Fálkinn


Fálkinn - 28.10.1955, Síða 4

Fálkinn - 28.10.1955, Síða 4
4 FÁLKINN ★ Glæsilegur æviferill ★ 7tlounibaiíen lávarður situr í iignustu slöðu breska fjlolans, eftir að ha$a verið varakonungur Jndlands og haflt á hendi yfiirsliórn TMiðiarðarhafjsHlota yiÁCO-bióðanna í október 1914 sást maður í aðmír- álsbúningi koma út af flotamálastöð- inni i London. Hann var hár og bein- vaxinn og með mikið af orðumerkj- um á bringunni, svo að auðséð var að þarna fór ekkert smámenni. Hann leit aftur fyrir sig á flotastjórnar- bygginguna, lyfti hendinni til að kveðja verðina og ók burt. Hann hafði verið húsbóndi í þessu húsi, en var að ganga um dyrnar i siðasta sinn. Aðmírállinn var enginn annar en Louis prins af Battenberg. Hann hafði verið „Fyrsti sælávarður" og æðsti maður aðmirálaráðsins og stjórnað stærsta herflotanum, sem þá var til i veröldinni. Hann hafði orðið breskur ríkis- borgari 1868 og helgað Bretlandi allt sitt starf frá þeirri stundu. Starfaði í flotanum alla tíð og hækkað stig af stigi uns hann varð „Fyrsti Sealord" árið 1912. Það var hann sem gaf út skipunina um hervæðing flotans er stríðið skall á sumarið 1914. Hann hafði ávallt reynst þjóðhollur Breti. En hann var af pólsk-þýskri ætt. Það vóg þyngra en hitt, að hann er kvæntur dóttur- dóttur Victoriu drottningar. Því að eftir að breski flotinn hafði orðið fyr- ir tilfinnanlegu tjóni i byrjun stríðs- ins var Mountbatten kennt um. Hann hefði — af ásettu ráði — vanrækt viðbúnað flotans. Sagan hefir lagt sinn dóm á þetta, og nú brigslar eng- inn Mountbatten um vanrækslu. En flotinn hafði fengið verkefni, sem ekki var hægt að vinna tjónlaust, svo sem að vernda skipin er fluttu breska herinn til Frakklands. Hinu gleymdi fólk, að hervæðing flotans hafði tekist mjög skipulega og flotinn var vel bú- inn i alla staði. Gagnrýnin bitnaði auðvitað fyrst og fremst á fyrsta sælávarði, og var dregið í efa að liann væri jafnhollur Bretum og vera bæri. Þetta varð til Mountbatten sem síðasti varakonungur í Indlandi, á tali við Nehru for- sætisráðherra. Lord Mountbatten er yngsti „Fyrsti sælávarður", sem verið hefir í Bret- landi síðustu 50 árin. Hann er 55 ára. þess, að í okt. 1914 fór hann til flota- málaráðherrans og bað um lausn. Churchill var flotamálaráðherra þá, og beygði sig fyrir almenningsálitinu og veitti lausnina. Það hefir verið fullyrt að Churchill hafi ráðlagt Mountbatten að stíga þetta skref, en ekki verður það séð af bréfum, sem fóru þeirra á milli. En hvernig sem því er varið var þetta mikið áfall fyrir lávarðinn af Batten- berg. Þvi nafni hét hann þá. En þegar þýsku nöfnunum innan bresku kon- ungsfjölskyldunnar var breytt, 1917, tók hann sér nafnið Mountbatten, sem var bein þýðing af fyrra nafninu og fékk aðalsheitið „markgreifi af Mil- ford Haven, jarl af Medina og greifi af Alderney". Hann dó 1921 og hafði þá lifað í kyrrþey í sjö ár. í flotanum var nýliði, sem tók sér mjög nærri þessa afsögn lávarðarins. Hann var 13 ára, og sonur hans. Og hann strengdi þess heit að þvo af nafninu þann smánarblett, sem óvin- ir föður hans höfðu sett á það. Og hann hefir efnt heitið. í vor skipaði Chruchill hann í sörúu stöðuna, sem faðir hans hafði orðið að vikja úr 40 árum áður. Mountbatten yngra hefir verið veitt athygli frá því að Nikulás Bússa- keisari hélt honum undir skírn og þuldi nöfnin lians yfir skirnarfont- inum: Louis Francis Albert Victor Nikulás, en við sama tækifæri reif barnið gleraugun af langömmu sinni, Victoriu drottningu, er hún fór að gæla við það. Victoria var sjálf fyrsti keisari Indlands. Og barnið sem þarna var skírt varð síðasti varakonungur Breta í Indlandi. Hann tók að sér að afsala Indverjum öllum breskum yfirráðum. Mountbatten yngri er mikið glæsi- menni. Það er sagt að frændi hans, hertoginn af Edinburgh hafi tekið hann sér til fyrirmyndar öllum öðr- um mönnum fremur. Philip hertogi varð breskur rikisborgari 1947 og tók sér þá nafn frænda síns Mountbatten. Þeir eru miklir vinir og Philip hafði lengstum dvalið hjá frænda sínum eftir að hann kom til Englands, og var síðar adjútant hans, t. d. i her- ferðinni til Burma. Louis Mountbatten liafði ráðist i flotann 1913, þá 13 ára. Hann mann- aðist vel þar, og árin milli styrjald- anna var hann ýmist í flotanum eða við hirðina. Hugur hans var allur á sjónum. Hann var mikill vinur prins- ins af Wales — hertogans af Windsor — og fór með honum í ferðalag um öll samveldislöndin. Árið 1921 kynntist hann ungri og fallegri stúlku, Edwinu Ashley, dóttir Mont Tempte lávarðar og erfingja að 7—8 milljón sterlingspundum. Þau trúlofuðust í New Delhi árið eftir og giftust í London. Konungshjónin voru i veislunni og prinsinn af Wales var svaramaður Mounlbattens. En Mountbatten féll ekki landlífið. Ilann fór í sérskóla í Portsmouth og Greenwich, lærði loftskeytafræði og tók túlkspróf í frönsku og þýsku. Og ioks fékk hann sjálfur skip til umráða árið 1934. Það var tundurspillir, sem hét „Daring“ og fremur litilmótlegt skip, en Montbatten var ánægður. Þremur árum síðar varð hann „comm- ander“ — sá yngsti í flotanum. Þegar síðari heimsstyrjöldin hófst tók hann við stjórn flotadeildar og hafði sjálfur spánýjan tundurspilli, „Kelly“. Þetta var 5. tundurspilla- deildin og lenti henni fljótlega i orr- ustum. Og í desember 1939 rakst „Kelly“ á dufl. Skipið kom'st í höfn hálffullt af sjó og öll yfirbyggingin af því. Árið eftir fórst „Kelly“ í orrustu við þýsk herskip hjá Krít, en hélt skothríðinni áfram til síðustu stund- ar. Mountbatten var einn af þeim fáu, sem komust lífs af. Hann þótti hafa

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.