Fálkinn - 06.06.1952, Blaðsíða 4
VICTORIA ( IIOSS
- lignasia hciðursmcrki í hcrnaði
EINN góðan veðurdag í maí 1855
liafði hópur hermanna sýningu fyrir
Victoriu drottningu í London. Þetta
var svo sem engin nýjung, en þó var
þessi hersýning dálitið sérstæð. Það
voru sem sé hraustustu mennirnir úr
orrustunum við Alma, Inkermann og
Balaklava, sem tóku við heiðurs-
merkjum frá drottningunni við þetta
tækifæri. Margir af mönnunum voru
örkumla, og drottningin komst við,
er hún sá þá. Hún kvað sér þykja
leitt, að hún hefði ekki sérstaka lieið
ursviðurkenningu handa þessum
mönnum — þeir fengi ekki annað en
hinir, sem höfðu verið i stríðinu. En
eftir hersýninguna fór hún að hugsa
um að stofna sérstaka orðu fyrir frá-
bærustu stríðsafrek.
Drottningin átti sjálf hugmyndina,
að þessu heiðursmerki, sem síðan
er kallað „Victoria Cross“, og sömu-
leiðis samdi hún reglugerðina um
notkun þess. En teikninguna gerði
maðurinn hennar, prins Albert.
Merkið var Maltakross úr bronsi, með
sveig, sem á voru letruð orðin: „For
Valour" — fyrir hreysti.
Stofnskjal heiðursmerkisins er
undirritað af drottningunni i Buck-
ingham Palace 29. janúar 1856. Þar
stendur m. a., að krossinn skuli veitt-
ur óbreyttum hermönnum ekki síður
en liðsforingjum, bæði í sjóher og
landher, og að fylgja skuli honum
10 sterlingspunda eftirlaun á ári.
Þetta heiðursmerki var afhent i
fyrsta sinn í Hyde Park í London að
morgni 26. júní 1857. Þar var drottn-
ingin sjálf viðstödd ríðandi, ásamt
manni sínum og syni, síðar konung-
inum Edward VII. Hermálaráðherr-
ann las upp nöfn þeirra 62 manna,
sem fengu þetta heiðursmerki fyrstir
og síðan afhenti drottningin þeim
krossana sjálf. Athöfnin tók aðeins
klukkutíma og að henni lokinni var
hersýning.
Sá, sem fyrstur fékk Viktoríukross-
inn var Charles David Lucas, síðar
aðmíráll. Hann fékk krossinn fyrir af-
rek sem liann hafði unnið i Eystra-
salti i Krímstriðinu. í árás á Bomar-
sund hafði rússnesk sprengja lent á
þilfarinu á herskipinu „Hecla“, en
þar var Lucas stýrimaður. Hann vissi
vel að sprengjan gat sprungið þá og
þegar, en hljóp samt til, þreif sprengj-
una og kastaði henni fyrir borð. Snar-
ræði Lucas bjargaði lífi margra manna
og hækkaði hann þegar i tigninni. Og
svo kom Viktoríukrossinn.
Fyrsti flugmaðurinn sem fékk
Victoríukrossinn var Rhodes-Moor-
house undirlautinant. 1 flugi til
Courtray, þar sem hann varpaði
sprengjum á járnbrautarteina, særð-
ist hann hættulega. Þrátt fyrir kval-
irnar tókst honum að komast aftur
til stöðva sinna og gefa skýrslu um
afleiðingar sprengingarinnar. Þótti
það þrekvirki, að honum skyldi tak-
ast að koma flugvél sinni heim. En
hann dó áður en hann fékk krossinn,
og svo er um marga fleiri.
Þangað til 1902 hafði ekki verið
leyft að heiðra látna menn með
Victoríukrossinum. En daward VII
fannst jietta ákvæði svo óréttlátt, að
hann breytti reglugerðinni. Fyrir
1911 hafði heldur ekki verið leyft
að heiðra Indverja með Victoriukross-
inum, en í fyrri heimsstyrjöldinni
var búið að breyta þessu, svo að marg-
11 Indverjar fengu krossinn þá.
Ef maður, sem fengið hefir Victoríu-
krossinn, vinnur afrek á ný, sem þykja
þess verð að hann fengi krossinn,
fær hann svokallað „bar“ eða spennu
á orðubandið, sem fylgir krossinum.
Sá fyrsti, sem fékk þetta merki, var
Arthur Martin-Leake kapteinn. Hann
var hjúkrunarliði i Búastríðinu og
þótti þá sýna svo mikla dirfsku i að
hjálpa særðum i sjálfri víglínunni, að
hann hélt áfram að vinna þangað til
hann hafði orðið fyrir kúlum þrisvar
sinnum. En hann greri sára sinna, og
í fyrri heimsstyrjöldinni var hann
líka á vigstöðvunum og sýndi svo
mikla dirfsku, að hann fékk spennuna
til áréttingar á krossinum úr Búa-
stríðinu.
Sá, sem næstur fékk spennuna, var
Noel Chavasse kapteinn, sem féltk
krossinn 1916 og svo aftur 1917. Hann
féklc heiðursmerkin líka fyrir hjúkr-
unarstörf, eins og Martin Leake. En
sá fyrsti, sem fékk krossinn tvívegis
fyrir bardagaafrek var C. H. Upham
kapteinn frá New Zealand. Fyrri
krossinn fékk hann fyrir hreysti í
bardaga á Krit i maí 1941 og aftur
fyrir þátttöku i orrustu í Norður-
Afriku árið eftir.
Veita má útlendingum Victoríu-
krossinn, og má geta þess, að danskir
menn hafa fengið iiann tvisvar. T.
Dinesen lautinant árið 1918 og A. Las-
sen majór árið 1945. Lassen var sá
síðasti sem heiðraður var með kross-
inum eftir síðari heimsstyrjöld, en
hann var þá látinn.
í fyrstu var það tilætlunin, að Vict-
oríukrossinn væri aðeins veittur fyrir
lireysti í orrustu. En einu sinni hefir
hann þó verið veittur fyrir hreysti
utan vígvallar. í óeirðunum í Kanada
1866 kviknaði í vagni með sprengi-
efnum, sem stóð á járnbrautarstöð-
inni i Danville. Allt komst i uppnáin
og enginn vissi hvernig slökkva skyldi
eldinn áður en hann kæmist í sprengi-
efnin. Þá var það að óbreyttur liðs-
maður, O’Hea, skarst í leikinn. Hann
klifraði upp á vagninn og gat ausið
vatni yfir eldinn þangað til liann
drapst. Yfirvöldin sáu, að snarræði
mannsins hafði afstýrt hræðilegu slysi
og fengu því framgengt, að hann var
sæmdur Victoríukrossinum. — í dag
mundi svona afrek vera viðurkennt
með „Georgs-krossinum“ en sú orða
var ekki stofnuð fyrr en 1940.
Að Victoríukrossinn er fágætur má
marka af því, að í Búastríðinu var
hann aðeins veittur 78 sinnum, í fyrri
heimsstyrjöldinni 579 sinnum og i
þeirri siðari 161 sinni. Þessi einfaldi
bronsekross þykir veglegra heiðurs-
merki en sjálf sokkabandsorðan i
öllum enskumælandi löndum og enda
víðar. Sá, sem getur liaft bókstafina
„V. C.“ eftir nafninu sínu á nafn-
spjaldinu er eins konar „sesam“, sem
opnar allar dyr.
Margir Englendingar, sem hafa kom-
ist til æðstu metorða í hernum, liafa
áður fengið Victoríukrossinn. Nægir
að nefna Roberts marskálk, sem fékk
krossinn á unga aldri, og hershöfð-
ingjana úr siðari heimsstyrjöldinni
— Gort, Freyberg og Carton de Viart.
Sá siðastnefndi stjórnaði enska hern-
um, sem sendur var til Noregs i byrj-
un styrjaldarinnar.
Meðal þeirra, sem fengu krossinn í
fyrri heimsstyrjöldinni, má nefna
Daniel Laidlaw, sekkjapípuleikarann.
í árásinni á Loos gekk hann á undan
félögum sínum og blés í pípu sína til
að örva hina. Og það tókst svo vel að
hann fékk Victoríukrossinn fyrir.
Fyrsti Victoríukrossinn, í síðari
styrjöldinni var veittur fyrir fræki-
lega sjómannsdáð i orrustunni við
Narvik. Hinn 10. apríl 1940 fór ensk
flotadeild, fimm skip, inn í Lófótfjörð
til þess að ráðast á þýsk skip, sem þar
lágu. Flotadeildin var undir stjórn
Warburton-Lee flotakapteins og tókst
henni að sökkva sex þýskum flutn-
ingaskipum. En Warburton-Lee, sem
fékk Victoríukrossinn fyrir hina fræki
legu atlögu, særðist til ólifis í árás-
inni. — Síðar var annar Victoríukross
veittur fyrir frækni í orrustu við
Noreg. Árið 1943 fengu liðsforingjarn-
ir Piace og Cameron krossinn fyrir
atlöguna að „Tirpitz" skammt frá
Tromsö.
Fyrstu flugmennirnir, sem heiðrað-
ir voru með Victoríukrossinum í 2.
heimsstyrjöldinni voru D. E. Garland
lautinant og sersjantinn T. Gray. Þeim
hafði verið falið að eyðileggja brúna
yfir Albertskurðinn i Belgiu en þar
höfðu Þjóðverjar öflugt landvarnalið.
Garland og Gray tóku þetta að sér og
stjórnuðu sveit 5 flugvéla til Belgíu og
gátu eyðilagt brúna.
Afrekið sem ávann G. P. Gibson
Victoríukrossinn vakti þó enn meiri
athygli en hið áðurnefnda. í árásinni
á Möhne- og Ederstiflurnar í Þýska-
landi stjórnaði Gibson sveit Lancaster-
flugvéla, sem flaug lágt yfir markið
gegnum skothríð frá loftvarnafallbyss-
unum. Þegar Gibson hafði varpað
sprengjunum úr sinni eigin vél flaug
hann kringum markið til þess að reyna
að sjá afleiðingar af þessum sprengj-
um, sem hann varpaði á Möhnestifl-
una. Síðan stjórnaði liann flugsveit-
inni til Ederstíflunnar og lét sprengj-
um rigna þar. Hann skeytti ekkert
um hættuna, sem hann lagði sig í og
hafði sig mest i frammi sjálfur til
þess að draga að sér athygli loftvarna-
byssanna frá hinum flugvélunum.
Það hefir komið fram í sögu Victoríu
krossins — að minnsta kosti einu sinni
— að það var ekki sá, sem mesta
hreysti sýndi, sem hreppti hnossið.
Það er ekki laust við, að atvikið, sem
sagt verður frá hér hafi kátbroslegar
hliðar. Það er kunnur hermaður og
Á Empire Stadion í Wembley, London, hafa tveir veggsláldir, til
minningar um Ólympíuleikana 19J/8 verið afhjúpaöir af Burghley
lávarði. Myndin er tekin meðan athöfnin stóð yfir. —