Fálkinn


Fálkinn - 20.02.1948, Blaðsíða 10

Fálkinn - 20.02.1948, Blaðsíða 10
10 FÁLKINN VNCSSW LE/&HMJRNIR Leiklt og skilaiist ð Orænlandi Þegar skip kemur í grænlenska nýlendu verður að láta hendur standa fram úr ermum til að skipa upp öllum varningnum og þá hjálpa tólf ára gamlir krakkar til. Þau hlaupa frá uppskipunarbátnum inn í geymsluhúsið með þunga sekki og kassa á hausnum, kát og hrosandi. í fyrsta lagi hafa þau gaman af þessu og í öðru lagi fá þau aura fyrir. Grænlensku börnin eiga ekki hlaupahjól eða lijólaskauta. Og leik- föng ekki heldur. Það er nefni- lega ekki nema ein verslun í hverri nýlendu, og hún selur ekki svo- leiðis óþarfa. Það er korn, fatnað- ur, -naglar og áhöld, sem sjást í hillunum. Og i Grænlandi eru eng- in tré, sem hægt er að skera grein- ar af til þess að gera sér boga eða blístru. Hvað hafa börnin þá fyr- ir stafni? í fyrsta lagi verða þau að gæta systkina sinna, því að for- eldrarnir hafa annað að liugsa. Tíu ára gömul börn eru með 2—3 ára systkini sín frá morgni til kvölds. Og þau iæra snemma áralagið. Það er furðulegt að sjá live börnin eru lagin að fara með bát. Grænienskur drengur staldrar ekki 2 mínútur við liöfnina eða i bát án þess að draga færi og öngul upp úr vasa sinum. Grænlendingar eru veiðiþjóð, og dugleg'ir veiðimenn, og veiðihugurinn hýr í hverjum strák. Hann notar líka dorg, og sjaldan er þess langt að híða að hann liafi innbyrt vænan þorsk. Og j)á er honum skemmt. Hann verður allur eitt bros þegar liann sýmr veiðina. En það er óvíst að dreng- irnir sem nú eru að aiast upp í Grænlandi reyni nokkurntíma að róa í liúðkeip. Kajak-íþróttin er að deyja út í Grænlandi. Enda er kajakinn hættugripur. Ilann hefir kostað afar mörg mannslíf i Græn- landi. í róöri með stóra bróður og stórn systur. ,,Skaftpottsklipptur“ grænlensknr drengur. En þú skalt ekki lialda að börnin í Grænlandi leiki sér ekki, þó að þau hafi ekki leikföng. Með dönsku- kennslunni í skólunum liafa margir danskir leikir borist til Grænlands; þar sér maður „Brú, brú, brille“ og „Eitt par fram fyrir ekkjumann“ og fleira og fleira. En svo er líka til fjöldi af grænlenskum leikjum. Flest- ir ganga þessir leikir út á veiði, og mest þykir varið í .Bjarndýrs- leikinn. Þar er kennarinn björn, sem krakkarnir eiga að vinna. Vitanlega eru barnaskólar á Græn landi. Skólahúsin eru timburhús, eins og öll hús í Grænlandi, með 2—4 kennslustofum. Þar er skóla- skylda frá 7 ára aldri, og komi barnið ekki í skólann þá er það sótt. En venjulega vilja foreldrarn- ir láta börnin gang'a í skóla, enda hafa þau gaman af því sjálf. En ef livalreki verður í nýlendunni þá er skólanum lokað, því að allir krakkarnir hjálpa til við skurðinn. í kennslustofunum sitja börnin við venjuleg skólapúlt, telpurnar með svartar fléttur og drengirnir í anorökum. Sumir strákarnir eru klipptir eins og sýnt er hér á mynd- inni, „skaftpottsklipptir" sem kallað er, því að slcaftpotti er hvolft á hausinn á þeim og svo klippt að af hárinu, sem niður undar stend- ur. Enginn leikvöllur er við skóla- húsin. í frímínútum eru börnin látin in fara út þegar veður leyfir, og þá fara þau upp í brekkuna og leika sér þar. Námsgreinarnar eru danska, grænlenska, kver og bibliu- sögur, söngur, náttúrusaga o. s. frv. og stúlkurnar læra líka handavinnu. Hinsvegar er engin smíðakennsla fyrir drengina, vegna þess hve erfitt er með efni. Það er lítið um timb- ur i Grænlandi, og svo lítið af rost- ungstönnum að það nægir ekki til útskurðarkennslu. Þegar grænlenskt barn hefir lok- ið við barnaskólann getur það kom- ist á framhaldsskóla ef það hefir náð góðu prófi. Og það er mikil aðsókn að þessum skólum, þvi að Grænlendingarnir eru ólmir í að læra. Óþekkci rúllugardínan. — Segið þér mér, fröken — fúið ~ Heyrið þið, eigum við ekki þér yfirvinnukaup fyrir að sitja heldur að nd okkur i leigubíl? yfir mér? TlJHíDUR 5. Ilann sneri sér síðan að tal- stöðinni og sagði: „Halló, Suður- stjarnan kallar Hafköttinn, Suður- stjarnan kallar Hafköttinn, — ég skipti“. Brátt kom rödd mágs hans á Haf- kettinum í liátalarann. Það var einkennilegur hljómur í henni eins og ætið við stuttbylgjusendingar fiskidugganna: „Hafkötturinn kallar Suðurstjörnuna. Hvernig hefir þú það, John? Er nokkur síld hjá þér? Hér er eng'in. — Skipti.“ DUFLIÐ (i. John svaraði: „Nei, og þú færð enga síld. En hér er nóg. Eg hefi aldrei komist í aðra eins veiði. Eg fer í land undir kvöldið, en þú færð að láta reka, án þess að verða var svo dögum skiptir. — Skipti.“ Þannig var samtalið, og þegar Jolin nokkru síðar hlýddi á samtöl- in milli hinna bátanna (þeir senda allir á sömu bylgjulengd), skemmti liann sér vel við reiði skipstjór- anna. Framhald í næsta blaði.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.