Fálkinn - 17.09.1954, Blaðsíða 3
F ÁL KIN N
mv i 3
M/b Svanur, RE-88.
BlaSamönnum var boðið að fara
reynsluför með m/b Svan, RE-88,
síðastliðinn laugardag, en í hann hefir
verið sett ný, létt og hraðgeng diesel-
vélasamstæða, sem framleidd er hjá
General Motors Corporation, en um-
boðsmenn fyrir vélarnar eru Gísli
Halldórsson h.f.
Svanur er skráður 74 smálestir,
byggður úr eik i Gautaborg 1941, einn
af hinum svokölluðu „blöðrubátum".
Eigendur bátsins eru Skaftafell h.f. en
útgerðarstjóri þess og skipstjóri báts-
ins er Andrés Finnbogason.
iBáturinn hefir undanfarin 9 ár
stundað línuveiðar frá Reykjavík en
eins og í fleiri bátum, sem keyptir voru
notaðir hingað til landsins eftir strið-
ið, hefir vélin reynst of lítil til
þess að fullnægja þeim kröfum,
sem nú er farið að gera til ganghraða
fiskibátanna, sérstaklega liér við Faxa-
flóa. Hafa því fjölmargir eigendur
þessara báta skipt um vélar í þeim á
undanförnum árum, tekið burtu, hinar
gömlu, þungu glóðarhausvélar, og sett
í staðinn léttar og hraðgengar diesel-
vélar.
Hin nýja General Motors diesel-
vélasamstæða í Svan er 480 hest-
öfl, en við olíusparasta snúnings-
hraða er hún 410 hestöfl og áætlaður
ganghraði bátsins við venjulegar að-
stæður 1014—11 mílur á klst. Hægt
er að láta aðra vélina eingöngu knýja
bátinn, sem er mikið öryggi fyrir sjó-
menn á hafi úti, þannig að þótt önnur
vélin bili er örugglega hægt að ná
landi með Iiinni.
Alla vinnu við niðursetningu vél-
anna annaðist Vélaverkstæði Björns
& Halldórs. Skipasmíðastöð Daníels
Þorsteinssonar & Co. h.f. sá um tré-
smíðavinnu alla, en raflögn annaðist
Segull h.f. Rargeymarnir, sem ræsa
vélarnar eru islenskir, frá Rafgeyma-
verksmiðjunni Pólar h.f., en geymar
frá þeirri verksmiðju eru notaðir við
allar General Motors dieselvélar í
fiskibátum hér á landi, og hafa reynst
sérstaklega vel.
Samkvæmt ' upplýsingum frá um-
boðsmönnum General Motors diesel-
vélanna, Gísla Halldórssyni h.f.,
eru nú um 50 fiskibátar af öllum
stærðum frá 10 upp í 100 smálestir
búnir General Motors dieselvél-
um, og er það 10% af öllum skrásett-
um fiskibátum. Útgerðarmenn og
skipstjórar láta mjög vel af þeim, sök-
um lágs viðhaldskostnaðar og olíu-
sparnaðar. *
Mulai Ismadl Marokkosoldán (1646
—1727) átti 888 börn. í einni hersveit
hans voru 540 dátar, og þeir voru allir
synir hans. Rakarafélagið í Fez, höf-
uðborginni, hélt nákvæmar skýrslur
um barneignir soldánsins, en það kom
ekki til af góðu. Rakararnir urðu
nefnilega að fara i kvennabúr soldáns-
ins og færa hverju nýfæddu barni
gjöf. Væri það sveinbarn var gjöfin
gullbúinn rakhnífur, en spegill i silf-
urumgerð ef barnið var stúlka. Þegar
tign Mulai Ismaels lauk taldist rak-
arafélaginu svo til að þeir höfðu orðið
að láta af liendi 548 rakhnífa og 340
spegla.
Jean Gai frá Bordeaux átti engin
börn. Þó kvæntist liann 16 sinnum
og allar konurnar höfðu með sér börn
í hjónabandið. Þannig eignaðist hann
með tímanum 121 stjúpbarn, en ekk-
ert þeirra bar nafn hans.
Ný brú á Rín
Unnið er af fullum krafti að því að fullgera hina nýju brú yfir Rín, sem
tengir saman bílabrautina Köln — Rodenkirchen. Af myndinni sést að þetta
er ekkert smávegis mannvirki.
Mendés-
France
í NATO
Eftir að hugmyndinni um Evrópuher
var kollvarpað með afstöðu franska
þingsins, gekk franski forsætisráð-
herrann, Mendés-France, á fund fasta-
ráðs Atlantshafsbandalagsins í París
og gerði grein fyrir afstöðu Frakka
til þess. Hérna sést Mendés-France
á fundinum. Sinn til hvorrar handar
honum eru framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, Ismay lávarður (t.
v.) og aðstoðarframkvæmdastjórinn,
Richard D. Colleridge.
: i