Fálkinn - 23.01.1953, Qupperneq 11
FÁLKINN
11
GRÁR ULLARKJÓLL.
Nýjasta eftirlætishugmynd franska
tískuteiknarans Jean Desses er að
koma fyrir fellingum um axlirnar, og
flestir „modelkjólar" hans eru prýdd-
ir einhverju afbrigði af þeirri hug-
mynd. Þessi einfaldi grái ullarkjóll,
s'em hér er sýndur, er auk þess
prýddur stykki úr efninu, sem lagt
er yfir herðarnar. Pilsið er lagt í
laus föll undir svart rúskinnsbeltið.
Fegrun hörundsins.
Andlitsliörund okkar kvennanna cr
ákaflega mismunandi, og má með réttu
scgja að engum tveim konum dugi
nákvæmlega sama meðferð þess.
Sumar geta haldið því fögru með
köldu vatni með eða án sápu, en aðr-
ar fá hrukkur og þurra húð af þeirri
meðferð, þótt enginn munur sé sjá-
anlegur á húð þeirra í upphafi. Krem-
tegund sem ein kona hefir mjög góða
reynslu af og fær vinkonu sína til
að prófa getur valdið bólum á andliti
þeirrar síðarnefndu, — þótt ekkert
sé athugavert við k-remið í sjálfu sér,
vegna þess að einstaka konur eru of-
næmar fyrir efnum sem notuð eru i
góð næringar- og hreinsunarkrem.
Það er því nauðsynlegt að þreifa
sig áfrani með hvað lientar best því
liörundi, sem hver einstök hefir lilot-
ið i vöggugjöf. Sumum tekst skjótt
að komast að niðurstöðu, aðrar verða
að gera margar tilraunir — og hyrja
nýja aðferð um leið og húðin verður
of þurr, eða breytir sér á annan hátt.
Sé húðin orðin svo þurr að andlits-
duftið verður eins og sjáanlegt hreist-
ur á andlitinu, er timi til kominn að
reyna nýja aðferð. Reynið að nudda
lítið eitt lituðu (eða venjulegu hreins-
unarkremi) „dagkremi“ inn í húðina,
vætið siðan fingurgómana undir kalda
vatnskrananum og bleytið með þeim
allt andlitið. Berið andlitsduftið á
áður en húðin er alveg þurr og lítið
svo i spegil eftir stundarfjórðung.
Það eru miklar líkur til að húðin
hafi nú liinn slétta, mjúka gljáa sem
yngir konuna mildu meira í útliti en
hin þurra matta púðrun.
Augun verða skærari ef þau eru
höfð opin i hvert skipti sem þér þvoið
yður úr köldu (sápulaúsu) vatni, og
eins mikið og þér þolið af vatninu
Eiginkona skrifar:
Við verðum að spara!
Hræðilegir dagar eru fram undan.
Maðurinn minn var að enda við að
segja, „það þarf að mála hjá okkur
í vor. Við verðum að reyna að draga
úr útgjöldum.“ Eg veit að nú koma
liræðilegir dagar, þvi að við fáum
þessi köst oft á ári og ég veit full-
komlega á hverju ég á von.
Versti gallinn á eiginmönnum er
sá það þeir halda að með þvi að
segja: „Við verðum að spara“ sé
hægt að vinna eitthvert fjárhagslegt
kraftaverk. Þegar ég svo segi „Hvern-
ig?“ svarar liann:
„Eg dreg úr reykingunum. Tuttugu
á dag gera 70 kr. á viku. Ef ég reyki
bara tíu spörum við 35 kr. á viku.“
Hvað skeður. Hann reykir sinar tiu
fyrir hádegi og gengur svo um eins
og grenjandi ljón það sem eftir er
dagsins og segir: „Eg er svangur —
er ekkert til að borða á heimilinu?"
1 vikulokin höfum við eytt því, sem
sparaðist á tó'baksbindindinu, og
meira til í aukin matarkaup.
Næst reynir hann aðra hugmynd.
„Við skulum alltaf tína saman smá-
aurana og láta þá í mjólkurflösku.
Þegar liún er full hljótum við að liafa
sparað lieilmikið.“
Hvað skeður? Sá er galli á gjöf
Njarðar, að mun auðveldara er að
tæma mjólkurflösku en fylla liana. Það
bregst ekki að, þegar búið er að hylja
botn flöskunnar af smáaurum, koma
óvænt útgjöld og flaskan tæmist.
Hann gefst upp á þessu og snýr
sér að mér. „Getum við ekki lækkað
matarútgjöldin?“ segir hann.
Hvað skeður? Eg fæ honum inn-
kaupatöskuna og skömmtunarseðlana
og segi: „Gjörðu svo vel, elskan mín.
Reyndu það.“
Og þeirri sparnaðartilraun er ]>ar
með lokið. Hann lítur kringum sig í
örvæntingu og segir: „Við verðum að
spara rafmagnið og heita vatnið.“
Hvað skeður? Hann gengur um og
slekkur ljósin alls staðar, hann slekk-
ur jafnvel undir pottunum á eldavél-
látið fara í augun. Eins og allir vita
er þetta líka ágæt aðferð til að lirista
af sér morgundrungann og syfjuna á
morgnana.
Að endingu skal hér getið einnar
fegrunaraðferðar sem margar hafa
góða reynslu af og allir geta veitt
sér. Drekkið þrjú glös af soðnu kældu
vatni á dag, það á að hreinsa líffærin
og bæta meltinguna og skapar kon
unni þar af leiðandi bjartan litar-
hátt og skær augu.
HÚN SAGÐI NEI. — Það kemur fyrir
þótt ekki sé það oft, að brúðurin segir
nei þegar presturinn spyr hvort hún
vilji manninn, sem lijá henni stend-
ur, og lifa með honum i meðlæti og
mótlæti. Meðal annars gerðist þetta
nýlega í þorpi í Austurríki. Brúðurin
sagði nei þegar hún var spurð, og
inni. Eftir nokkra hörmungardaga
kulda og myrkurs steypist ég niður
stigann eitt kvöldið með mjólkur-
könnu í hendinni og mjólkin hellist
yfir nýja gólfteppið á ganginum.
Þegar lniið er að kaupa nýja mjólk-
urkönnu Ög borga auk þess hreinsun
á teppinu er þessi sparnaðaraðferð
dæmd óhæf.
Næsta úrlausn er: „Við verðum að
hætta að fara út að skemmta okkur.
Við ættum að geta haft það gott
heima.“
Hvað skeður? í hálfan mánuð sit ég
og staga fatnað og plögg á hverju
kvöldi og horfi á liann dotta yfir bók
í hægindastólnum. Loks segi ég:
„Þetta get ég ekki afborið lengur."
Hann svarar: „Ekki ég heldur.
Hugsaðu þér nú alla peningana sem
við erum búin að spara — nú skulum
við fara út og skemmta okkur kon-
unglega."
Seinna komumst við að raun um,
að þessi konunglega skemmtun kostar
okkur tvisvar sinnum meira en hinar
venjulegu kvikmyndahússferðir tvisv-
ar í viku.
Að lokum færir hann þyngstu fórn-
ina og segir hátíðlegur á svip: „Eg
hætti að taka þátt í getraununum."
Hann fylgdist með úrslitunum eins
og venjulega á laugardögum. Þriðja
laugardaginn þýtur hann upp úr stóln-
um og segir: „Eg vissi alveg að svona
myndi það fara. Hefði ég nú tekið þátt
í þeim hefði ég grætt 700 kr.“ Hann
getur ekki afborið það að fara á mis
við svo mikla peninga.
Svo hann neyddist til að vera með
næstu viku — og næsta laugardag böl-
sótaðist liann yfir úrslitunum eins og
venjulega.
Þetta eru sem sé ástæðurnar fyrir
því að ég geri mér ekki miklar vonir
um árangur af „sparnaðarherferðum"
hans.
Nú, jæja, ég býst við að ]>að endi
með að við verðum að mála sjálf lijá
okkur i vor!
bætti því við að hún hefði látið undan
fortölum foreldra sinna, en væri þvert
um geð að ganga í eina sæng með brúð-
gumanum, enda var hann kominn yfir
sextugt. — En brúðguminn var ekki
af baki dottinn. Hann sneri sér til
brúðkaupsgestanna og spurði livort
nokkur kona væri i hópnum, sem viidi
eiga hann. Og á augnablikinu kom
ein af fyrrverandi ráðskonum hans
og gaf sig fram. Ilún hafði verið hjá
honum fyrir tiu árum og þá hafði
hann beðið herinar en hún sagt nei,
en nú gat hún ekki stillt sig. Og svo
var lýst fyrir nýja parinu og eftir
fjórar vikur voru þau pússuð saman.
Það er vafalaust að ég hefi unnið
til þess að eignast óvinina, sem ég á,
en ég held varla að ég liafi verðskuld-
að vini inínasegir WALT WHITMAN.
KÖFLÓTTUR DAGKJÓLL.
Þessi hentugi dagkjóll er úr köflóttu
ullarefni í svörtum, hvítum og sterk-
bláum litum. Hann er hár í hálsinn
og án kraga, ermar langar en þeim
ýtt upp fyrir olnboga. Pilsið er að-
skorið um mjaðmir en víkkar niður
í fellingar að framan og aftan. f
beltið er komið fyrir stórum klút úr
sama efni og kjóllinn.
Kökur.
SYKURKAKA:
4 egg.
180 gr. sykur.
70 gr. liveiti.
70 gr. kartöflumjöl.
1 teskeið lyftiduft.
Egg og sýkur er hrært í hrærivél
ca 5 minútur. IJveiti, kartöflumjöli og
lyftidufti blandað vel saman og bætt
út í. Síðan er öllu hrært saman með
sleif. Deiginu rennt í smurð lagköku-
mót sem raspi hefir verið stráð í.
Bakist í meðalheitum ofni ca. 30
mínútur.
Á milli tertulaganna má hafa hvort
sem er vanillukrem, smjörkrem eða
ávaxtamauk, en ofan á tertuna er
ákaflega Ijúffengt að hafa karamellu-
húð og fer uppskrift iliennar liér á
eftir.
KARAMELLUHÚÐ:
(Toffee frosting).
2 dl. rjómi,
125 gr. sykur.
2 matsk. sýróp.
30 gr. smjör (smjörliki).
1 teskeið vanilludropar.
Sykur, sýróp og rjómi látið hitna
og sjóða við hægan hita. Þegar það
er farið að þykkna er smjöri og van-
illu bætt í. Hrært vel í á meðan. Sé
karamelluhúðin í þynnra lagi er gott
að láta liana kólna lítið eitt áður en
henni er hellt yfir kökuna.
Drengurinn kom heim óhuggandi
eftir fyrsta daginn sinn i skólanum.
„Eg fer aldrei i skólann aftur“. sagði
liann einbeittur. „Hvers vegna ekki?“
spurði mamma. „Ekki kann ég að lesa,
og ekki kann ég að skrifa“ sagði dreng-
urinn, „og svo leyfir kennarinn mér
ekki að tala.“
/