Fálkinn - 19.02.1943, Blaðsíða 14
14
F Á L K I N N
HERGAGNAFLUTNINGAR í NORÐUR-AFRÍKU.
Loftmynd þessi er af flutningalest Breta í eyöimörkinni. —
Flutningarnir eru eitt erfiöasta viðfangsefniö í eyöimerkur-
hernaði, þvi að alt þarf að flytja með sjer, jafnvel vatnið handa
hernum.
FLUGVJELAR FRÁ MALTA GERA ÁRÁS.
Það er sagt, að aldrei hafi verið fleiri en eitt hundrað flug-
vjelar á Malta siðan striðið hófst, en að tiltölu við fjöldann
hafa þær sennilega starfað meira en nokkrar flugvjelar aðrar,
bœði að vörnum þessa fræga virkis og i árásargerðum á ýms-
ar bækistöðvar óvinanna nærri eyjunni. Meðan landgönguher
Bandaríkjamanna og Breta var að leggja undir sig Alsír gerðu
þessar vjelar — en þær eru flestar langfleygar orustuvjelar —
árásir á flugstöðvar möndulveldanna i Tunis og Alsir. — Teikn-
ing þessi sýnir árás Beaufighter-flugvjela á óvinaflugvjelar á
flugvellinum við El Aquina. í jjessari árásarferð skemdu Malta-
flugvjelarnar fjölda flugvjela fyrir óvinunum, ennfremur bygg-
ingar og brautir.
BRESK LANCASTER-SPRENGJUFLUGVJEL YFIR GENÚA
Frá Genúa og Milano fer mest af birgðum þeim, sem Öxul-
veldin nota í Norður-Afriku, og það er á þessar birgðaslöðvar,
sem Bretar hafa ráðist á hvað eftir annað nú undanfarið. —
Teikning þessi er gerð eftir Ijósmynd, sem flugmenn hafa tekið
af loftárás á Genúa. Myndin er frá höfninni þar og sjást birgða-
skemmurnar við skipakviarnar.
FOCKE-WULFF 210
nefnist nýjasta flugvjelartegund Þjóð-
verja, sem gert hefir vart við sig
yfir Englandi undanfariS. Er þetta
tveggja hreyfla flugvjel og hefir aS
eins tvo menn innanborSs. Hún get-
ur flogiS meS um 600 kílómetra
hraSa og ber eina smálest af sprengj-
um, auk skotfæra.
STÆRSTA ORÐABÓK
veraldarinnar er „New English Dict-
ionary“. Hún flytur skilgreiningar á
414.000 enskum orSum og nær tvær
miljónir tilvitnana. Bókin er í tólf
stórum bindum óg aS undirbúningi
hennar var starfað í 50 ár. Fyrsta
útgáfan kom út árið 1928.
(W<VlVM>fW
EVRÓPA
er aS flatarmáli aSeins 7% af yfir-
borSi hnattarins, en þó telst, að um
90% af öllum söguminjum veraldar
hafi varðveitst þar.
SMÆSTA FÓLKIÐ
í veröldinni eru Bambuti-svertingiar-
nir í Mið-Afríku. Meðalhæð karl-
manna þar er 144 sentimetrar, en
kvenna 134 sentimetrar. Talið er,
að ástæðan til þessa smávaxtarlags
sje sú, að þessi þjóð býr í frumskóg-
um og nýtur mjög lítillar sólar.
/v</v//v//v ... %r
PERSNESKIR DÚKAR
geta verið ótrúlega endingargóðir.
Shahinn í Persíu á dúk, sem er um
200 ára gamall,, og hefir alla þá tiS
verið á gólfinu í höllinni í Teheran.
Er ekki hægt að sjá annað, en að
hann sje nýr, og allir litirnir halda
sjer að fullu.
fV/VfVA/fV
MISSISIPPI
er lengsta fljót i heimi, þegar með
er talin áin Missouri, sem fellur i
það. FljótiS er 6530 kílómetra langt,
eða nær fimm sinnum lengra en Rín.
í ABESSINÍU
verða allir, sem ætla að gifta sig aS
„setja tryggingu" fyrir þvi aS hjóna-
bandið fari vel. Brúðguminn verður
að útvega sjer yfirlýsingu roskins
og ráðins manns um, að hann ábyrg-
ist fjárhagslega afkomu mannsins,
og taki að sjer að sjá fyrir konu
hans, ef eiginmanninum verði það
um megn, eða hann strjúki frá henni.
fVfVfVfVfV
Skoti og Englendingur rjeðust i
kaupsýslufyrirtælci saman. Skotinn
hafði reynsluna en Englendingurinn
peningana. Þremur árum siðar hafði
Englendingurinn fengið reynsluna
en Skotinn alla peningana.
fVfVfVfVfV