Fálkinn - 20.08.1954, Qupperneq 2
2
FÁLKINN
Hin nýja bensínstöð við Reykjanesbraut.
Shell tpnor nýjo bensínstöö
Uni síðustu lielgi opnaði H.f. Sliell
á íslandi nýja bensínstöð í Öskjuhlíð.
Stendur lu'in við Reykjanesbraut,
gegnt Þóroddsstöðum. Innan skamms
lœtur félagið einnig reisa þar smur-
stöð.
Útbúnaður stöðvarinnar er allur
hinn besti og öllu er þar smekklega
fyrir komið. Bensíngeymar eru tveir,
og taka þeir 28 þús. lítra, en auk þess
er 7 þús. lítra dieselolíugeymir. Á
þvottaplaninu, sem er hið stærsta i
bænum, er bæði heitt og kalt vatn og
auk þess sérstök tæki til notkunar, ef
]>rýstingur á vatninu er lítill eða ó-
hreinindi á bílnum sérstaklega föst.
Átta slcingur eru til afnota fyrir bíl-
þvotta og 10 bílar komast vel fyrir á
planinu i einu.
Þór Sandholt arkitekt teiknaði hina
nýju stöð, en Guðmundur Jóhannsson
húsasmiðameistari hafði umsjón með
byggingunni. Málun annaðist Pétur
Hjaltested, raflagningu Júlíus Björns-
son og Emil Hjartarson um innrétt-
ingar. Litasamsetningu i afgreiðslusal
réð Hörður Ágústsson listmálari.
Hallgrímur Fr. Hallgrimsson for-
stjóri tilkynnti við opnun stöðvarinn-
ar, að 1. september næstkomandi
mundi bensínstöð Sliell við Lækjar-
götu verða lögð niður, í samræmi við
ósk bæjaryfirvaldanna um að rýma
til i miðbænum vegna hinna auknu
umferðarþrengsla. *
BAHCO
- lyhla-sflmstffiður
BAHCO Minor
Nr 1731 (mm)
Nr 1733 (tum)
bifreiða-lyklar
eins og öll BAHCO-verkfæri, eru gerðir úr
besta stáli sem þekkist og af óskeikulli ná-
kvæmni. Þeir endast betur en aðrir lyklar.
Það er reynslan á Islandi, sem annars'staðar.
heimsfrægu verkfæri eru búin til af
A/B B. A. HJORTH & Co., STOCKHOLM.
Umboðsmenn á íslandi:
Þórður Sveinsson & Co. h.f.
Reykjavík.
BAHCO Scxtett
Nr 1771 (mm)
Nr 1773 (tum)
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»»