur niður kjósi kröfuhafar að
eignast 95 prósent í Íslandsbanka.
Í tilkynningu frá bankanum
segir að hann hafi „náð að breyta
umtalsverðum hluta óverðtryggðra
skulda sinna í verðtryggðar
skuldir“. Einnig að eignirnar séu
„að verulegu leyti í erlendri mynt
en skuldirnar eru aðallega innlán
í ISK“. Þá segir að nokkur hluti
útlána bankans í erlendri mynt sé
til fólks með tekjur í krónum. Þau
séu „að verulegu leyti meðhöndluð
sem útlán í ISK“ segir þar, án þess
að það sé útskýrt nánar.
- kóþ
Eignir Íslandsbanka að verulegu leyti í erlendri mynt en skuldir í krónum:
Heildareignir 629 milljarðar
ÍSLANDSBANKI Í tilkynningu frá bankan-
um segir að stofnefnahagsreikningurinn
endurspegli „ákveðið afturhvarf til
hefðbundinnar bankastarfsemi“.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
STJÓRNMÁL Framsóknarmenn
leggjast eindregið gegn því að
virðisaukaskattur á matvæli
verði hækkaður. „Slík hækkun
mun koma verst við lágtekjufólk,
atvinnulausa, aldra og öryrkja,“
segir í ályktun fundar þingflokks
og landsstjórnar flokksins sem
fram fór um helgina.
Fundurinn harmar að ríkis-
stjórnin standi ekki heilshugar
að baki Norðlendingum í atvinnu-
sköpun enda sé hlutverk stjórn-
valda að skapa aðstæður og
styðja heimamenn í slíkum
efnum. Þá segja framsóknar-
menn „jákvætt, ef rétt reynist, að
ríkis stjórnin ætli loksins að grípa
til almennra aðgerða til að leið-
rétta skuldir heimilanna“. - bþs
Framsóknarflokkurinn:
Hafnar hærri
matarskatti
VIÐSKIPTI Framtíð breska bíla-
framleiðandans Aston Martin er
óljós þar sem einn aðaleigandi
fyrirtækisins hefur viðurkennt
að eiga í erfiðleikum með að
endur fjármagna skuldir sínar.
Breska blaðið The Guardian
segir að fjárfestingarsjóðurinn
Investment Dar hafi gefið út yfir-
lýsingu um að sjóðurinn hafi náð
samkomulagi við lánardrottna
sína um frystingu á afborgunum
og kröfum þeirra.
Sjóðurinn, sem er í eigu hins
opinbera í Kúvæt og keypti um
helmingshlut í Aston Martin árið
2007, mun hafa orðið hart úti í
fjármálakreppunni.
Breskur bílaiðnaður:
Óljós framtíð
Aston Martin
Frítt í sundknattleik
Sundknattleiksfélag Reykjavíkur (SKR)
býður börnum á aldrinum 9-11 ára
að æfa íþróttina ókeypis fram að
jólum. Skráningar standa yfir (á www.
waterpolo.is) og æfingar hefjast þegar
náðst hefur í góðan hóp. Æfingar fara
fram í Laugardalslauginni.
HEILSA
GENGIÐ 28.09.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,3656
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,46 125,06
197,24 198,20
182,00 183,02
24,450 24,594
21,296 21,422
17,782 17,886
1,3918 1,4000
196,63 197,81
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR