Fálkinn - 25.03.1949, Blaðsíða 6
6
FÁLKINN
%
LEIKHUS OG LEIKLIST
&
'h
7s
K
K
tf FRA FORN - GRIKKJUM TIL VORRA DAGA R
H -— 4 7s
% K
Endurfæðing leiklistarinnar.
Endurfæðingin — renaissance —
þýddi afturhvarf til lista og bók-
mennta fornaidarinnar eftir kyrr-
stöðu og starblindu kirkjuvaldsins á
miðöldum. Vitanlega snerti þessi
lireyfing leiklistina ekki siður en
aðra list. — Nú var sá þráður tek-
inn upp aftur, sem miðaldirnar
höfðu slitið; menn fóru að lesa
fornaldareikritin — bæði harmleiki
og gamanleiki — og reyna að end-
urlifga þau i nýrri mynd i samræmi
við breytta tíma og hætti.
Þessi hreyfing hófst á ítaliu og
þar liefst endurlífgun ieiklistarinnar
á 16. öld með hinni svonefndu
„Commedia dell’ arte“, sem ef til vill
hefir verið byggð á liinum fornu
Atella-leikritum. Þetta voru alþýð-
legir gamanleikir, sem leikararnir
skálduðu sumpart jafnóðum, og með
ákveðnum persónum, sem gengu aft-
ur leik eftir leik. Meðal þeirra má
nefna Pantalone, skikkanlegan blaðr-
ara, sem alltaf iætur snúa á sig
(siðar var hann lika kallaður Kass-
ander), ennfremur Doklorinn og
Kapteinninn (sú persóna er auð
sjáanlega afturganga úr leiknum
„Gortsami hermaðurinn“ eftir Plaut-
us) og sams konar fígúra og Jacob
v. Tyboe lijá Holberg. Þrátt fyrir allt
gortið er hann i raun réttri mesta
bleyða. Á einum stað ógnar Pante-
lone honum til dæmis með skamm-
byssu og þá flýr hann.
En eftir á gefur hann þá skýringu
á burtför sinni, að hann hafi brugð-
ið sér frá til þess að láta taka
gröf handa hinum ósvífna þorpara,
sem liafi dirfst að hóta sér. Enn-
fremur er þjónshlutverkið, og má
sérstaklega nefna tvær tegundir
þjóna, sem frægir hafa orðið i bend-
ingjaleikjum, nfl. Pjerrot (eiginlega
lieitir hann réttu nafni Pedrolino)
og Harlekin. En í upphafi var því
svo varið um þessa tvo, að eigin-
lega var Pedrolino sá séði og hug-
kvæmni, en Harlekin flónið, sem
alltaf fékk flenginguna. Auk þessara
hlutverka hafði Commedia dell’ arte
ennfremur: hinn unga ástfangna
mann, sem gengur aftur hjá Hol-
berg sem Leander, ungu stássmeýna
(Lconora) og orðheppnu vinnukon-
una, sem heitir Pernille hjá Holberg,
en Columbine í etdri teikjum.
Einnig voru til önnur „fínni“ leik-
rit, Commedia erudita, sem voru
stæling á Plautusi og Terentiusi, og
sömuleiðis sorgarleikir. ■—Og ítalia
varð fyrsta tandið til að eignast sér-
staka óblandaða leikarastétt, skipaða
atvinnuleikurum. Hin itölsku um-
ferðaleikfélög, sem skipuð voru
bæði körlum og konum, fóru víða
um Evrópu og var alls staðar vel fagn
að; þau þóttu sýna hóflega tist og
fólk fór hugsandi af leiksýningum
þeirra, sem nú á tímum þykja frem-
ur þunnur „barnamatur". En vitan-
lega voru afburðaleikendur i þessum
liópum, og smekkur þeirra tima var
þannig að leikrit sem nú þykja i
liæsta máta barnaleg, höfðu áhrif.
Yfirleitt fóru nú blómatímar i
iiönd lijá leiklistinni. Á Spáni þró-
aðist merkileg, þjóðleg leiklist og i
Englandi kom fram sá maður, sem
lyft hefir leikhúsmenntinni hærra
en nokkur maður fyrr og síðar,
William Shakespeare. Sama er að
segja um Frakkland, er Moliere kom
Jil sögunnar þar.
En þrátt fyrir þetta er byrjunin
Ítalíu. Og það er einnig þar sem
leikhúsið fær fast form. Umferða-
leikflokkarnir gátu skiljanlega ekki
komið því við að liafa stór leiksvið
með margvislegum útbúnaði, eins og
otaður var í trúarleikjunum. Þeir
urðu að liafa einfalt leiksvið. Yar
otaður upphækkaður pallur og
fyrir framan hann tjald, sem dregið
yar niður á milli þátta, en bak við
pallinn var annað tjald, málað þann-
ig að það sýndi umhverfi leiksins.
Bak við þetta tjald voru hólfaðir
«undur klefar hana leikendunum að
klæða sig i. Þetta var ofur einfalt
og létt í flutningum, og hægt að
aota það hvort lieldur vildi úti und-
r berum liimni eða i liúsi.
En ítalir fóru lengra. Þá dreymdi
ím að endurvekja hið forna griska
leiksvið, en þó í samræmi við kröf-
ur tímans. Þessvegna gerðu þeir líka
föst leiksvið með talsverðum íburði,
en þau höfðu vitanlega þann galla
ð ekki var liægt að skipta um leik-
viðið. Smátt og smátt urðu til fjór-
,ar aðaltegundir leiksviða: götuleik-
svið, torg, súlnasalur og skógarleik-
svið. Enginn hugsaði svo hátt enn-
þá, að hvert leikrit ætti að hafa sín
sérstöku leiktjöld, og enn siður, að
jotuð væru ný leiktjöld fyrir hvern
þátt eða hluta úr þætti.
Pallarnir í öðrum enda sýningar-
hússins voru góð byrjun, en þegar
fram i sótti var farið að byggja sér-
stakt leiksvið, inn af áhorfcnda-
salnum og vítt op í veggnum á
milli. Leiksvið innanhúss varð her-
bergi, sem einn vegginn vantaði í.
ERFÐASKRÁIN SEM HVARF.
Enska lögreglan befir m. a. mál til
meðferðar, sem samboðið væri sjálf-
um Sherlock Holmes, viðvikjandi
erfðaskrá varðandi 50 milljónir, sem
liefir horfið. Fyrir nokkru dó frú
Daisy Alexander, gömul kona, sem
litið bar á meðan hún lifði. En hún
var dóttir saumavélakóngsins Isaac
Singer, og lét eftir sig arfleiðslu-
skrá, sem var samin 1909. Þar var
aðeins ákveðið livernig 7 milljónum
af eignum hennar skyldi ráðstafað,
og það er vitað að lnin liefir skrif-
að viðauka við erfðaskrána, um ráð-
stöfun hinna eignanna. En þessi
erfðaskrá er týnd og hefir verið
leitað að henni í mörg ár, til þess
að geta ráðstafað arfinum.
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason prentara
Vorjafndægur 19)9.
Alþjóðayfirlit:
Nú liefst stjörnuárið. Samkvæmt
ævaforhu egypsku timatali er þetta
ár sólarár á tunglöldinni, sem liófst
á jafndægrum 1945 og ætti það að
létta undir og jafna að nokkru að-
stæðurnar. — Þó eru breytilegu
merkin yfirgnæfandi í áhrifum og
mætti því búast við frekar reikulli
afstöðu i mörgum greinum. Mars cr í
sterkri samstæðu við Sól, sem mun
styrkja áhrifin að einhverju leyti,
en þó eru áhrif hans oftast nær
örðug hversu góðar afstöður sem
hann annars hefir að öðru leyti.
Lundúnir. — Sól er i 4. húsi á-
samt Merkúr, Venusi og Mars. Land-
búnaðurinn, námurekstur og áhrif
landeigenda mun mjög á dagskrá
og veitt athygli. Afstöðurnar eru að
sumu leyti athugaverðar og að lík-
indum mun stjórnin þurfa að athuga
vel aðstöðu sína. Eldur gæti komið
upp í opinberri byggingu eða í
sambandi við námurekstur. — Tungl
i 2. liúsi. Hefir slæmar afstöður.
Bendir á örðugleika nokkra í fjár-
málum og breytileiki mun koma í
Ijós og óákvcðin afstaða. — Salúrn
og Plútó í 9. húsi Þetta er ekki á-
litleg afstaða fyrir verslun og sigl-
ingar og viðskipti við nýlendurnar.
Óvænt atvik gætu komið til greina
og tafir í þessum málum sýnilegar.
— Neptún í 11. liúsi. Bendir á bak-
makk í þinginu og óþægileg atvik
gætu komið til greina. Félagsmála-
löggjöf í undirbúningi.
Berlín. — Afstöðurnar að sumu
leyti líkar og i Lundúnum, en þó
hefir Mars að mun sterkari álirif
á landbúnaðarmálin og framkvæmd
þeirra. Fjármálaafkoman mun batna
að mun, því að Júpiter er i 2. húsi,
og hefir góðar afstöður frá ÍJran
i 7. liúsi, Aðstoð annarsstaðar að
er sýnileg. •— Tungl í 1. liúsi Bend-
ir á óróleika meðal aimennings og
óánægju. — Neptún í 10. húsi. Þetta
er örðug afstaða fyrir ráðendurna
og koma þeir örðugleikar að nokkru
frá siglingum og viðskiptum. Úran
í 7. húsi. Bendir á vandkvæði í
viðskiptum við aðrar þjóðir og á-
róður yrði rekinn gegn hagsmun-
um landsins.
Móskóva. — Sól, Merkúr, Venus
og Mars í 3. luisi. Samgöngur, járn-
brautir, flutningar, póstur og simi,
blöð og bókaútgáfa mun mjög á
dagskrá og vekja athygli. Munu örð-
ugleikar ýmsir koma i ljós, jafnvel
þó að Venus muni ef til vill eitt-
livað draga úr hinum slæmu áhrif-
um. Aukin útgjöld munu koma til
greina í þessum starfsgreinum og
óánægja gera vart við sig meðal
þeirra er þar eiga hlut að máli.
Júpíter í 2. húsi. Bendir á aukna
peningaverslun og tekjur yfir höf-
uð ættu að aukast. — Úran í 7. húsi.
Þetta er ekki vænleg afstaða til ut-
anríkismála. Örðugleikar og óvænt
vandkvæði munu koma til greina
í þeim efnum.
Tokyó. — Sól og Mars í 12. húsi.
— Opinberar vinnustofnanir, spít-
alar og betrunarhús munu undir
nokkuð atliugaverðum álirifum. Þó
mun ýmislegt gert til úrbóta. —
Júpíter i 10. húsi. Góð afstaða fyr-
ir stjórnina og kemur sú aðstoð frá
2. liúsi, húsi fjármála, fjárafla og
banka. — Plútó og Satúrn i 5. húsi.
Óheppileg aðstaða fyrir leikhús og
leiklistarstarfsemi og óvæntar mis-
gerðir í þessum greinum koma í ljós.
— Neptún í 6. liúsi. Slæm afstaða
fyrir verkamenn og þjóna. Heilsu-
far er atliugavert.
Washington. — Sól, Venus og
Mars i 7. liúsi. Þetta bendir á að
utanríkisstarfsemin sé mjög víðtæk
og sterk og sé lienni veitt stöðug
og áberandi athygli. Er Venus hér
einna sterkastur í áhrifum og bend-
ir á heppni í meðferð þessara mála.
— Úran er í 10. húsi. Stjórnin á
í ýmsuin örðugleikum, en virðist
þó hafa sterka aðstöðu. — Júpíter
er í 5. húsi. Bendir á góða afstöðu
i leiklist og leikhúsastarfsemi og
skennntanalifið rekið með góðum
árangri. — Tunglið i 4. húsi. Breyti-
leg áhrif og óákveðin í landbúnað-
armálum og rekstri landbúnaðar og
námustarfsemi. — Neptún i 1. luisi.
Ekki ábyggileg afstaða. Bendir á
leynilegan áróður meðal almennings
og óánægju nokkra. Heildarafstaðan
er eigi að síður mjög sterk og fram-
kvæmdaþrek áberandi.
ÍSLAND.
5. hús. — Sól er í húsi þessu á-
samt Venusi og Mars. •— Leiklist og
leiklistarstarf ætti að vera mjög á
dagskrá og hafa að ýmsu leyti góð-
ar aðstæður. Þó mun Marsafstaðan
benda á urg og truflanir nokkrar.
Barnsfæðingum ætti að fjölga undir
þessum áhrifum og barnafræðsla að
hafa bætta aðstöðu.
1. hús. ■— Mars ræður húsi þessu.
•— Aukin orka ætti að birtast í starfi
almennings, en þó er liklegt að á-
róður og urgur gæti komið að ein-
hverju lcyti til greina.
2. hús. ■— Fjármálaafstaðan mun
óábyggileg og örðug. Tekjur óvissar
og útgjöld munu aukast.
3. hús. — Júpiter ræður liúsi
þessu. — Póstgöngur, flutningar,
símar og fréttaflutningur undir góð-
um áhrifum, einnig bókaútgáfa og
blaða.
4. hús. — Merkúr er i húsi þessu.
— Slæm afstaða fyrir landbúnað-
inn og aðstæður bænda munu versna
að mun, því að afstaða þessi er ekki
heppileg.
6. hús. — Mars ræður húsi þessu.
— Afstaða verkamanna og vinnu-
þiggjenda er slæm um þessar mund-
ir og vafasöm i ýmsum greinum.
Ófyrirséðir örðugleikar munu koma
til greina.
7. hús. ■— Venus ræður húsi þessu.
— Þetta ætti að vera sæmileg af-
staða í sambandi við utanrikismál-
in og viðskipti við önnur riki og
friðsamleg sambúð við þau ætti að
koma til greina.
8. hús. — Venus ræður eínnig
húsi þessu. — Afstaða þessi er ekki
þróttmikil og þvi er líklegt að rikið
eignist eigi fé við þessa afstöðu eða
sem gjöf.
9. hús. -— Úran er húsi þessu. —
Bendir á truflanir í utanríkissigling-
um. Eldur gæti komið upp í skipi
eða sprenging. Ný vísindaleg upp-
götvun gæti komið til greina.
10. hús. — Satúrn er í húsi
þessu. —, Stjórnin á i örðugleikum
Framhald á bls. 11.