Fálkinn - 06.05.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
SkíSakeppni fyrir einfætta. / Bad Gastein í Austurríki var
nijlega haldið skíðamót fyrir einfætta menn. Hér sjást nokkr-
ir keppendanna tilbúnir iil keppni i svigi. Til frekari öryggis
eru skíðastafirnir búnir litlum skíðum að neðan. Sá, sem vann
þessa keppni, fékk bctri tíma en besta stúlkan hafði í kvenna-
heppninni á sörnu braut, þótt þar væru báðir fætur notaðir.
Til vinstri:
Vaktaskipti í Berlín. — Nýlega
hefir verið skipt um varðsveitir
á enska hernámssvæðinu í Ber-
lín. Á myndinni sést fráfarandi
setuliðsforingi, Herbert gener-
almajór (t. h.) vera að heilsa
eftirmanni sinum Bourne gen-
eralmajór á Gatow-flugvellin-
um í Berlín, áður en hann fer
til Englands. Þar á Herbert að
taka við formennsku i hernum.
sinum, Charles prins, í Buckingham Palace.
Dýrt fyrir útgefandann. — Áð sögn er til danslag eitt, sem
heitir nafninu: „Every little pig has a curly tail“ — eða: allir
smágrísir eru með hringaða rófu. Útgefandi lagsins var svo
viss um að þetta væri rétt, að hann bauðst til að borga hverj-
um þeim þúsund sterlingspund, sem gæti sýnt honum grís
með beina rófu. Undir eins gáfu sig fram um hundrað manns,
sem gátu þetta. Hér er einn af grlsunum með óhringuðu róf-
una til athugunar á skrifstofu útgefandans í Denmark Street
i London. Og forleggjarinn verður að borga stórfé á hverjum
degi. En hann græðir hinsvegar ekkert smáræði á auglýsing-
unni, sem hann hefir fengið fyrir lagið sitt með þessu móti.
Nú á hún níu. — Frú Olga Pelzer, kona járnbrautarstarfsmanns á hernámssvæði Banda-
ríkjamanna í Þýskalandi, eignaðist nýlega fjórbura, 3 stúlkur og i dreng. Myndin er af frú
Olgu með fjórburana, sem bætast nú i barnahjörðina, sem fyrir var, en hún var þegar
fimm barna móðir.
HJÚSKAPUR OG BÖKUNARDUFT.
„Ef þér vilji'ð lifa i gæfusömu
hjónabandi þá segið konunni yðar
að jsér elskið hana, einu sinni á
virkum dögum og þrisvar á lielgi-
dögum,“ segir síra J. M. Mclllrath :i
tilefni af demantsbrúðkaupi sinu.
En besta ráðið, sem hann getur gef-
ið húsfreyjunum til þess að njóta
hjónabandssælunnar sem lengst er
svona: „Notið fegrunarlyfin með
gætni. Andlitsduft getur kannske
lokkað karlmennina, en það er bök-
unarduftið, sem heldur honum föst-
um.“