Fálkinn - 16.03.1945, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
Þeir sem lifðu af Dettifoss - slysið
Gísli
Guðmundsson
Sigurgeir
Svanbergsson
Geir J.
Geirsson
Bogi
Þorsteinsson
Hallgrímur
Jónsson
Theódór H.
Rósantsson
Anton
Líndal
Eiríkur Pétur
Ólafsson
Kristján
Símonarson
Nikólína Hafliði Baldur Sigurjón Ólafur Valdimar Jónas Kolbeinn Ásgeir
Iíristjánsdóttir Hafliðason Ásgeirsson Sigurjónsson Tóinasson Einarsson Böðvarsson Skúlason Magnússon
líugenia Jakob-
ina Hallgríinsson
Lárus
Bjarnason
Erlendur Ó.
Jónsson
Davíð S.
Jónsson
Ólafur Björn
Ólafsson
Páll B.
Melsted
Ragnar
Guðmundsson
Erla
Axelsdóttir
Sigrún
Magnúsdóttir
Tryggvi Skúli Bjarni
Steingrimsson Petersen Árnason
Hér birtist mynd af þeim þrjátiu
skipverjum og farþegum, sem komust
af er Dettifoss sökk. Hafa nú borist
greinilegri tíðindi af þeim atburði
en áður og skal hér drepið á nokk-
ur atriði, er að þvi lúta.
Það var klukkan tœplega hálfníu
að morgni, sem sprengingin varð i
skipinu. Verður eigi um sagt hvort
hún stafaði af tundurskeyti eða
dufli, en við sprenginguna rifnaði
skipið mjög að framan, undir vatns-
borði og hallaðist fljótlega á bak-
borða. Tóksl að koma út björgunar-
báti bakborðs miðskipa, og einn
björgúnarflekinn losnaði.
Ýmsir af farþegunum voru enn
ekki komnir á fætur þegar spreng-
ingin varð. En allir þustu þegar upp
á þilfar. Komust sumir beint í björg-
unarbátinn en flestir fleygðu sér í
sjóinn og komust síðan ýmist i bát-
inn eða á flekann, 11 manns í bát-
inn og 17 á flekann en tveir á ann-
an minni fleka. Má nærri geta að
ekki var langur timi til stefnu, þvi
að um fimm mínútum eftir að
sprengingin varð sökk Dettifoss i
djúpið, afturstafninn síðast með
íslenska fánann á stönginni.
Fólkinu var bjargað eftir rúman
klukkutíma af bresku herskipi og
fékk þar ágæta aðhlynningu og þurr
föt eftir ])ví sem hægt var. Eftir 11
stunda veru um borð í þessu skipi,
komst fólkið í land, og þegar í
höfn var komið tók á móti því um-
boðsmaður frá Eimskipafélaginu og
Rauðakrossfólk á staðnum aðstoðaði
skipsbrotsfólkið með ráði og dáð.
Sjálfstæði Albaníu
Sjálfstæðisdagur Albaníu er. 28.
nóvember. Þann dag fyrir 32 árum
losnuðu Albanar undan oki Tyrkja,
en á síðasta ári minntust þeir þess
með hátíðarhöldum að þeir höfðu
losnað undan liernámi Þjóðverja.
Albanar gengu Tyrkjum á hönd
1478, en fengu ekki sjálfstæði aftur
fyrr en eftir Balkanstyrjöldina fyrstu
1912. Vilhjálmur prins af Wied varð
fyrsti þjóðhöfðingi þeirra, en flýði
land við lítinn orðstír 1914. í fyrri
styrjöldinni komst Albanía um stund-
arsakir undir yfirráð ítala, og eftir
ýmiskonar sviftingar varð Albanía
lýðveldi, 1925. En eigi var samt
friður fenginn og eftir þriggja ára
óeirðir, þar sem erlendir aðilar blésu
að kolunuin, varð Albanía konungs-
ríki 1928, og Zogu, sem verið bafði
forseti, fékk nú konungshafn. Á
föstudaginn langa 1939 réðust ítalir
inn i Albaníu og lögðu landið undir
sig en konungur flýði. í Albaníu eru
um ein miljón íbúa og er meira en
helmingur múhameðstrúar, en að
stærð samsvarar landið um fjórðungi
íslands.
EgiSs ávaxtadrykkir
- Kaupiö Fálkann -
Robert Ryan
Fyrsta stóra hlutverk Roberts
Ryan var i myndinni „Kona her-
mannsins", sem nýlega var sýnd á
Gamla Bíó, þar sem liann lék aðal-
hlutverkið ásamt Ginger Rogers. ■—•
Áður hafði hann leikið smáhlutverk
í ýmsum myndum og þá aðallega
sem slagsmálahundur og „tók sig
svo vel út“ í þeim hlutverkum að
honum var gefið tækifæri til að
reyna hæfileika sina á öðrum svið-
um. Fyrir leik sinn í „Konu her-
mannsins“ fékk hann svo góða
dóma, að þegar er farið að bera
liann saman við Gary Cooper. . .
Bob, eins og hann er kállaður,
er 34 ára gamall. Hann er af írskurn
ættum, en fæddur og uppalinn i
Chicago hjá efnuðum foreldrum.
Móðir lians lét hann læra fiðluleik
en faðir hans kendi honuni snemma
linefaleika og hefir hann stundað
þá iþrótt fram á þennan dag. Stari's-
ferill hans hefir verið óvenju fjöl-
breyttur. Eftir að hann lauk nátni
gerðist hann gullgrafari í Montanu
og var ágóði lians af því 30 krónur
fyrir fimm mánaða strit. Þvínæst
var hann blaðamaður í New Ýork,
síðan réðist hann sem háseti á skip,
sem sigldi milli Ameriku og Afríku
og seinna varð hann rukkari, cn
misti þá atvinnu vegna þess hve
honum var laus liöndin. Hann er
191 cm. að liæð og 180 pund að
þyngd.