Fálkinn - 20.02.1948, Síða 15
<*>♦<
FÁLKINN
15
The British
Thomson Houston
Co. Ltd.
Rugby - England
Gegn gjaldeyris- og innflutn-
ingsleyfum getum við útvegað
tiinar viðurkenndu BTH-þvotta
vélar með mjög stuttum fyrir-
vara.
Smásöluverð vélanna hér á
staðnum, mun nema um kr.
1220,00.
Einkaumboð á íslandi:
AM
J±EL
Vesturgötu 17. — Pósthólf 728.
Tilkynning
Samkvæmt lögum þarf leyfi fjár-
hagsráðs til stofnunar og aukn-
ingar hvers konar atvinnurekstrar.
Fyrir því er hér með vakin sér-
stök athygli á og menn alvarlega
varaðir við að gera ráðstafanir til
undirbúnings slíkra framkvæmda,
svo sem með innréttingu húsnæðis
o. þ. u. 1. nema hafa tryggt sér
leyfi ráðsins, þar sem hér eftir
verður ekki unnt að taka tillit til
þeirra ráðstafana.
Reykjavík, 30. jan. 1948.
Fjárhagsráð
♦
t
Snilldarverkið um hrakhóladrenginn hollenska,
2. bindið er komið út.
UPPELDISÁR FRANS ROTTU
eftir Piet Bakker í þýðingu Vilhj. S. Vilhjálmssonar
er komið í allar bókaverslanir.
Engin skáldsaga, sem komið hefir út i Evrópu á síðari
árum liefir vakið eins mikið umtal og aðdáun og
þella stórvirki.
Allir, sem hafa lesið fyrsta bindi þessarar sögu um um-
komulausa mannsbarnið i liörðum heimi, en það
kom út í liaust, liafa beðið með mikilli eftirvænt-
ingu eftir framhaldinu. — og nú er það komið.
Fáar sögur eru eins spennandi og þessi skáldsaga og
engin, sem hér hefir komið út upp á siðkastið, á
eins mikið erindi til almennings.
Margir kunnir menn liafa ritað um fyrsta bindið, þar
á meðal Jón Sigurðsson skólastjóri og Sigurður
Magnússon kennari og lögreglufulltrúi. — Báðir telja
þessa hók mikið og dásamlegt listaverk. Mikla
mannssögu og stórfenglega lýsingu á umkomuleysi
og baráttu eins lítils mannsbarns við hörð örlög.
Uppeldisárin er lýsing á viðhorfi drengsins gagnvárt
iðrun og hegningu. Þar sigrar liið góða og göfuga,
sem hýr í hverri mannssál, en er stundum inni-
ljyrgt og fær ekki að þroskast upp til ljóssins vegna
erfiðra ástæðna.
Sagan um Frans litla, sem umhverfið gaf viðurnefnið
„Rottan“, hefir farið sigurför um allan lieim. Og
nú eyða Hollendingar stórfé til að kvikmynda
hana. Munu kvikmyndahúsin hér nú þegar hafa
gerl tilraunir til að afla sér þessarar kvikmyndar.
Kaupið og lesið söguna um baráttu mannsharnsins um-
komulausa við heiminn. Ykkur mun varla líða hún
úr rninni upp frá því.
HELGAFELLSBÓK
Garðastræti 17. — Aðalstræti 18. — Laugavegi 38. —
Laugavegi 100. — Njálsgötu 64. — Baldursgötu 11.
— Bækur og ritföng, Austurstræti 1.
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦■