Fálkinn - 09.02.1940, Blaðsíða 7
F Á L K 1 N N
7
A myndinni til hægri sjást sendiherrar erlendra þjóða, sem
aðsetur hafa i Berlín, vera að koma úr heimsókn hjá Hitler
Hitler hefir undanfarið jafnan verið kjólklæddur er hann hefir
tekið á móti sendiherrunum, en á þessu ári hefir hann tekið
upp þá nýbreytni að vera í einkennisbúningi fasista.
Sumir öfunda ef til vill þessa menn, sem eru dómarar ölsýn-
ingu í London, þar sem þeir eiga að prófa 700 mismunandi
tegundir af öli. Sjá myndina að neðan t. h.
Toseanini hinn ítalski er talinn snjallasti hljómsveitasijóri
heimsins, en Wilhelm Furtwangler ber höfuð og herðar yfir alla
þýska hljómsveitastjóra. Að ofanverðu á myndinni sjest hann
vera að stjórna Berliner Philharmonische Orkester á jólunum,
er hljómsveitin tjek fyrir verkamenn í Berlín. Að neðan er
rnynd frá Sportpalast og af skautaheimsmeisturunum Maxie
Herber og Ernst Baier.
■ •«
■
Hjer á myndinni sjást tveir frægir
Danir. Feiti maðurinn í sófanum er
að kveikja sjer í sterkum vindli, og
þó er hann frægasti söngmaður
Dana nú á tlmum og liklega besti
Wagner-tenór nútímans. Það er sem
sje Laurits Melchior. En maðurinn,
sem er að taka mjófilmu af „sel-
skapnum" er Jean Hersholt, sá nú-
tifandi Dani, sem kunnastur er sem
kvikmyndaleikari og sá eini, sem
hefir náð forustustöðu hjá amerik-
önskum kvikmyndafjeiögum. Kon-
urnar þeirra eru líka á myndinni
frú Melchior til hægri. Myndin er
tekin á jólunum síðustu, sem þau
hjeldu saman í New York, en þar
syngur Melchior á Metropolitan-
óperunni á hverju ári.