Fálkinn - 17.05.1946, Blaðsíða 14
i.**
F Á L K 1 N N
Laugardaginn 11. þ.m. vígði bisk-
up íslands, dr. Sigurgeir Sigurðsson,
hina nýju björgunarstöð í Örfirisey
að viðstöddu fjölmenni. Atliöfnin
var hin hátíðlegasta. Voru þarna
mættir flestir prestar Reykjavíkur,
og ekki dró skrúði þeirra úr há-
tiðablænum.
Athöfnin hófst kl 2% e. h. Henry
Hálfdánarson, skrifstofustjóri Slysa-
varnafélags íslands setti athöfnina
og stjórnaði henni.
Fyrstur talaði Guðbjartur Ólafs-
son, forseti S.V.F.Í. Hann kvaðst
vera á förum utan, þar eð' hann
hefði verið valin í nefnd til þess
að festa kaup á björgunarbáti. Færði
hann öllum þeim, sem liöfðu stuðl-
að að framkvænuluin við björgun-
arstöðina, bestu þakkir f. h. S.V.F.Í.
Næst tók til máls frú Guðrún Jónas-
son. Minntist hún „Ingvarsslyssins“
sérstaklega og skýrði frá því, að
mæðgunar Ingveldur Jóhannesdótt-
ir og Bergþóra Júlíusdóttir liefðu
nýlega fært kvennadeildinni 1000 kr.
til minningar um Júlíus Kr. Árna-
son, stýrimann, sem fórst með „Ing-
vari“ 1900. Þá talaði séra Jakob
Jónsson, formaður „Ingólfs“. Minnt-
ist hann á hina göfugu hugsjón,
sem lægi bak við björgunarstarf-
semina. Að svo búnu tók til máls
Tómas Jónsson, borgarritari. Ilann
mætti fyrir hönd borgarstjóra og
flutti samkomunni kveðju hans.
Þakkaði hann Slysavarnafélaginu þá
öryggisaukningu, sem björgunar-
stöðin skapaði og óeigingjarnt starf
í þágu allra björgunarmála. Því næst
hófst hin eiginlega vígsla, og bisk-
upinn lýsti yfir því, að björgunar-
stöðin væri opin til afnota. Lúðra-
sveitin Svanur lék þjóðsönginn að
þessari athöfn lokinni. — Að lokum
fór svo fram sýning björgunartækja.
„Þorsteini“ var rennt á flot, skotið
var úr línubyssu og merkjamál skips
í sjávarháska og björgunarbátsins
sýnt. Það eru svifblys mismunandi
tegundar. Einnig var sýnd fræðslu
kvikmynd um lífgun úr dauðadái.
Ljósm.: Fr. Clausen.
Merkileg nýjung
í byggingariðnaði
Byggingaiðnað okkar vantar mjög
tilfinnanlega verkafólk, ekki aðeins
faglærða heldur og ófaglærða verka-
menn. Þetta er því tilfinnanlegra,
þegar þess er gætt að mjög brýn
þörf er fyrir aukið húsnæði og
hundruð fjölskyldna biða eftir því
að fá þak yfir höfuðið.
Þegar þannig er ástatt, er það
fagnaðarefni, þegar fregnir koma
um það að verið sé að taka upp
nýjungar i þessum iðnaði, sem geti
haft það i för með sér að flýta
framkvæmdum og spara vinnuaflið.
Fyrir fáum dögum var tilkynnt
að upp úr næstu áramótum muni
taka til starfa hér í Reykjavík nýtt
fyrirtæki, steinsteypustöð, er bland-
ar og lirærir steypuna svo að hún
verði fullbúin i mótin.
Það er félagið „Orka“ sem gengst
fyrir þessu, en Reykjavikurbær mun
verða liluthafi í stöðinni. Stöð þessi
verður reist í nágrenni sands- og
malarnáms og þar er allt efnið i
steinsteypuna sett í þar til gerðar
bifreiðar, en á þeím eru tæki, sem
blanda og liræra steypuna og aka
henni beint á byggingastaðinn og
þar er það aflient byggingamönn-
um. Á stöðinni er gríðarstór trekt,
sem er skift í fjögur hólf, í hólfun-
um er byggingarefnið: sandur, se-
meht, möl og pússningarsandur. —
Efnið er flutt í trektina á flutnings-
bandi, en undir trektina aka bif-
reiðarnar og er byggingaefnið veg-
ið á þær með sjálfvirkum vogum
og helt á bifreiðarnar. Verður hægt
að afgreiða hvaða blöndustyrkleika
sem óskað er, en vatnið er einnig
látið í um teið. Þetta er allt gert
með hraðvirkum og sjálfvirkum vét-
um, en þeim er öllum stjórnað af
einum manni. Bifreiðin ekur síðan
á ákvörðunarstaðinn og hrærir
steypuna um leið.
Steinsteypustöðvar eins og þessi
hafa rutt sér mjög til rúms i Banda-
ríkjunum og eru þær í hverri borg,
sem hefir yfir 20 þúsund íbúa. Er
þar framleiddur á þennan hátt,
ÉG NOTA SUNLIGHT í ALLAN ÞVOTT.
Ekkert erfitt nudd, Sunlight-sápan sér fyrir
því, hún leysir óhreinindin upp svo auðveld-
lega. Notið hana því í allan þvott og hrein-
gerningar, og þér munið sjá hve vel liún fer
með liendur yðar.
Sunlight-sápan er
algerlega skaðlaus.
Sunlight-sápan:
Freyðir vel, örugg
í allan þvott.
Sparið Sunlight-
sápuna.
X-S 1390-925
Kvöldvaka
Tónlistar f éla oskór sins
Síðastliðið miðvikudagskvöld efndi
tónlistarfélagskórinn til kvöldvöku
í hinu nýja, glæsta samkomuhúsi
Sjálfstæðisflokksins við Austurvöíl.
Ólafur Þorgrímsson, hæstaréttar-
lögmaður, sem er formaður kórsins,
setti kvöldvökuna með ræðu, en að
því loknu hófust skemmtiatriði og
kynnti Jón Alexandérsson þau. —
Fyrsta atriðið á skemmtiskránui
var kórsöngur, islensk lög. Söng-
stjóri var dr. Victor Urbantschitsch.
Þá lék liinn ungi cellósnillingur
Erling Blöndal Bengtson, sem var
gestur kórsins, nokkur lög við mikla
hrifningu áheyrenda. Þá söng kór-
inn ýmis óperulög með undirleik
frú Katrínar Dalhoff Dannheim. Þvi
næst koniu ýmsir léttir skemmti-
þættir. Að lokum var stiginn dans.
í danshléi léku harmónikusnilling-
arnir Kristofferson og Lýður, áheyr-
endum til mikillar ánægju.
Vegna mikllar aðsóknar að kvöld-
vöku þessari var ákveðið að endur-
taka hana á sama stað 14. þ. m.
meginhlutinn af allri steinsteypu,
sem fer til húsabygginga, í gatna-
og vega- og hafnargerðir.
Eins og áður hefir verið sagt,
sparar þetta ákaflega mikinn vinnu-
kraft, svo að það getur mjög bætt
úr þeirri vöntun, sem nú er á verka-
fólki.
Það var aðallega Jóhannes Björns-
son verkfræðingur, sem hefir komið
þessu máli á rekspöl, en hann
kynntist þessum stöðvum á náms-
árum sínum í Bandaríkjunum. Hann
og Jón Einarsson framkvæmdarstj.
„Orku“ skýrðu Nýbyggingarráði frá
þessum stöðvum en það léði málinu
fullan stuðning. í undirbúningi er
stofnun hlutafélags um stöðina og
munu Reykjavík og Hafnarfjörður
verða hluthafar, en stöðnni er ætlað
að framleiða steypu fyrir báða bæ-
ina. Mun hún byrja starfsemi sina
með 1G bifreiðum.
Hér virðist vera um mjög þarft
fyrirtæki að ræða og ber að fagna
öllum slikum framförum. Þetta eru
ekki fyrstu vélarnar, sem við fáum
frá Bandaríkjunum er létta iðnað
okkar og auka alhliða framfarir.