Fálkinn - 07.12.1945, Síða 2
2
F Á L K I N N
Samið hefur Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri
Ræktunarfélags Norðurlands. — Bókin er í þremur
stórum bindum, samtals 1282 blaðsíður. Þrjú hundr-
uð fallegra mynda, og f jöldi korta yfir svæðí Ódáða-
hrauns. — Pappírinn er af bestu fáanlegu gerð.
Alt band er handunnið. Frágangur allur er sá glæsi-
legasti, sem hér hefur sést.
Dularheimur íslenzkra þjóðsagna
Landlýsing — ferðalög — könnunarleiðangrar —
svaðilfarir — jarðmyndunarsaga — eldgos — trölla
sögur — útilegumannasögur — eyðibýli — hesta-
göngur — hrakningar — slysfarir — eftirleitir —
saga Fjalla-Bensa, fjárgæsla á öræfunum — allt.
sem vitað er um Ódáðahraun að fornu og nýju. —
Þjóðlegasta og glæsilegasta jólagjöfin
verður ÓDÁÐAHRAUN
Æfntýraland allra íslendinga. Landið, sem vex af
töfrum því meir, sem vér kynnumst því. Landið,
sem um aldir hefur átt meiri eða minni ítök í huga
hvers íslendings. Landið, sem út um víða veröld
hefur brugið mestum töfraljóma yfir ættjörð vora,
en jafnframt leikið hana harðast. Landið, sem allir
íslendingar, sem komnir eru til vits og ára, hal'a
heyrt nefnt — Ódáðahraun.