Fálkinn - 04.06.1954, Page 11
F ALKINN
11
LITLA SAGAN
RUZICKA:
Bœði m Homingjusöm
LJA.NS liafði gengið við hliðina á
Elly um stund og horft lengi á
vangann á henni. Svo fór hún dálítið
fram úr lionum, en hann komst von
bráðar á lilið við hana aftur.
„Nú bítur hann á,“ hugsaði unga
stúlkan með sér, hálf ergileg, og
greikkaði sporið. Og alveg rétt — nú
var hann svo nærri henni, að maður
liefði getað haldið að þetta væru ný-
gift hjón. Elly herti enn meira á sér.
— Hans líka.
„Ef þessu lieldur áfram kemst lirað-
inn á okkur bráðum upp í fimmtán
kílómetra á klukkustund,“ sagði hann.
„Það er mikil mildi að lögreglan skuli
ekki hafa sett hámarkshraða á gang-
andi fólk.“
„En það er liins vegar takmark fyr-
ir þolinmæðinni lijá mér,“ sagði hún
snefsin. „Farið þér burt!“
„Ja, en ef ég segi yður, að þér eruð
„vona minna bjarmi" og að ég heiti
Hans,“ byrjaði pilturinn, en komst
ekki lengra, þvi að hún tók fram í —
og nú var liún reið:
„Ekki get ég gert að því. Ég kynni
mig aldrei ókunnugu fólki úti á götu
— að þér vitið það!“
„Þetta segir liún frænka mín líka.
En ef ég bæði yður um að dansa við
mig langó hérna á gangsstéttinni, þá
munduð þér gera það?“
„Þér eruð hrút-leiðinlegur,“ sagði
unga stúlkan þóttafull, „viljið þér gera
svo vel að láta mig í friði!“
„Ágætt!“ sagði pilturinn með ör-
væntingarhreim. „En ég verð fyrst
að benda yður á, að það er gat á báð-
um nylonsokkunum yðar.“
Elly hrökk í kuðung. „Það er ekki
satt!“
„Jú, svei mér þá!“
Unga stúlkan fór að athuga á sér
rennilegar lappirnar.
„Dálítið ofar,“ sagði Hans drumbs-
lega. Elly roðnaði og dró stuttpilsið
ósjálfrátt ofurlítið neðar.
„Hvað á ég að gera?“ spurði liún
vandræðalega.
„Umfram allt að vekja ekki athygli.
En þarna e'r kökubúð. Má ég bjóða
yður kaffibolla?"
„Þér eruð voðalegur maður,“ sagði
hún með áherslu og andvarpaði er hún
fór með honum inn. Þegar þau höfðu
beðið um kaffið fór Elly með töskuna
sína fram, til að athuga tjónið, sem
orðið liafði á spánýjum sokkunum
hennar. Hún var fokvond er hún kom
til baka. Hans lét hausinn siga niður
á milli axlanna og beið eftir reiðar-
slaginu.
„Yður finnst ekki nóg að koma mér
í vandræði með lygunum yðar. Þér
luguð því að göt væri á sokkunum.
Þér ættuð að skammast yðar. Nú fer
ég!“
„Bíðið þér augnablik!" bað Hans.
„Þér höfðuð svo stcrk áhrif á mig að
ég varð að kynnast yður með ein-
hverju móti. En ég laug ekki. Það er
eitt gat á hvorum sokk.“
„Hvar, má ég spyrja?“
„Þarna — að ofan. Ef gatið væri
ekki þá nmnduð þér ekki koma fót-
unum i sokkana.“
„Finnst yður þetta fyndið?“ and-
varapði Elly. „Þjónn, viljið þér taka
við borguninni?"
„Eitt augnablik enn,“ sagði Hans.
„Þér megið ekki vera svona harð-
GÖNGUBÚNINGUR
samsettur af Jirem hlutum, einföldu og
látlausu pilsi, jakki meö vestislmepp-
ingu og víöri stuttkápu bryddaöri
persianskinni. EfniÖ í búningnum er
blágrátt aö lit og hann er teiknaöur
af Jeanne Lanvin.
brjósta við mig. Mig langar skelfing
til að hitta yður aftur.“
„Mér dettur það ekki i hug.“
„En má ég ekki gefa yður sima-
númerið mitt?“ spurði hann, og tók
upp veskið sitt. „Kannske þér símið
til mín við tækifæri.“
„Já, áreiðanlega!" sagði hún í
hæðnitón, „strax á morgun!"
„Það væri ágætt, svona um 2-leyt-
ið,“ sagði hann og skrifaði einhverjar
tölur á miða, sem hann braut svo
saman eins og tombóluseðil. „Ég liefi
því miður ekki nafnspjald, ]jér fáið
þetta í staðinn.“
Elly tók við miðanum til að friða
hann og stakk honum í töskuna án
þess að líta á liann. Svo stóð hún upp
og fór.
Stundvislega klukkan tvö liringdi
siminn á borðinu lijá Hans.
„Halló, ungfrú Elly!“ svaraði ungi
maðurinn.
„Hvernig datt yður í lmg að skrifa
símanúmerið yðar á 50 króna seðil,“
spurði hún og röddinn var ekki óvin-
gjarnleg. „Ég tók elcki eftir þessu fyrr
en ég var komin heim.“
„Af þvi að ég vonaði að þér nmnd-
uð síma,“ sagði Hans og reyndi að
láta sem minnst á því bera að hann
væri glaður.
„Ég skila yður vitanlega peningun-
um aftur við fyrsta tækifæri,“ liélt
hún áfram. „Getið þér hitt mig kl.
8 á Central?"
Elly hafði söðlað um — algerlega.
„Ef maður hættir 50 krónum i stúlku,
sem hann þekkir ekkert,“ hafði hin
lifsreynda móðir hennar sagt, „þá er
hann i fyrsta lagi ekki blankur og i
öðru lagi er hann verulega ástfang-
inn. Svo að þér er óhælt að liitta ....“
Þetta varð skemmtilegasta kvöld.
Þegar hann fylgdi lienni heim um
lágnættið, leiddust þau og það var ekki
naglarþykkl á milli þeirra.
„Ég varð svo sæll þegar þú komst,“
hvíslaði Hans, „af því að .... af því
að ....“ Hann kyssti hana.
„Af því að þú getur ekki lifað án
mín,“ hugsaði Elly með sér og var
hrærð.
„Af því að ég hefi ckki hugmynd
um hvernig ég liefði átt að komast af
án fimmtíu krónanna," liugsaði hann
með sér.
Og bæði voru hamingjusöm.
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason, prentara.
Nýtt tungl 1. júní 1954.
Alþjóðayfirlit.
Vatns- og aðalmerkin eru yfirgnæf-
andi í áhrifum. Tilfinningarnar eru
mjög áberandi þáttur i rekstri heims-
málanna og þvi er líklegt að skakkar
ákvarðanir verði teknar í sunmm mál-
um og misbeiting komi upp sem hefir
truflandi áhrif. Þó er framtakssemi
þróttmikil og áberandi. Árekstrar
gætu komið ti! greina. Styrjaldarund-
irbúningurinn lieldur áfram og
liræðslan minnkar ekki enn.
Júpíter og Merkúr i hádegisstað ís-
lenska lýðveldisins. Umræður miklar
gætu átt sér stað um stjórnarferil
landsins og ágreiningur mun allveru-
legur um það. Aftur á móti ættu fjár-
hagsmálin að vera undir skárri áhrif-
um, jafnvel þó að truflandi áhrif
gætu átt sér stað frá andstöðuöflunum.
Lundúnir. — Nýja tunglið i 1. húsi.
— ýms vandamál á dagskrá, sem vekja
almenna athygli. Góð áhrif frá Venusi
koma til greina sem mun lialda jafn-
vægi í fjárhagsmálum. Truflanir frá
verkamönnum. — Júpíter, Merkúr og
Venus í 2. húsi. Fjárhagsafstaða al-
mennings ætti að vera sæmileg. Banka-
starfsemin og verðbréfasala góð. —
Úran i 3. húsi. Samgöngur undir at-
liugaverðum áhrifum. Sprenging gæti
átt sér stað i flutningatæki og verk-
fall gæti átt sér stað í prentverki,
bókaútgáfum eða blöðum, pósti og
sima. — Satúrn og Neptún í 6. húsi.
Slæm afstaða fyrir verkamenn og
flotann. — Mars í 8. húsi. Dánartilfelli
í járn- og málmiðnaðinum.
Berlín. — Nýja tunglið í 12. húsi.
Góðgerðastarfsemi, spítalar, vinnu-
liæli, betrunarhús undir áberandi á-
hrifum. Eitthvað ætti að vera hlynnt
að þessum stofnunum. Þó gætu svik
komið upp í sambandi við þessi mál.
— Venus og Úran i 2. húsi. Fjárhags-
málin, bankar og verðbréfaverslun
ættu að vera undir sæmilegum áhrif-
um. Þó gæti snrenging átt sér stað í
bankastofnun, sem veldur slysi. —
Júpíter og Merkúr í 1. liúsi. Ætti að
vera góð áhrif á afstöðu almennings
og lieilsufar gott. — Neptún í 5. húsi.
Leikhús og leikarar undir athugaverð-
um áhrifum. Fjárhagsörðugleikar
koma til greina. — Satúrn í 6. húsi.
Slæm afstaða fyrir verkamenn, tafir
i málameðferð gætu átt sér stað.
Moskóva. — Nýja tunglið i 12. húsi.
Betrunarhús, spítalar, vinnuhæli og
góðgerðastarfsemi undir áberandi á-
hrifum. Misgerðir gætu komið í Ijós
í rekstri þessara fyrirtækja. — Úran
í 1. húsi. Þetta er athugaverð afstaða.
Uppivaðsla, undirróður, sprengingar
gætu átt sér stað og valdið slysum. —
Neptún í 5. húsi ásamt Satúrn. Slæm
áhrif á rekstur leikhúsa og misgerðir
gætu komið í ljós í rekstri þeirra.
Urgur meðal leikara. Tafir nokkrar
i framkvæmdum. — Mars í C. llúsi.
Athugaverð afstaða meðal verka-
manna og þjóna og órói og óánægja
meðal hermanna á flotanum.
Tokýo. — Nýja tunglið i 9. húsi. —
Utanlandssiglingar mjög á dagskrá og
veitt athygli. Þó gætu truflanir nokkr-
ar átt sér stað vegna óhagstæðra pen-
inggmála og undargröftur gæti komið
í ljós og verkföll. — Júpíter, Merkúr,
Venus og Úran í 10. liúsi. Afstaða
stjórnarinnar undir mjög áberandi á-
hrifum. Afstaðan er fremur góð og í
rauninni mjög sterk fyrir stjórnina,
þó að smáurgur og gagnrýni gæti átt
sér stað. — Mars i 4. liúsi. Barátta
gegn stjórninni mun áberandi. Slæm
afstaða fyrir bændur. Hitar gætu gert
skaða í gróðri. — Satúrn og Neptún
í 2. húsi. Slæm afstaða í fjárhags-
málunum.
Washington. — Nýja tunglið í 4.
húsi. Landbúnaðurinn og viðfangs-
efni lians mjög á dagskrá og útlit
sæmilegt, líklegt að kunnur landbún-
aðarfrömuður deyi. — Júpíter og
Merkúr í 8. húsi. Leiklnis og leiklist
og leikarar undir góðum áhrifum og
hagnaður mikill af rekstri skemmti-
staða. — Venus og Úran i 6. liúsi.
Sæmileg aðstaða verkamanna og þjóna
og hermanna. Þó gæti sprenging átt
sér stað í herskipi. — Mars í 12. húsi.
Slæm afstaða til sjúkrahúsa, vinnu-
hæla, betrunarhúsa og góðgerðarstarf-
semi. Svik gætu komið til greina í
rekstri þessara stofnana. — Satúrn
og Neptún í 8. húsi. Háttsettur, gamall
embættismaður mun deyja. En liið
opinbera mun ekki eignast fé að
erfðum.
í s 1 a n d .
12. hús. — Nýja tunglið í húsi þessu.
— Góðgerðastarfsemin, betrunarhús,
vinnuhæli og sjúkrahús undir áber-
andi áhrifum og þeim veitt sérstaklega
mikil athygli. Endurbætur gætu kom-
ið til greina, en þó er liætt við að
svik gætu einnig komið upp úr kafinu.
1. hús. — Merkúr ræður húsi þessu.
— Auknar kröfur um fræðslu og
fræðslufyrirkomulag og breytingar á
þvi. — Heilbrigði ætti að vera sæmi-
legt. Þó gæti farsótt gert vart við sig.
Órói nokkur meðal almennings.
2. hús. — Júpíter í húsi þessu. —
Fjárhagsmálin undir sæmilegum á-
lirifum og peningaverslunin glæðist.
Þó gæti slæm afstaða frá Mars í 9.
húsi, utanlandsviðskiptum og sigling-
um, spillt hinum betri áhrifum.
3. hús. — Venus í lnisi þessu. —
Flutningar og ferðalög ættu að ganga
sæmilega; þó mætti búast við að bóka-
útgáfa og blaða yrði fyrir truflunum
nokkrum vegna slæmrar afstöðu frá
Úran.
4. hús. — Úran í húsi þessu. — At-
hugaverð afstaða fyrir bændur og
búalið. Andstaða stjórnarinnar mun
færast i aukana og sprenging gæti átl
sér stað i opinberri byggingu.
5. hús. — Tungl ræður lnisi þessu.
Breytileg áhrif koma hér til greina,
tröppugangur í framtaki í leiklist,
leikhúsarekstri og aðstæðum leikara.
Viðfangsefnin nokkuð óákveðin.
6. hús. — Plútó, Satúrn og Neptún
i húsi þessu. — Slæm afstaða fyrir
verkalýðinn. Tafir og hindranir koma
í ljós og saknæmar tiltektir gætu áti
sér stað.
7. hús. — Júpíter ræður húsi þessu.
— Afstaðan í utanríkismálunum ætti
að vera góð, þó að truflanir gætu átt
sér stað frá utanlandssiglingum.
8. hús. — Júpiter ræður húsi þessu.
Hugsast gæti að ríkið eignaðist verð-
mæti sem gjöf eða að erfð.
9. hús. — Mars i húsi þessu. — Slæm
afstaða fyrir utanlandssiglingar. Lik-
legt að urgur og barátta komi í ljós
i siglingaflotanum og verkfall gæti
komið til greina.
10. hús. —• Mars ræður húsi þessu.
— Miklir örugleikar steðja að stjórn-
inni og hún á ekki gott um vik. Vanda-
málin steðja að úr ýmsum áttum og
eru örðug viðfangs.
11. hús. — Mars ræður einnig liúsi
þessu. — Barátta og urgur út af til-
tektum stjórnarinnar og ákvörðunum
þingsins. Ritað 26. maí 1954.