Fálkinn - 06.06.1952, Síða 9
FÁLKINN
9
Sitt af hverju um rósir
Það hrikti í lestinni þegar hún
nam staðar. Hún stóð ekki við
nema þrjár mínútur þarna á
þessari litlu stöð, og aðeins einn
farþegi fór út. Hann hafði eng-
an farangur. Hann gekk til
stöðvarstjórans á hlaðinu og
spurði: — Hvar er leiðin inn í
bæinn?
— Beint áfram í þessa átt, svar-
aði stöðvarstjórinn ólundarlega.
— Er langt þangað?
— Nei, tuttugu mínútna gang-
ur. Þér sjáið Ijósin þarna.
Lestin ók áfram, og maðurinn
lagði af stað inn í bæinn. Hár
maður og þrekinn, á fertugsaldri.
Andlitið var frítt, en með þessum
fölgráa lit, sem oft kemur á þá,
sem sitja lengi í fangelsi.
I dag var sjöundi dagurinn síð-
an hann slapp úr fangelsinu. Þar
sem hann hafði setið í fjögur ár.
Bráðum fengi hann að sjá Kseniu
. . . fyrir hennar sök var það, sem
hann hafði þjáðst í fjögur ár. Það
var til þess að útvega henni þess-
ar tíu þúsund rúblur, sem faðir
hennar varð að fá, sem hann hafði
brotist inn í bankann. Hvílíkt
flónskuverk. Þegar hann slapp út
aftur frétti hann að Ksenía væri
gift. Hann fór undir eins hingað
í bæinn á steppunni. Peningarnir
sem hann átti nægðu fyrir járn-
brautarmiðanum. Hann ætlaði að
taka Kseníu af gamla naggnum.
Þessum Krasnov.
Það var byrjað að rigna, þegar
hann lagði af stað frá stöðinni,
og áður en hann komst hálfa leið,
var vegurinn orðinn einn forar-
pollur. Hvergi .var nokkra sál að
sjá, þegar hann kom inn í bæinn.
Hvar átti Krasnov heima? Átti
hann að berja á dyr í einhverju
húsinu og biðja um að sér yrði
vísað til vegar? Hann var kom-
inn upp á þrepin að einu húsinu,
þegar hann heyrði í bumbu næt-
urvarðarins. Og bráðum sá hann
honum bregða fyrir, en hann
sveigði inn í hliðargötu.
— Hæ! Hinkraðu við! kallaði
gesturinn og hljóp til næturvarð-
arins. — Mig langaði til þess að
spýrja þig hvar hann Krasnov
kaupmaður á heima.
— Þér gangið þessa götu á
enda. Síðasta húsið á hægri hönd
er hús Krasnovs. Það er tvílyft.
Á hann von á yður?
— Nei, það held ég varla, svar-
aði maðurinn.
— Þá verður ekki hlaupið að
því að komast inn. Það eru ekki
aðrir í húsinu en Krasnov og kon-
an hans. Vinnukonan strauk úr
vistinni og þau hafa ekki getað
fengið aðra. Allir vita hve mikill
svíðingur Krasnov er. Nætur-
vörðurinn þagnaði og spurði síð-
an hikandi: — Þér munuð ekki
vera vinur hans?
— Nei, svaraði maðurinn stutt
og fór.
Ökunni maðurinn stóð um
stund og horfði á eina gluggann
með ljósi í öllu húsinu. Svo gekk
hann upp þrepin og drap á dyr.
KSENIA vaknaði. Það var nærri
því koldimmt í svefnherberginu,
aðeins ofurlítil glæta frá olíutýr-
unni við helgimyndina. Krasnov
var ekki i rúminu. Iiann sat enn
við að telja peningana.
Hvers vegna hafði hún vaknað?
Var einhver ao berja? Jú, nú var
barið aftur .... Að hún María
skuli ekki fara til dyra! En svo
mundi hún að María var farin
úr vistinni.
Enn var barið. Kannske Kras-
nóv hafi sofnað. Hún smeygði
sér í morgunkjólinn og flýtti sér
niður í ganginn. — Hver er þar?
— Það er ég, Ksenia. — Se-
men!
Hún flýtti sér að opna dyrnar
og fleygði sér í faðminn á hon-
um.
— Hvar er maðurinn minn?
— Uppi í skrifstofunni sinni.
Kannske er hann sofandi. Ó Se-
men, elsku vinur minn, taktu mig
frá honum .......
— Já, við strjúkum. Undir eins
í nótt. En ég hefi enga peninga,
og við verðum að komast til út-
landa. Annars tekur lögregian þig
og rekur þig til mannsins þíns
aftur.
— Eg hefi heldur ekki peninga.
Hann tímir ekki að sjá af nokkr-
um eyri handa mér.
, — Hvar er hann? Það var eitt-
hvað í rödd Semens, sem olli því
að Ksenia hrökk við.
— Eg skal fylgja þér til hans.
KRASNOV vaknaði. Enn var
sami stormurinn, enn buldi rign-
ingin. Það minnti hann á nóttina
í Moskva — nóttina sem forsjón-
in hjálpaði honum. En hvað var
nú þetta? Brakaði ekki í stigan-
um — var einhver að koma? —
Hver er þar? kallaði hann.
— Það er bara ég . .. . Ætlarðu
ekki að fara að hátta? heyrði
hann að Ksenia sagði. Dyrnar
opnuðust, en það var ekki Ksenia
sem kom inn. Ókunnur maður
stóð í dyrunum. Krasnov spratt
upp og hljóðaði.
— Hver ert þú? hrópaði hann.
Hann sá eitthvað skína úr aug-
um mannsins og fór að hrópa á
hjálp. En stormurinn veinaði og
og bærinn svaf og enginn heyrði
bænaróp okrarans. Semen var
gamall væskill.
Næturvörðurinn gekk framhjá.
Enn lagði birtuna úr gluggan-
um í Krasnovshúsinu í þrjár næt-
ur. Svo liðu tvær nætur og eng-
in birta var úr glugganum. Þeg-
ar næturvörðurinn barði að dyr-
í þýskri bók um rósir, sem gefin
var út 1880, eru taldar upp sex þús-
und tegundir rósa og einkennum
þeirra lýst.
„Sarons rós“ var alls ekki rós.
betta var tegund af narsissu, sem er
mjög aígeng í SV-Asíu. BibJían minn-
ist á fleiri „rósir“, sem alls ekki voru
rósir, heldur rhododendron og ole-
ander.
Manni í London tókst aö fá tvö
þúsund rósir á einu og sama trénu.
Það var 8% metra hátt og uiiimál
greinanna G metrar.
Um allan heim að heita má vaxa
viilirósir, til dæmis á íslandi og norð-
ur í Lapplandi. En undantekning er
Suður-Amerika og Ástralía — þar eru
engar rósir til.
Rauð rós er látin tákna ást, feg-
urð og gleði, og sagan segir að hún
sé tileinkuð gyðjunni Venus.
Þjóðsaga segir að fyrsta rósin hafi
orðið til er kona var brennd á báli
í Betlehem, þegar verið var að of-
sækja kristið fólk á tímum frum-
kristninnar. Meðan hún stóð á bálinu
baðst hún fyrir og sá þá logana verða
að rósum. Þetta voru fyrstu rósirnar
sem nokkur maður leit, og þess vegna
eru rósirnar kallaðar blóm pislar-
vottanna. Áhangendur Múliameðs
segja, að það hafi verið hann, sem
bjó til fyrstu rósina.
Mulin rósablöð, blönduð með sykri
og steikt i ofni, voru fyrrum notuð
sem krydd í ýmsar kökur.
Enskur maður, Edward Rose, var
svo hrifinn af rósum, að áður en liann
dó afhenti hann bæjarstjórninni stóra
fjárupphæð incð því skilyrði áð hún
sæi um að jafnan yrði rósatré á gröf-
inni lians.
Þrátt fyrir ilminn er ekkert hun-
ang i rósum. En skordýrin sækja að
blóminu vegna litarins.
í enskum hetjusögum gætir rósanna
mjög. Á riddaraöldinni fengu hetjur
rósakrans að launum fyrir unnin af-
rek. Það er sagt að rósin hafi orðið
þjóðarblóm Englendinga eftir að her-
toginn af Lancasler setti rósamynd
i skjaldarmerki sitt, eflir að hann
liafði verið í Frakklandi.
Fyrsti maðurinn, sem sögur fara
af að liafi búið til fegrunarsmyrsl
handa kvenfólki pressaði safa úr
rósablöðum og blandaði hann i hvítt
vax. Uppskrift hans er not'uð enn og
er þó orðin 2000 ára gömul.
Ameríkanski jurtakynbótafræðing-
um sjötta morguninn og enginn
svaraði, var hurðin brotin upp.
Semen og Ksenia höfðu ekki
tekið meiri peninga en þau þurftu
til ferðarinnar.
Afganginum af hálfu milljón-
inni hans Krasnovs var skipt milli
fátækra í bænum. Svo að okrar-
inn varð þó einhverjum til bless-
unar þegar lauk.
urinn Luther Burbank einsetti sér að
búa til nýjar tegundir af rósum og
lielgaði þessum tilraunum mikið starf.
Eftir tólf ár tókst honum loks að búa
til rós, með öllum þeim einkennum
sem hann hafði ætlað sér að fá. Rósin
er kölluð Burbanksrós.
Eyjan Rbodos í Miðjarðarhafi fékk
nafn sitt, sem þýðir rós, af liinum
fögru rósatrjám, sem vaxa þar. Á
eyjunni Krít, skammt frá, er elsta
málverkið af rós, sem menn vita um.
Það var málað á 16. öld f. Kr.
Rósatré geta drepist af of mikilli
næringu. Það kemur oftar fyrir að
rósin þrífist ekki vegna þess að liún
er í of feitri mold én vegna þess að
moldin sé of mögur.
Vanir sérfræðingar geta greint á
milli ótal lita á rósum. Þegar venju-
legur maður talar um rauðar rós-
ir, getur fagmaðurinn skipt þeim í
rauðbrúnar, skarlatsrauðar, ribsrauð-
ar, kirsiberjarauðar, lilla, fjólublá-
rauðar, zinnoberrauðar, plómurauð-
ar, lakkrauðar, karmosinrauðar,
ferskjulitar, kóralrauðar, serissrauð-
ar, ketrauðar, bronsrauðar, brúngul-
ar, aprikósurauðar, ryðrauðar, blá-
leitar, koparrauðar, rauðgular, sí-
trónugulrauðar, kanarígular, krómgul-
ar og rósrauðar. Alhvitar rósir eru
ekki til, segja fagmennirnir.
„Þarna kemur húseigandinn —
farðu út í garð og tíndu húsaleig-
una!“ Þessi setning var ekki óalgeng
í Englandi í gamla daga, því að þá
borguðu margir húsaleiguna sina með
rósum. Sir Christopher Hatton, kansl-
ari Elizabethar drottningar borgaði
rósir i leigu fyrir óðal sem hann bjó
á. Star Hotel í Worcester var lika
leigt fyrir rósir.
Forn-Grikkir settu rósakrans um
höfuð sér áður en þeir settust að
veisluborðum. Þeir héldu að rósirnar
hindruðu að þeir yrðu of drukknir.
Annars drukku þeir ýmsa drykki,
sem voru gerðir úr rósum, þar á
meðal svonefnda ástadrykki.
Til eru rósir sem svo slæm lykt
er af að enginn þolir við í námunda
við þær nema nokkrar mínútur.
ÁST OG BJÚGU.
Enski sjómaðurinn Robert Parkin
er nýfarinn til Iíanada til að giftast
stúlku, sem hann hefir aldrei séð.
í fyrra fékk hann matarböggul, sem
liafði verið sendur á sjómanna-
stofu af einhverri velgerðarstofnun
í Kanada. Voru Frankfurter-bjúgu
í bögglinum og bréf með, frá Lise
Pcrcheron i Quebec. Hún bað við-
takandann að skrifa sér bréf og
senda mynd með. Sjálf liafði hún
lagt mynd af sér með bjúgunum.
Nú hefir framhald bréfaskriftanna
haft þann árangur, að þau ætla að
g'iftast. „En aldrei liefði ég trúað
að ég ætti eftir að finna konuna
mína innan um bjúgu,“ segir Perk-
ins.