Fálkinn - 09.09.1949, Blaðsíða 11
F Á L K IN N
11
KROSSGÁTA NR. 742
Lárétt, skýring:
1. Fljót i Evrópu, 4. árstíðin,
10. hljóma, 13. gœlunafn, 15. búið,
16. tvílar, 17. stúdentasöngva, 19.
sundfærin. 21. beitu, 22. reiðibljóð,
24. sjóða, 20. fjörður, 28. hlass, 30.
fyrir utan, 31. mjög, 33. fangamark,
34. létt, 36. nálgast, 38. samþykki,
39. auðlindanna, 40. gamall kappi, 41.
samtenging, 42. orrustuhljóð, 44. hand
verk, 45. fangamark, 46. kveikur, 48.
vin. 50 afltaug, 51. banki, 54. þungi,
55. liljóð, 56. skemmtun, 58. lifnar,
60. handverksmenn, 62. yfir, 63.
vorkenna, 66. skipuleggi, 67. rómv.
tala, 68. fótahvild, 69. fornafn keis-
ara.
Lóörétt, skýring:
1. jórlurdvr, 2. skreyta, 3. dimma,
5. bera, 6. hljóðstafir, 7. boðum, 8.
útl. töluorð, 9. straumkast, 10. ljóta,
11. skora, 12. mann, 14. atviksorð,
16. fornsögu, 18. skilningarvita, flt.
20. |liressingunni, 22. kvikmyndafé-
lag, 23. blaut, 25. verr upplagt, 27.
Noregskonungur, 29. óþrif, 32. klári,
34. grein, 35. vendi, 36. útl. upp-
hrópun, 37. þræll, 43. ofstækisfull,
47. bólstur, 48. rjúka, 49. vatnsfall,
50. platar, 52. mannsnafn, 53. kann
við, 54. hverfi, 57. hnoða, 58. upp-
hrópun, 59. rireif, 60. herbergi, 61.
burst, 64. tveir sérhljóðar, 65. blaða-
maðu r.
LAUSN Á KftGSSG. NR. 741
Lárétt, ráöning:
1. Málað, 5. sagan, 10. penir, 12.
fálát. 14. túðan, 15. áma, 17. Tatra,
19. aka, 20. tíðinda, 23, tók, 24.
falt, 2(i. liðna 27. lnina, 28. Argon,
30. rit, 31.. kórar, 32. örar, 34. gæfu,
35. angrar, 36. marsar, 38. gift, 40.
traf, 42. gruni, 44. hag, 46. ambra,
48. námu, 49. þyrla, 51. Aron, 52.
U.S.A. 53. eggjárn, 55. iðn, 56. niðar,
58. gas, 59. agna, 61. nuðla, 63.
furða, (i4. raula, 65. mátti.
Lóðrélt, ráöning:
1. Meðalgöngumaður, 2. án, 3.
lint, 4. ar, 6. af, 7. gáta, 8. ala, 9.
náttúruafhrigði, 10. púkar, 11. smið-
ir, 13. tróna, 14. tafar, 15. áðir,
16. annt, 18. akarn, 21. Í.L. 22. D.A.
25 torginu, 27. hófsama, 29. Narfi,
31. kærra, 33. rat, 34. gat, 37. ógn-
un, 39. Marjas, 41. banna, 43. rásin,
44. hygg, 45. glás, 47. roðna, 49.
Þ.G. 50. ar, 53. Erlu, 54. naut, 57.
aða, 60. urt, 62. al, 63. fá.
HLUNNINDI HEIÐURSBORGARANS.
Eisenho'wer hershöfðingi varð
heiðursborgari Lundúna eftir striðið
og þessari vegsemd fylgja ýmisleg
hlunnindi, til dæmis þau, að ef
heiðursborgarinn er hengdur fyrir
morð þá á hann heimtingu á, að
vera skrýddur sérstakri kápu við
aftökuna.
JURTALÍF Á MARS.
Rússneskir vísindamenn hafa fund
ið óyggjandi líkur fyrir því, að
jurtalif sé á Mars. Það er liinn frægi
rússnesi stjörnufræðingur Srigori
Tikhov prófessor, sem segir frá
þessu. Hafa rannsóknir farið fram
nokkra mánuði, sem virðast stað-
festa tilgátuna um að stór flæmi .i
stjörnunni séu vaxin sígrænum
gróðri, cn á öðrum stöðum séu tré
sem felli lauf. Aður höfðu ameriskir
visindamenn slegið þvi föstu, að
mosagróður og skófir væru á Mars.
Tikhov hefir komist að þeirri nið-
urstöðu að gróðurinn sé inestur
skammt frá hcimsskautunum, en
þar er mest vatnið og liitinn frá
10 til 20 stig. Litabreytingarnar
á Mars, sem lengi hafa verið
kunnar, stafa af gróðrinum, og sam-
kvæmt þeim er náttúrufræðistofnun-
in i Kazakh að gera uppdrátt af
gróðurbeltunum. En ekki vill Tik-
hov fullyrða að dýralíf sé á Mars.
- TÍZKUIIYHJj>lR -
Litla Parísarstúlkan. Ekkert
fer litlum stúlkum betur en
matrósakjóll. Þessi kjóll er úr
hvítu 'lérefti með bláum leggj-
ingum á treyjunni og l)éttfelldu
pilsi.
Yndisleg kjóltreyja. Þessi treyja
er frá London, hún er úr ensku
blúnduefni með knipplingslegg-
ingum. Hatturinn og hanskarnir
eru úr sama efni og gera áisamt
léttu silkipilsi ákjósanlegan
klæðnað til að ferðast í til bæj-
arins.
Nýtísku sólskinskjóll. — Það er
ekki hægt að vera án sólskins-
fata í fríinu. Þessi er frá Jae-
ques Heim og hafa /)ann kost
að auðvelt er að sauma þau þvi
að þau eru aðeins hringskorið
pils úr stórrósuðu efni, en treyj-
an er aðeins sléttur smekkur
með böndum eins og brjóst-
haldari, svo að sólarinnar nýtur
vel.
Egils ávaxtadrykkir
Rúðóttur frakki frá París. Þessi
frakki er sjáanlega búinn iil
sem útflutningsvara, því að hann
er mjög frábrugðinn þeim sem
venjulega sjást á götum París-
ar. Hið óbrotna snið hans mun
samt falla flesium konum vel
í geð. Hann er úr grárúðóttu
efni með fallegum hornum og
tvíhnepptur. Mittið er þröngt en
stórar fellingar að framan
sem auka frakkanum vídd og
falla fallega við ganginn.