Fálkinn - 09.09.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
„List“. — Á sýningu „Hinna ó-
háðu“ í París er meðal annars
þessi höggmynd, sem höfundin-
um hefir þóknast að kalla blátt
áfram „manneskju". Það er líka
enginn vandi að sjá að myndin
sýnir roskinn sköllóttan mann
með.staf og gleraugu — og ein-
staklega blíðlegan andlitssvip!
Gleðidagur. — 2h. apríl 19h9 var
mikill gleðidagur hjá enskum
börnum — og reyndar mörgum
fullorðnum líka. Þann dag var
nefnilega afnumin skömmtun á
sælgæti og mörg börn upplifðu
þá í fyrsta sinn á ævinni að
geta farið inn í búð og „keypt
sér gott“. Hér sjást glöð börn
með sælgætispokana sína.
Flugsýning í París. Alþjóða
flugmálasýning hófst í París í
maí og sóttu hana áhugamenn
úr fjarlægum löndum, til þess
að kynnast nýjum gerðum flug-
véla og gera kaup. — Hér á
myndinni sést tveggja hreyfla
flugvél, sem getur lent bæði á
sjó og landi. Hún hefir lent á
Seine og siglir þaðan á sýning-
arsvæðið.
„Irish Jig“. — iFjöldi gamalla
hermanna frá „Chelsea Pen-
sioners“, frægu hermanna-elli-
heimili, tóku nýlega þátt í
„Gamalmennadansleiknum“ í
Empress Hall í London. Hér sést
George''Murphy, sem er 86 ára,
sveifla sér í „Irish Jig“ við
unga blómarós.
; : ■ ■ :
Ensk knattspyrna. Hér sésl
foringi W ohverhampton-knatt-
spyrnufélagsins borinn á gull-
stól eftir að félagið vann silfur-
bikar í kappleik við Leicester
City. Wolwerhampton sigraði
með 3:1.
Monseigneur Hamayon heitir
þessi preláti, sem talinn er lík-
legur til að verða Parísarbiskup
káþólskra manna eftir Suhard
kardínála.
I
í
i
777 vinstri:
Nehru hjá Bernhard Shaw
Pandit Nehru forsætisráðherra
Indlands hefir verið í Englandi
á mikilsverðum fundi, og notaði
tækifærið til að hitta Bernhard
Shaw, sem nú er orðinn 92 ára.
Þrátt fyrir aldurinn er Shaw í
fuliii fjöri og alltaf reiðubúinn
til að vera skemmtilegur og
neyðarlegur- — Hér sést hann
ásamt Nehru fyrir utan heimili
sitt.
Karl Gruber utanríkisráðherra
Austurríkis, sem tekur þdtt í
friðarsamningunum viðvíkjandi
Austurríki, sem teknir hafa ver-
ið upp aftur í London.
Til hægri:
Stríðsfórn. — Fyrir átta árum
missti Carmelo Bova báða hand
leggina upp við axlir, er Þjóð-
verjar skutu á járnbrautarlest
með flóttamönnum suður í ít-
aliu. ftölsku læknarnir töldu ó-
rnögulegt að hægt væri að búa
til gervilimi, sem honum hæfðu,
en amerískt líknarfélag tók
hann að sér og í Bandaríkjun-
um gerði frægur skurðlæknir á
honum ýmsar aðgerðir, með
þeim árangri að nú getur hann
notað gervihandleggi. Hann er
fimmtán ára og á myndinni
sýnir hann hróðugur að hann
getur greitt sér sjálfur.
Lítil söngmær. — Maria litla
France, sem ekki er margra ára,
er yngst söngmeyja Frakklands
þeirra sem sögur fara af. En
þó lítil sé þykir hún afbragð
flestra þegar hún syngur í út-
varpinu. Hér er hún að syngja
á sýningu í París.