Fálkinn


Fálkinn - 12.11.1954, Blaðsíða 7

Fálkinn - 12.11.1954, Blaðsíða 7
FÁLKINN 7 Dominique stóð þar, með álösunar- svip á svörtu andlitinu. — Það er orðið framorðið, sagði hún kuldalega, — mjög áliðið. Ghris vætti varirnar með tungunni. — Dominique ......... Lengra komst hún ekki. Hún fleygði sér í faðm svertingjakonunnar og grát- urinn hraust fram í sárum andköfum. Morguninn eftir var krökkt af tjós- myndurum og blaðamönnum á iög- reglustöðinni og The Carribee. Á lög- reglustöðinni urðu þeir að gera sig ánægða með að hafast við í forsainum, en á The Carrihee lögðu þeir undir sig allt húsið, og fældu burt svert- ingjakerlinguna, sem var að sópa út- skitið steingólfið. GÍampana frá ijós- myndavélunum lagði um allan salinn, þar sem stólarnir stóðu á hvolfi á horðunum, háværar raddir gullu við og það skrjáfaði í perlutjöldunum i dyrunum eins og í þurru páimalaufi i stórviðri. Jafnvel i klæðaherbergi Cliris var fullt af fréttasnötum. Þeir sátu á brúninni á farðaborðinu og reyktu, opnuðu alls konar öskjur og duftið rauk upp úr þeim eins og ský. Þeir leituðu og grömsuðu meira að segja í fötunum hennar, sem liengu bak við forhengið. En þeir biðu árangurslaust eftir a^ fá að sjá Chris Emery bregða fyrir. Wittol var eina lierfangið sem þeir náðu, hann kom þarna seinnihluta dags. Hann sagði þeim það litið sem hann vissi og afsakaði að hann gæti ekki komið þeim í samband við Chris Emery. Sýningum hennar hefði verið frestað um sinn. Þessari frétt var tek- ið með óánægju og mögli, en svo urðu flestir leiðir á biðinni og fóru sina leið. Undir kvöldið var gestaganginum iíka lokið á lögreglustöðinni, og dag- inn eftir hafði áhuginn á málinu dvínað stórlega. Þá kom aðeins einn blaðamaður og tveir ljósmyndarar tóku mynd af dyrunum að skrifstofu Smythes. Ailt í einu leit annar ljós- myndarinn upp og blístraði. Ung kona kom utan af götunni. Hún gekk hratt, niðurlút og yppti upp öxl- unum. Hún var í dökkum, látlausum kjól, sem ástæðulaust var að reka augun í en það var citthvað í göngu- iagi hennar og svo líkamsvöxturinn og gullrauða liárið, sem vakti atiiygli. — Jimmy, sagði ljósmyndarinn. — Sjáðu hver kemur ljarna! Blaðamaðurinn leit upp og á næsta VÍNUPPSKERA í SMIÐJUNNI. — í stórsmiðju einni í Hamburg-Fuhls- biittel er vínberjauppskera. Vínviður vex upp með húsveggnum að utan, en greinast síðan víða um undir þakinu, sem er úr gleri. augnabliki var hann kominn að Cliris Emery. — Halló, liinkrið þér ofurlitið við. Má ég tala nokkur orð við yður. Þér getið sjálfsagt sagt mér eitthvað af þessu máli ...... Chris færðist undan. — Ég veit ekki mikið um það, sagði hún og skotr- aði augunum til hans. Jimmy brosti ísmeygilega til hennar. — Það er augljóst mál að þér vitið ýmislegt, sagði hann. — Verið þér nú liðleg við landa yðar. Við getum haft talsvert upp úr því, bæði. Hún fékk velgju við tilhugsunina um að eiga að græða peninga á sjálfs- morði Neals. Þegar hún reyndi að komast undan, þreif hann í liandlegginn á henni og rak nefið upp að andlitinu á lienni. — Heyrðu nú, gullið mitt. Þér ferst ekki að láta dextra þig. Ég hefi komið og skoðað svaðhælið sem þú dansar í ........ NÚ tók myndug karlmannsrödd fram í: — Ef frú Emery þarf arm að styðja sig við, þá hugsa ég að hún kjósi minn heldur ...... Og nú var fínleg liönd með gljáðar neglur rétt fram. Hún þreif i Jimmy, en hann snerist á hæli og fúkyrðin voru komin fram á var- irnar á honum, en þegar hann sá hver þarna var þótti honum ráðlegra að brosa en bölva. — Vitanlega, herra Fabian, — en ég ætlaði mér alls ekki að vera óþægi- legur. Chris leit á hann með viðbjóði. Það var eitthvað eitrað í þessum fleðu- skap. Fabián bauð lienni arminn og klappaði á höndina á henni. — Svona ætti ekki að þurfa að koma fyrir þig, sagði liann með djúpri og heitri rödd, sem bar vott um einlægni. — Chris, hvers vegna simaðir þú ekki til mín og sagðir mér livernig komið var? — Því skyidi ég gera þér óþægindi með áhyggjum mínum, sagði hún lilé- dræg. Hún vissi ekki hvers vegna hún hefði ekki símað. Kannske voru það ummæli Smythes, sem höfðu valdið því að hún hafði hliðrað sér hjá að leita til Max. — En Chris! Það var dálítill ásök- unarhreimur i rödd Fabians. — Ég sem var vinur Neals. Og ég er vinur þinn ennþá. Eg vona að minnsta kosti að þú viljir lofa mér að vera það. Þessi „sólsikka" er 270 cm. há og stöngullinn er gildur eins og manns- handleggur. Hið myndarlega blóm er í garði í Berlín-Friedenaud. Dreng- urinn varð að nota stiga til að ná í blómið, en það er 27 cm. í þvermál. Þetta hlýjaði Cliris. Já, hann var vinur hennar. Eini vinurinn sem hún átti. Alltaf kurteis, alltaf nærgætinn, boðinn og búinn til að geta sér til um óskir hennar áður en hún nefndi þær. En hann fór aldrei yfir þau tak- mörk, seni vináttan setti. Það gat kom- ið fyrir að hann tók um herðar henni þegar þau gengu yfir götu, en það var ekkert nærgöngult í því. Hann hjáip- aði henni út úr bifreið án þess að nota tækifærið til að jjrýsta að hönd henn- ar, og hann dansaði við hana án þess að leggja vanga að vanga. Hann kom yfirleitt fram við hana eins og hún væri honum jafnfætis í mannfélaginu. — Góði Max, sagði hún, — þú ert allra besti vinur minn. Fabian hrosti glaður. Munnur hans var í rauninni það, sem henni fannst minnst til um. Hann var mjór, nærri því efrivararlaus, og alitof lítill í sam- anburði yið svipmikið andiitið og arn- arnefið og loðnu augnabrúnirnar, sem voru farnar að hærast. En hann var vinur iiennar og trygg- ur vinur. Nú kom lögregluþjónn til þeirra: -— Smythe fulltrúi biður, frú Emery. — Já, einmitt, sagði Chris. — Af- sakaðu mig, Max. Smythe fulltrúi þarf að tala við mig. — Ég licfi verið inni hjá honum, sagði Fahian. — Eg bíð eftir þér hérna, svo get ég ekið með þig á eftir. SMYTIIE fulltrúi var niðursokkinn í einhver skjöl og leit ekki upp þegar Chris kom inn. Við skrifborðið stóð svertingi, illa til fara og liringsneri derhúfunni í sífellu milli handa sér. Chris liorfði forviða á hann. Hvað var liann að vilja iiérna? Það var ang- ist í augum hans þegar hann leit á liana. Svo leit hann niður á gólfið. Góð stund leið áður en Smythe sýndi þess merki að hann vissi að Chris væri komin inn. Svo leit hann snöggt upp og einblíndi á hana. — Hafið þér vegabréfið yðar? — Já, sagði Chris felmtruð, — það held ég ...... — Má ég fá að sjá það? Smythe rétt fram höndina yfir skrifborðið og Chris tók vegahréfið upp úr töskunni og rétti honum. — Þökk fyrir, sagði Smythe. — Ég verð nefnilega að hafa tryggingu fyrir að þér farið ekki frá Trinidad. Hann iagði vegahréfið umsvifalaust niður i skúffu og læsti lienni. Svo hall- aði hann sér á olnboga fram á skrif- borðið og horfði luigsandi á liana. — Frú Emery, sagði hann. — Mað- urinn yðar framdi ekki sjálfsmorð. — Hann var myrtur. Hún stóð með hálfopinn munninn. Starði tortryggin á liann. Það gat ekki verið mögulegt að hún liefði heyrt rétt. Smythe horfði rannsakandi á hana. Þögnin var eins og eiiifð, svo sagði hann: — Það sáust margir áverkar' á lik- inu. Hauskúpan brotin og að það lief- ir orðið honum að bana, en skotið gegnum gagnaugað hefir hann ekki fengið fyrr en eftir að hann var dá- inn. Liklega til að villa lögreglunni sýn. Cliris reyndi að segja eitthvað en kom ekki upp nokkru orði. Hún tók andköf hvað eftir annað. — En þetta er svo ósennilegt, sagði hún loksins. — Hver ætti að hafa myrt Neal? Smythe liafði ekki af henni augun, en benti svertingjanum með hend- inni. Framhaid í næsta blaði. UNDRABARN. — Það er alls ekki of- sagt, þó að Astrid Riiggeberg frá Mamborg sé kölluð undrabarn. Þó að hún sé ekki nema tíu ára sést nafn hennar oft á augiýsingaspjöldunum. Hún leikur alls konar tónlist — barna- vísur og dægurlög — og allt þar á milli. Hér sést frú Riiggeberg vera að að æfa lög með Astrid. Elsti íbúi Þýskalands er Karl Glöckner, 106 ára. Hér sjáum við hann ásamt barnabarni sínu. ERFIÐ LIST. — Það er erfiðara en margur hyggur að hlaupa um með skutla, fulla af glösum og flöskum og jafnvel fagmönnum bregst stundum bogalistin. Á þjónasamkeppni í Lon- don nýlega reyndi ein þernan að kom- ast framhjá keppinaut sínum, í einni beygjunni, en þá datt flaska hjá henni, og fyrir óhappið var hún dæmd úr leik.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.