Fálkinn


Fálkinn - 28.10.1955, Qupperneq 3

Fálkinn - 28.10.1955, Qupperneq 3
FÁLKINN 3 Kominn er hingað til larids í boði MÍR hópur listafólks frá Sovétríkj- unurn, sem kemur opinberiega fram l*ér í Reykjavík, en auk þess liklega á Akureyri og ísafii'.Si. Meðal listafólksins er barýtonsöngv- arinn Sjaposnikoff frá Malí-óperunni í Leningrad og Vakman undirleikari hans, sem er kona. Þá er einnig ung! danspar frá Bolsjoj-leikhúsinu i Moskva, þau Bogomolova og Vlasoff, fiðluleikarinn Gratsj, sem fékk fyrstu Ljósm.: Sig. Guðmundsson. verðlaun í alþjóðlegri keppni í París í sumar, hljómsveitarstjórinn Hala- dieff, sem er leiðtogi listafólksins, Druzin ritstjóri, formaður sendinefnd- arinnar, skólastjórinn Bakun og vís- indamaðurinn Lagunoff. Jílinning Hannesar Hofstein heiiruí í tilefni af 50 ára afmæli höfunda- laga Iiér á landi, 20. október, iagði stjórn Bandalags íslenskra listamanna blómsveig við styttu Hannesar Haf- stein á stjórnarráðsblcttinum, en Hannes var frumkvöðull þeirra laga. Við sveiginn eru fest bönd með ís- lensku fánalitunum og þar áletrað: Samsýning þekklra lisiamanna Um síðustu helgi var opnuð sam- sýning sex lcunnra listamanna í Lista- manriáskálanum. Alls eru á sýning- unni um sjötíu myndir, bæði olíumál- verk og vatnslitamyndir og svo högg- myndir Ásmundar Sveinssonar, sem stendur að sýningunni ásamt fimtn málurum. Aðálhvatamaður að sýningunni mun vera Svavar Guðnason, listmálari, en auk hans sýna listmálararnir Kristin Jónsdóttir, Snorri Arinbjarnar, Þor- valdur Skúlason og Gunnl. Scheving. Sýningin er opin frá kl. 1 til kl. 10 e. h. á hverju kvöldi um hálfsmán- aðarskeið. Óvanalegur viðshiptavinur i Sjá forsíðu ^ Reiðhesturinn Faxi við búðarborð eigandans, Þorvaldar Þorvaldssonar í versluninni „Visir“ á Sauðárkróki. Faxi varð 9 vetra gantail í seplem- ber síðastliðnum. Hann er ættaður frá Egg í Hegranesi í móðurkyn, en fað- ir ókunnur. Hann er alinn upp á Sauð- árkróki og taminn af eigandanum. Síðan Faxi var veturgamall hefir það verið vani ltans að koma nokkrum sinnum á ári inn i sölubúðina og liyggja að, hvað þar er best að fá. Þigg- ur hann þá gjarnan kex, súkkulaði og ánnað sælgæti. Einnig fer hann upp Ctkneski af héðnt „Til heiðurs Hannesi Hafstein á 50 ára af mæli íslenskra höfundalaga 20. október 1955. Með þakklæti frá Bandalagi íslenskra listamanna. Að athöfninni iokinni bauð stjórnin til hádegisverðar með hinum nýja heiðursforseta Bandalagsins, Gunnari Gunnarssyni skáldi. afhíúpað Um síðustu helgi var afhjúpað líkn- eski af Héðni Valdimarssyni á barna- leikvellinum við Hringbraut. Sigur- jón Ólafsson myndhöggvari hefir gert líkneskið, en Byggingafélag alþýðu hefir gengist fyrir málinu. Athöfnin hófst með því, að Guðgeir Jónsson bókbindari flutti ávarp, en síðan flutti Erlendur Vilhjálmsson, formaður Byggingafélags alþýðu ræðu og minntist Héðins Valdimarssonar sem fyrsta formanns byggingafélagS- ins og brautryðjanda á sviði opinberr- ar aðstoðar í þágu íbúðarlnisabygg- inga fyrir alþýðu. Þá fiutti ekkja Héðins, Guðrún Páls- dóttir, ávarp og þakkaði byggingafé- laginu þann sóma, sem það hefði sýnt minningu eiginmanns hennar. Blómsveigar frá Verkamannafélag- inu Dagsbrún, stjórn Olíuverslunar Islands og starfsfólki fyrirtækisins nii og fyrr voru lagðir að fótstalli líkneskisins. tröppur íbúðarhússins, sem cr áfast við verslunina, og leggur þá leið sína til eldhúss og athugar hvað þar er á borðum. Hikar hann þá eklci við að fara í matarpottana, ef þeir eru sjá- anlegir. Sést hefir lil Faxa á tröpp- um hússins, þar sem hann var að reyna að opna hurðina með flipan- um. Hestur þessi hefir óvenju gott geðslag.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.