Fálkinn - 14.02.1941, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Þó að oft sje talað um auðæfi
Bandaríkjanna, þá hefir samt ekki
tekist að ráða bót á fátæktinni, þar
fremur en annarsstaðar. Því að það
mun mála sannast, að hvað skipu-
lag fjelagsmála snertir, þá standa
fíandaríkin ekki eins framarlega og
sum margfalt smærri ríki, til dæmis
Norðurlandarikin flest, en þar mun
fjelagsmálaþroskinn kominn lengst
áleiðis í heiminum. — Myndin til
hægri er frá Cleveland í Ohio, en sú
borg er m. a. fræg fyrir bifreiða-
smíðar. Þar sjest fátæklingur koma
á úthlutunarstað matvæla með tvö
börn sín í kerru, til þess að taka
við skamti af kartöflum og kálmeti,
sem bæjarfjelagið lætur úthluta
þeim, sem lakast eru staddir.
Konungsf jölskyldan enska gerirsjer
mikið far um að heimsækja þá,
sem illa hafa orðið úti af völdum
þýsku loftárásanna. Hjer sjást kon-
ungshjónin í bæ einum í Yorkshire
hjá húsnæðislausu fólki.
1
*■ - ■ .
Ifpllllll
-
' X.
Danir hafa hin síðustu árin gert
sjer mikið far um, að auka kynni
á landi sínu, í þeim tilgangi að auka
skemtiferðalög til Danmerkur. —
Þannig hafa þeir látið taka stóra
kynningarkvikmynd, sem send hef-
ir verið út um veröldina. Iijer er
sýnishorn af þeirri mynd: lífvarð-
arsveit konungsins, með bjarnar-
feldarhúfurnar stóru, sem altaf
vekja athygli. En nú, síðan stríðið
hófst, hafa lífvarðarmennirnir lagt
niður þessar húfur um sinn, en
ganga með stálhjálma.
Hjer til vinstri eru nokkrar mynd-
ir af viðbúnaði Þjóðverja tíl 'þess
að taka á móti loftárásum. Efst t.
v. er fliigvöllur, þar sem orustu-
vjelarnar bíða tilbúnar að mæta
sprengjuflugvjelum óvinanna, en
t. h. er verið að aka vjelunum fram,
eftir að skipun hefir komið um að
láta í loft. Að neðan vjel, sem er að
lyfta sjer og vjel, sem gerir árás
yfir óvinastöðvum.